Fiskifréttir - 18.12.1987, Blaðsíða 31
föstudagur 18. desember
31
Fréttir
Kúffiskleiðangurinn:
Ekki tókst að kanna djúpslóð vegna veðurs
— Villi Magg kominn með um 700 tonn af kúfskel í haust
- Villi Magg kominn með um 700
tonn af kúfskel í haust
Kúffiskleiðangri Villa Magg ÍS
lauk fyrir skömmu og að sögn ÓI-
afs V. Einarssonar, fiskifræðings,
sem stjórnaði leiðangrinum, var
árangur vel viðunandi þrátt fyrir
að ekki tækist að kanna djúpslóð
vegna veðurs.
I leiðangrinum fannst kúfskel
allt frá Suðurvík og Fljótavík í
norðri, suður í Önundarfjðrð.
Ekki tókst að kanna hefðbundin
svæði í Arnarfirði og Patreksfirði
vegna veðurs en að sögn þeirra Ól-
afs V. Einarssonar og Erlings
Auðunssonar, skipstjóra og eins
eiganda kúffiskverksmiðjunnar
Bylgjunnar á Suðureyri, var ár-
angurinn í Önundarfirði mjög góð-
ur. Var Erling reyndar að veiðum
út af Inggjaldssandi er við ræddum
við hann. Það voru vissulega von-
Ný Freyja
komin heim
—kostaði 100 m. kr.
Nýtt 130 lesta togskip, sem smíð-
að er í stað Freyju RE 38, átti að
koma í fyrsta sinn til heimahafnar
nú um miðja vikuna. Gunnar I.
Hafsteinsson, eigandi Freyju, fékk
skipið afhent um sl. helgi en það er
smíðað hjá Moen slip og mekanisk
verksted a/s í Kolvereid í Noregi.
Flin nýja Freyja er 29.90 metrar
á lengd og réttir 8 metrar á breidd.
Lestarrými er rúmir 150 rúmmetr-
ar og er skipið um 130 brúttórúm-
lestir. Að sögn Gunnars I. Haf-
steinssonar er Freyja útbúin til al-
hliða togveiða og er frystibúnaður
til heilfrystingar um borð. Skipið
sem kostaði tæpar 100 milljónir
króna, kemur í stað 103 lesta skips
sem smíðað var á Akranesi 1972.
Tillögum um
aflahámark
seinkar
Tillögur sjávarútvegsráðherra
um leyfdegan afla á næsta ári, hafa
ekki verið lagðar fram. Samkvæmt
kvótalögunum á að tilkynna þessa
viðmiðun fyrir 1. nóvember ár
hvert en vegna þess að lögin um
stjórnun fiskveiðanna gilda aðeins
út þetta ár, hefur það dregist að
tilkynna umrædda viðmiðun.
Ný lög um stjórnun fiskveið-
anna taka væntanlega gildi um nk.
áramót og að sögn Arna Kolbeins-
sonar, ráðuneytisstjóra í sjávarút-
vegsráðuneytinu þarf ráðherra
sérstaka lagaheimild til þess að ák-
veða aflahámark á næsta ári. Ekki
er ljóst hvenær ráðherra getur birt
tillögur sínar en að sögn Arna
verða þær venju samkvæmt lagðar
fram í þinginu.
brigði fyrir kúffiskleitarmenn að
ekki skyldi hægt að leita að skel í
fjarðarmynnum og á dýpra vatni
en samkvæmt upplýsingum Ólafs
V. Einarssonar verða þær rann-
sóknir nú að bíða vors.
Kúffiskveiðiskipið Villi Magg
hefur nú fengið u.þ.b. 700 tonn af
skel frá því að starfræksla kúffisk-
verksmiðjunnar hófst nú í haust.
Unnið er að markaðsleit víða um
lönd en ekki hefur þótt fýsilegt að
framleiða fyrir Bandaríkjamarkað
vegna þess hve dollarinn stendur
lágt. Á meðan er talsvert af kúf-
fiskinum unnið í beitu og að sögn
Arnórs Stefánssonar. fram-
kvæmdastjóra Bylgjunnar, hefur
kúffiskinum verið vel tekið af sjó-
mönnum. Einkum eru það Vest-
firðingar og sjómenn á Norður- og
NA-landi sem eru ánægðir með
kúffiskinn sem beitu en Sunnlend-
ingar eru seinteknari.
KVÆRNER KULDE
íslenskt nútíma fiskveiðiskip
er háð góðu og öruggu frystikerfi með góða þjónustu.
Seinustu ár hafa eftirtaldir aðilar valið frystikerfi frá
KVÆRNER KULDE
M/S Örvar
M/S Akureyrin
M/S Hafþór
M/S Siglfirðingur
M/S Sólrún
M/S Harpa
M/S Stakfell
M/S Sigurbjörg
M/S Hilmir
M/S Jón Kjartansson
M/S Freri
M/S Arinbjörn
M/S Júpiter
M/S Stjörnutindur
M/S Júlíus Havsteen
M/S Grindvíkingur
M/S Oddeyrin
M/S Nökkvi
M/S Margrét
M/S Sléttbakur
M/S Jón Finnsson
M/S Pétur Jónsson
M/S Arnar
M/S Hákon
M/S Hópsnes
M/S Ýmir
Utgerðarfélag Dalvíkinga
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
3 st. skrúfuþjöppur
4 st. skrúfuþjöppur
1 st. skrúfuþjappa
1 st. stimpilþjappa
1 st. skrúfuþjappa
2 st. skrúfuþjöppur
1 st. skrúfuþjappa
3 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
3 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
1 st. skrúfuþjappa
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
2 st. skrúfuþjöppur
5 st. plötufrystar
4 st. plötufrystar
3 st. plötufrystar
5 st. plötufrystar
2 st. plötufrystar
1 st. plötufrystir
4 st. plötufrystar
3 st. plötufrystar
3 st. plötufrystar
2 st. plötufrystar
5 st. plötufrystar
4 st. plötufrystar
2 st. plötufrystar
2 st. plötufrystar
1 st. plötufrystir
5 st. plötufrystar
2 st. plötufrystar
2 st. plötufrystar
3 st. plötufrystar
5 st. plötufrystar
1 st. plötufrystar
2 st. plötufrystar
2 st. plötufrystar
3 st. plötufrystar
2 st. plötufrystar
4 st. plötufrystar
3 st. plötufrystar
KVÆRNER KULDE
Kværner Kulde á íslandi
Hafþór Svendsen Grundartanga 22 Mosfellssveit 270 Varmá
Sími 91 66755 - Bflasími 985 23225
Pósthólf 115, 1301 Sandvika Noregi
Sími 90 47 2 544960 - Bílasími 90 47 94 13993
Telex 76480 kulde n-Póstfax 90 47 2 544968
Síðumúli 37 108 Reykjavík. Sími 91-685320