Fiskifréttir


Fiskifréttir - 18.12.1987, Page 47

Fiskifréttir - 18.12.1987, Page 47
föstudagur 18. desember Eldey hf. Vörn snúið í sókn? — íhuga kaup á Arnarnesi ÍS ef kvóti fæst hækkaður, en skipið var áður gert út frá Suðurnesjum Hið nýstofnaða útgerðarfélag á Suðurnesjum, Eldey hf. hefur að undanförnu kannað möguleikana á því að kaupa rækjutogarann Arnarnes IS. Skipið er til sölu en sá böggull fylgir skammrifi að heldur hefur kvistast af kvóta þess síðan skipið hét Ingólfur GK og var gert út á heðbundnar bolfiskveiðar hjá ísstöðinni hf. í Garði. Forsvarsmenn Eldeyjar hf. hafa talsverðan áhuga á Arnarnesinu en skipið verður þó ekki keypt nema vilyrði fáist fyrir því hjá stjórnvöldum að kvótinn verði hækkaður og verði helst sambæri- legur við það sem skip af þessari stærð hafa í dag. Á meðan nýtt kvótafrumvarp hefur ekki verið samþykkt eru hendur stjórnvalda bundnar en margir telja þó að það verði torsótt fyrir Suðurnesja- menn að fá kvótann hækkaðan vegna þess fordæmis sem það gæti gefið. Arnarnesið er smíðað 1961 í Bretlandi og hét upphaflega Bost- on Welvalle. Togarinn strandaði við Arnarnes í ísafjarðardjúpi á sínum tíma en komst síðan í eigu Stálskipa hf. í Hafnarfirði og hét þá Rán. Síðan eignaðist Isstöðin í Garði skipið og skírði það Ingólf en Ingólfur var síðasti síðutogar- inn sem gerður var út hér á landi. Eftir að Niðursuðuverksmiðjan á ísafirði tók við Arnarnesinu var því breytt í frystiskip og hefur síð- an verið gert út á djúprækju. Það þótti táknrænt á sínum tíma er ísfirðingar „endurheimtu" Arn- arnesið en á sama hátt mætti segja að það væri táknrænn sigur fyrir Eldey hf. ef Arnarnesið yrði keypt til Suðurnesja, því með því móti væri verið að endurheimta einn af togurunum sem seldir hafa verið af svæðinu á undanförnum árum. Með því móti sneri Eldey hf. vörn í sókn á eftirminnilegan hátt. Arnar Sigurmundsson (t.v.) ásamt Soffaníasi Cecilssyni fráfarandi for- manni. Arnar kjörinn formaður Á aðalfundi Sambands fisk- vinnslustöðvanna sem haldinn var í Reykjavík nýlega var Arnar Sig- urmundsson kjörinn formaður sambandsins í stað Soffaníasar Cecilssonar. Á aðalfundinum var samþykkt ályktun þar sem vakin er athygli á því að stórhækkað raungengi krónunnar hafi fært fjármuni frá útflutningsframleiðslunni til ann- arra greina atvinnulífsins og sé nú svo komið, að fiskvinnslan sé rekin með sívaxandi halla. Því sé full- komlega óskiljanlegt að ríkistjórn- in stefni að því að skerða enn rekstrarafkomu sjávarútvegsins með því að hætta endurgreiðslu uppsafnaðs söluskatts, sem allar aðrar útflutningsgreinar njóti, og samtímis að skattleggja launa- greiðslur en því hafi verið hætt fyrir ári. Þá segir, að gengisfall dollarans sé sameiginlegt áfall allrar þjóðar- innar og ef það sé raunverulegur ásetningur stjórnvalda að halda gengisskráningu íslensku krón- unnar óbreyttri við núverandi að- stæður, þá verði stjórnvöld að grípa til róttækra aðgerða í pen- inga- og efnahagsmálum núna strax, í þeim tilgangi að lækka verðbólgu og bæta kjör fiskvinnsl- unnar eftir öðrum leiðum. Sendum sjómönnum, fisk vinnslufólki og fjölskyldum þeirra um land allt bestujóla- og nýársóskir Vélsmiðjan Faxi hf. Skemmuvegi 34, Kópavogi sími: 76633 Vélsmiðja Heiðars Vesturvör 26, Kópavogi sími: 42570 Sjávarfiskur hf. Melabraut 17, Hafnarfirði sími: 51779 Landvélar hf. Smiðjuvegi 66, Kópavogi sími: 76600 Bátalón hf. Hvaleyrarbraut 32-34, JHafnarfirði sími: 50520 Sjómannafélag Hafnarfjarðar Strandgötu 11, Hafnarfirði sími: 50248 H. Þorgeirsson Byggðarenda 12 sími: 688470 Hraðfrystihús Hvals hf. Reykjavíkurvegi 48, Hafnarfirði sími: 50565 Hvaleyri/Seleyri sf. Vesturgötu 15, Hafnarfirði sími 53366 Meka—Listsmiðjan Skemmuvegi 8, Kópavogi sími: 72244 Kaupfélag Hafnfirðinga Strandgötu 28, Hafnarfirði sími: 50200 Garðar Sigurðsson Stapahrauni 5, Hafnarfirði sími: 54812 Skipafélagið Víkur hf. Kársnesbraut 124, Kópavogi sími: 641277 Netagerð Jóns Holbergssonar Hjallahrauni 11, Hafnarfirði sími: 91-54949 Vélaverkstæðið Véltak hf. Hvaleyrarbraut 3, Hafnarfirði sími: 50236 /

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.