Fiskifréttir


Fiskifréttir - 18.12.1987, Blaðsíða 38

Fiskifréttir - 18.12.1987, Blaðsíða 38
38 föstudagur 18. desember Loðnustofninn: Afla- ráðgjöf Hjálmar Vilhjálmsson Reynsla er fyrir því, bæði héð- an og annars staðar, að mjög erf- itt er að áætla afrakstursgetu loðnuárganga með verulegri ná- kvæmni fyrr en þeir eru um það bil að koma eða þegar komnir inn í veiðina. Þessu veldur skammlífi loðnunnar og nær al- ger hrygningardauði, breytilegt kynþroskahlutfall einstakra ár- ganga auk þess sem afrakstur á nýliða getur breyst um allt að því 30% frá einu ári til annars vegna mismikils fæðuframboðs. Þá er loðnan einn þýðingarmesti liður- inn í fæðu þorsksins sem hefur margfalt verðgildi á við hana eins og allir vita. Af þessum sökum fer Hafrannsóknastofnun var- lega í tillögum sínum um loðnu- kvóta sem gerðar eru áður en vertíð hefst og hægt hefur verið að mæla stærð veiðistofnsins sjálfs. í nokkur undanfarin ár hefur fjöldi ársgamallar smáloðnu verið mældur í ágústmánuði auk þess sem samsvarandi upplýsing- ar hafa oftast fengist jafnhliða mælingum á stærð veiðistofnsins í október/nóvember. Með sam- anburði við það hvernig árgangar skila sér í veiði næstu tvö árin, en hver árgangur verður ekki kyn- þroska allur í einu, er síðan reynt að ráða í hvers megi vænta um afrakstur varðandi veiðar. Þessi aðferð hefur verið notuð undan- farin tvö til þrjú ár auk þess sem reynt er að kanna smáloðnu- magnið í janúar/febrúar sama ár og vertíð hefst. Það er hins vegar oft torsótt vegna veðurs og hafíss á útbreiðslusvæði þessa hluta stofnsins. I ljósi þeirra upplýsinga sem fyrir liggja seinni hluta vetrar gerir Hafrannsóknastofnun til- lögur um aflakvóta fyrir fyrri hluta næstu vertíðar, þ.e. júlí— nóvember sama ár. Er þá miðað við þann afla sem hættulaust sýn- ist að taka þegar gert hefur verið ráð fyrir 400 þús. tonna hrygn- ingarstofni og afföllum vegna ránfiska, aðallega þorsks. Tillög- ur um aflakvóta á seinni helmingi vertíðarinnar eru síðan lagðar fram eftir að stærð veiðistofnsins hefur verið mæld að haustlagi meðan vertíð stendur yfir. Þessi háttur var hafður á sl. vor og aðallega miðað við upp- lýsingar um fjölda smáloðnu af árgangi 1985 frá ágúst og október 1986, en þessi árgangur er 80% af núverandi veiðistofni eins og reiknað hafði verið með. Saman- burður við hliðstæðar upplýsing- ar um eldri árganga bentu til þess, að 1985 árgangurinn væri heldur slakur enda þótt svo virt- ist sem breyttar göngur og út- breiðsla ársgamallar smáloðnu í ágúst 1986 miðað við fyrri ár kynnu að hafa valdið vanmati á þessum árgangi miðað við félaga hans frá fyrri árum. Mælingar á ókynþroska loðnu af árgöngun- um 1985 og 1984, sem fram áttu að fara í janúar/febrúar leiðangri Bjarna Sæmundssonar sl. vetur, var ekki hægt að gera nema að hluta á þeim tíma sem til umráða var vegna íss á miðunum út af Vestfjörðum og vestanverðu Norðurlandi. Tillögur þær sem Hafrannsóknastofnunin lagði fram um loðnuveiðar í vor sem leið voru því byggðar á slíkum grunni, að ómögulegt var að ráða í hvort og þá hve mikið unnt myndi reynast að auka þann afla- kvóta sem ákveðinn var í fram- haldi af þeim. I október sl. var reynt að mæla stærð loðnustofnsins eins og venjulega á undangengnum ár- um. Svo sem kunnugt er mistók- ust þær mælingar með öllu. Ástæðurnar voru augljósar og sem sé þær, að loðnan var ekki komin á venjulegar vetrarstöðv- ar út af Norðurlandi og Vest- fjörðum en hélt sig þess í stað á grænlenska landgrunninu þar sem ekki var hægt að komast að nema hluta hennar vegna íss. Veiðistofninn var svo mældur við ágæt skilyrði seinast í nóvember og reyndist miklu stærri en fyrri upplýsingar höfðu bent til. Skiljanlegt er, að Hafrann- sóknastofnun sé legið á hálsi að sjá ekki gleggra fram í tímann en raunin varð að þessu sinni um loðnuna. Menn verða þó að hafa hina líffræðilegu sérstöðu þessa fiskistofns íhuga sem tíunduð var að hluta hér að framan svo og það hvað nauðsynlegur saman- burður milli mælinga á smáloðnu og afla á sér stutta sögu. Og síðast en ekki síst ætti að líta á þá staðreynd að Hafrann- sóknastofnun hefur mjög tak- mörkuð fjárráð og verður að sníða sér stakk eftir vexti, varð- andi loðnurannsóknir sem ann- að. Starfsáætlanir og áætlanir um leiðangra fyrir næsta ár verða að liggja fyrir í ársbyrjun og nær ekkert svigrúm er til breytinga sem oft þyrfti að gera af ófyrirsjá- anlegum ástæðum. Það var til dæmis alveg ljóst að hafísinn sem hindraði mælingar smáloðnunn- ar sl. vetur myndi fyrr eða síðar hopa, a.m.k. tímabundið, þann- ig að þá yrði hægt að komast að loðnunni til mælinga. Ef það hefði verið gert hefðu rann- sóknamenn eflaust þá þegar komast miklu þær sannleikanum um ástandi núverandi veiðistofns en raunin varð. Hafrannsókna- stofnun hafði hins vegar ekki peninga til þess að halda úti skipi til þess að bíða þess tækifæris nema á kostnað annarra engu þýðingarminni verkefna sem henni var ætlað að sinna. MO| 10 dælur Þær sem aðrir byggja á dæla öllu. Öflugar lensidælur sem henta bæði stórum og smáum iðnaði. Taka í sig allskonar rusl. Einfaldar og hannaðar af hugviti eins og allar dælur frá MONO. Þær dæla öllu þessar. Vatnsþrýstikerfi Lensidælur sem bregðast ekki. Hentug á skipa- og bátaflotann, útihús og nánast hvar sem er. Halda þrýstingi á sjálfvirkan hátt. Vegna einfaldleika síns og traustrar byggingar þá bregðast þau ekki. MONO EINFALDAR FJÖLHÆFAR TRAUSTAR Vökvadælur henta allsstaðar. Einfaldar og hljóðlátar vökvadælur sem eru þekktar fyrir endingu sína. Litlar og liprar dælur sem henta alls- staðar. EINKAUMBÖÐ Á ÍSLANDI: HAMARHF Grandagarði11 Sími 91-22123. Höfundur er fískifræðingur á Hafrannsóknastofnun

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.