Fiskifréttir


Fiskifréttir - 18.12.1987, Side 36

Fiskifréttir - 18.12.1987, Side 36
36 föstudagur 18. desember Ævintýríð í Norðursjónum hófst 1970 „Það má segja að mitt fyrsta verkefni eftir að við keyptum Hilmi SU eldri hafi verið að gera út í Norðursjó. Þetta var vorið 1969 og eftir að sfldin hvarf af miðunum hér við land var ekki annað að gera en klóra í bakkann og leita fyrir sér annars staðar“, sagði Jóhann Ant- oníusson útgerðarmaður, en hann hefur gert út tvo báta með nafninu Hilmi undanfarin ár. „Raunar verð ég að taka fram að þetta vor fórum við fyrst norður að Svalbarða og var ætlunin að salta síld þar en afli brást algerlega því við náðum ekki nema um það bil 150 tunnum þegar við ákváðum að söðla um og senda bátinn í Norðursjóinn. Þar söltuðum við áfram í tunnur fyrsta sumarið, bæði hausskorna og heila sfld og var aflanum skipað upp á Fá- skrúðsfirði. Hver túr tók um það bil hálfan mánuð og þessi veiði- skapur gekk alveg sæmilega þrátt fyrir að þetta væri erfið vinna því báturinn var ekki nema 305 tonn og gátum við ekki saltað í nema um 900 tunnur í hverri ferð.“ Ævintýrið byrjar „Það er svo í raun ekki fyrr en vorið 1970 sem ævintýrið í Norð- ursjó byrjar fyrir alvöru. Við höfð- um haft góðan afla þarna sumarið áður og landað heima en nú hófust viðskiptin við Danina því íslensku bátarnir lönduðu fyrst og fremst í Hirsthals og Skagen. Oft var mikill handagangur í öskjunni því aðeins íslensku bátarnir voru um 40-50 talsins þegar mest var. Þetta minnti dálítið á þá gömlu góðu tíma þegar síldin óð hér við land og var vissulega ánægjuleg tilbreyting frá aflaleysinu 1968, en þá var síð- ast gert út á síld fyrir Austurlandi. íslensku bátarnir fóru í Norð- ursjóinn í maímánuði eftir að loðnuvertíð lauk og voru þarna niðurfrá allt fram undir jól. Mönn- um líkaði almennt vel á þessum bátum; bækistöðvar voru í Dan- mörku og kaupið var ágætt hjá skipverjum enda góð veiði yfir- leitt. Talsvert var um mannaskipti eins og gengur og fyrst og fremst voru það fjölskyldumennirnir sem fóru heim öðru hverju. Þarna vorum við fram til ársins 1974 að svo var gengið að síldar- stofninum að ákveðið var að loka á allar veiðar. Þar með hurfu ís- Atlas Fischfinder Top quality made for your suc< Hin nýja kynsióð Atfas fiskiieitartækja er hönnuö fyrir nútíma fiskveióar. • Með einstakri samsetningu á háþróuðum iitaskjá, ásamt þurrpappírs og iita A-skópÍ, fást fram ómetanlegar upplýsingar. • Möguleiki á tveim tíðnum i noíkun samtímis á skjánum tii betrí greiningar. Fáaniegar tiðnir eru 33/66 kHz og 100/210 kHz aiit að 8KW sendiorka. • Mismunandi stækkunarmöguieiki, bæði á skjá, pappir og A-skópi. • Græn fina og grá lína til aðgreíningar á fiski fast við botn. • Litaskjáinn er hægt að tengja við aiiar gerðir Atias dýptarmæia og fiestar aórar gerðir. • Atias PZT botnstykkín gefa betrí úrvinnsiumögu- leíka á uppíýsíngum. • Óumdeiianiegur áreióanieiki og ending. Er fáaniegur i eftirtöidum útgáfum: Atlas dýptarmælir 722/782 með tveim tíónum og nýjum kraftmikium sendi. Atias djúpsjávarmæiir 792 DS með hinu nýja haiia stýrða botnstykki, sem hefur 6° x 8° eöa 6° x 4° geisla breidd og 51 sendiaugu. Atias höfuóiinumæiir 872, sem hefur niður/upp geisla hitaiínu og afimæia. Afkoma sjávarutvegs er byggð á breytiiegum fiskveið- um og hagkvæmni i rekstri. Atias fiskiieitartæki eru hönnuð til að standast þessar kröfur. GÆÐIN ERU LYKILL AÐ VELGENGNi. /ÍSMUrN Rafeindaþjónustan ÍSAAMR hl Siðumúli 37 — 121 Reykjavik Símar 688744 - 688767 lensku bátarnir til síns heima enda hafði landhelgin þá verið færð út og fleiri tækifæri sköpuðust fyrir okkur á heimamiðum. Mestur var aflinn árið 1971 og einnig var hann allgóður árið eftir“. Allt sett í kassa „Þessi afli sem við lönduðum á Jótlandi var allur ísaður í kassa og seldur á uppboðsmarkaði þar. Mikið af honum fór beint til frek- ari verkunar í Danmörku en einnig voru kaupendur margir í Þýska- landi, Hollandi og eflaust víðar. Þessi verkunaraðferð var tals- vert ólík því sem við áttum að venj- ast en með þessu móti fékkst mun meira fyrir aflann en ef hann fór í salt eða bræðslu. Þess vegna var verð allgott og afkoman eftir því. Hins vegar voru sveiflur í verðinu enda um uppboðsmarkað að ræða og framboð og eftirspurn ekki alltaf í jafnvægi. Þessi síld í Norðursjónum var talsvert öðruvísi en sú sem við höfðum áður veitt hér við Islands- strendur. Hún var heldur smærri og mun viðkvæmari enda sjórinn hlýrri og því þoldi hún verr með- höndlun. Uppboðsmarkaðurinn gerði það hins vegar að verkum að menn urðu að vanda sig mjög því léleg síld lenti einfaldlega í lakari verðflokki“. Tíminn úti í Hirtshals Jóhann var um tíma umboðs- maður fyrir Landsamband ís- lenskra útvegsmanna í Danmörku og var þar til aðstoðar íslensku bát- unum í Norðursjó. „Þetta var ágætur og eftirminni- legur tími. Ég tók við þessu af Bjarna Lúðvíkssyni og var í Hirts- hals sumarið 1971. Mitt starf var einkum fólgið í reddingum fyrir strákana því ýmislegt kom upp á úti á sjó sem leysa þurfti í landi. Þeir höfðu samband við okkur og maður sá til þess að varahlutir væru tilbúnir þegar bátarnir komu inn til löndunar. Hér var um upp- gripaveiði að ræða þannig að tím- inn var dýrmætur og því varð mað- ur stundum að hafa sig allan við til að bjarga málum. Hins vegar skiptum við okkur ekkert af söl- unni á markaðina og voru menn algerlega frjálsir að því að selja afl- ann þar sem þeim leist best á. Eins og ég sagði áðan héldu flestir sig við Hirtshals og lítillega Skagen en eflaust hafa menn gert tilraunir annars staðar líka. Þarna úti kynntist ég Nils Jensen sem nú er konsúll okkar í Hirtshals og margir íslenskir sjómenn þekkja. Hann stofnaði síðar út- gerðarfyrirtæki og hefur um nokk- urra ára skeið haft mikil samskipti við íslenska loðnubáta sem landa á þessum slóðum". Alltaf á nótaveiðum „Það má eiginlega segja að á þessum árum hafi íslensku bátarn- ir verið á nótaveiðum allan ársins hring. Menn fóru á síldina í maí og voru fram í janúar en þá tóku við loðnuveiðar sem stóðu óslitið fram á vor. Þegar síldveiðin í Norðursjó brást jukust loðnuveiðarnar mjög mikið og stóðu gjarnan frá því í byrjun júlí og fram í mars-aprfl ár- ið eftir. Það var svo ekki fyrr en um 1980 sem skrúfað var fyrir loðnuna en þá voru komnir til aðrir mögu- leikar. Með útfærslu landhelgi strand- ríkja má segja að hafi orðið þátta- skil í öllum okkar veiðiskap og að nánast hafi verið lokað fyrir allar veiðar okkar á fjarlægum miðum. Við lokuðum okkar heimamiðum og urðum þá auðvitað að sæta því sama hjá öðrum. Þá kom einnig til að víða voru miðin algerlega upp- urin og í því sambandi vil ég sér- staklega nefna Nýfundnalands- miðin. Þangað fórum við með Hilmi sumarið 1974 samkvæmt sér- stöku leyfi frá Kanadastjórn. Rússnesku verksmiðjutogararnir höfðu verið þarna um langan tíma og hirt hvert kvikindi. Enda náð- um við engu þetta sumar; fiskurinn var einfaldlega allur á bak og burt. Þessi veiðiskapur er hins vegar dæmi um það sem ég tel að sé liðin tíð. Menn hafa sem betur fer áttað sig á því að sjórinn er ekki óþrjót- andi auðlind. Að vísu hefur skip- um fækkað mjög mikið á okkar miðum en á hitt er svo að líta að skip eru orðin fullkomnari og öll veiðarfæri og hjálpartæki hafa tek- ið miklum framförum. Við þurfum því að hyggja að í tíma því á hverju eigum við að lifa ef fiskurinn í sjón- um bregst?“, sagði Jóhann Anton- íusson að síðustu. -vh. Hilmir SU eldri, sem Jóhann gerði út á sfldveiðar í Norðursjónum.

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.