Fiskifréttir


Fiskifréttir - 18.12.1987, Blaðsíða 21

Fiskifréttir - 18.12.1987, Blaðsíða 21
föstudagur 18. desember 21 Hólmgeir Jónsson: Staðgreiðslu- kerfí skatta Eins og allir vita tekur stað- greiðslukerfi opinberra gjalda gildi nú um áramótin. Samhliða gildistökunni eru gerðar ýmsar breytingar á skattkerfinu. Má þar nefna breyttar álagningaregl- ur og samræmingu á skattstofnum til útreiknings á tekjuskatti ann- ars vegar og útsvari hins vegar. Skattstofnar til útreiknings á tekjuskatti og útsvari stækka frá því sem nú er m.a. vegna þess að ýmsir frádráttarliðir í núgildandi skattkerfi eru felldir niður. Sjó- manna- og farmanna- og fiski- mannafrádráttur falla niður í nú- verandi mynd, en í stað þeirra kemur sjómannaafsláttur, sem verður föst krónutala á dag. Fæð- ispeningar sjómanna koma inn í skattstofn í staðgreiðslukerfinu, en til mótvægis var sjómannaaf- sláttur hækkaður frá því sem fyrirhugað var. Tekjuskattur verður 28,5% og útsvar 6,7% í staðgreiðslukerfinu. Heildar- álagningin verður því 35,2%. Frá reiknuðum skatti dregst síðan persónuafsláttur og sjómannaaf- sláttur þar sem það á við. Fyrir Alþingi liggur nú frum- varp til laga um breytingu á lög- um um tekju- og eignarskatt. Frumvarpið hefurm.a. að geyma upphæðir persónuafsláttar, barnabóta og húsnæðisbóta sem koma til með að gilda þegar stað- greiðslukerfið tekur gildi. Allar tölur frumvarpsins eru á júní- verðlagi 1987, en skv. lögunum framreiknast allar upphæðir tvisvar á ári í samræmi við breyt- ingu á lánskjaravísitölu. 1. janúar 1988 breytast allar fjárhæðir í samræmi við breytingu á láns- kjaravísitölu frá júní til desem- ber 1987 og 1. júlí 1988 breytast allar fjárhæðir í samræmi við breytingu á lánskjaravísitölu frá desember 1987 til júní 1988. Meðfylgjandi tafla sýnir þær fjárhæðir, sem koma til með að gilda þegar staðgreiðslukerfi op- inberra gjalda tekur gildi nú um áramótin, verði frumvarpið að lögum óbreytt. Persónuafslátturinn er ekki millifæranlegur milli mánaða, en heimilt verður að færa hann milli mánaða ef maður starfar hjá sama atvinnurekanda. I stað- greiðslukerfinu er millifærsla persónuafsláttar rnilli hjóna rýmkuð frá núgildandi skatt- kerfi. Reiknað er með að maki geti nýtt 80% af ónýttum pers- ónuafslætti hins makans. At- vinnurekandi getur hins vegar ekki nýtt persónuafslátt viðkom- andi launamanns, nema hann hafi skattkort viðkomandi í höndunum. Sjómannaafsláttur verður kr. 408 fyrir hvern dag, sem maður telst stunda sjómannsstörf. Sjó- mannaafslætti þeirra sem lög- skráðir eru á íslenskt skip er heimilt að ráðstafa á móti stað- greiðslu, en hlutaráðnir sjómenn og landmenn, sem ekki eru lög- skráðir fá sjómannaafsláttinn gerðan upp þegar endanleg álagning fer fram. Barnabæturnar korna ekki inn í staðgreiðsluna, en þær verða greiddar út ársfjórðungslega á staðgreiðsluári. Húsnæðisbæturnar verða greiddar út árlega í 6 ár vegna fyrstu íbúðar og koma þær að nokkru leyti í stað vaxtafrádrátt- ar í núgildandi skattkerfi. Ef hjón eru að eignast íbúð í fyrsta sinn greiðast húsnæðisbætur til beggja, þannig að hjónin fá tvö- falda þá upphæð sem tilgreind er hér að framan. Sem dæmi um útreikning á staðgreiðslu manna skal með- fylgjandi dæmi tekið. Reiknað er með að viðkomandi hafi 100 þús. kr. mánaðarlaun og að hann hafi 30 daga sjómannaafslátt. Hér hefur í örstuttu máli verið getið um helstu breytingar sem verða á álagningunni þegar stað- greiðslukerfi skatta tekur gildi. Það er trú mín að staðgreiðslu- kerfið komi þeim fyrst og fremst til góða sem hafa breytilegar tekj- ur milli mánaða eða ára tekjur eins og t.d. sjómenn. I stað- greiðslunni koma menn til með að greiða opinber gjöld í sam- ræmi við tekjur hverju sinni. þannig að ekki kemur til með að menn lendi í vandræðum með skattana vegna tekjusamdráttar af einhverjum orsökum. Að lok- um er rétt að benda mönnum á að athuga vel að staðgreiðsla sé dregin af laununum, því einstakl- ingar geta ekki greitt skattana sína sjálfir í staðgreiðslukerfinu, heldur þarf að fylgja skilagrein frá atvinnurekanda þegar stað- greiðslu er skilað til innheimtu- manna ríkissjóðs. Höfundur er franikvæmdastjóri Sjómannasambands Islands Dæmi: Miðað við 100 þús. kr. mánaðarlaim og 30 daga sjómannaafslátt Reikriaður skattur 35.2% cða Frá dregst persónuafsl. og sjómannaafslátlur Staðgreiðsla 14.797 kr. 12.240 kr. 35.200 kr. 27.037 kr. 8.163 kr. Fjárhæðir í staðgreiðslukerfínu ' Júníverðlag desemberverðlag Persónuafsláttur 158.820 kr. á ári 13.235 kr. á nrán. 177.560 kr. á ári 14-797 þr. á mán. Sjómannaafsláttur 365 kr. á dag 408 kr. á dag Barnabætur: með fyrsta barni með börnum umfram eitt viðbót ef < 7 ára 14.650 kr. á ári 21.975 kr. á ári 14.650 kr. á ári 16.379 kr. á ári 24.568 kr. á ári 16.379 kr. á ári I lúsmeðishætur á mann 38.000 kr. á ári 42.Í84 kr. á ári SAMIFI FRYSTITÆKI í HÆSTA GÆÐAFLOKKI O Sjálfhleðslutæki O Láréttir frystar O Lóðréttir frystar O Sambyggð tæki Sjálfhleðslutæki — Bylting í frystingu - meka SKEMMUVEGI 8 200 KÓPAVOGI SÍMI 72244 einkaumboð fyrir stal/samifi á íslandi

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.