Fiskifréttir - 17.12.2004, Qupperneq 2
2
FISKIFRETTIR 17. desember 2004
SJAVARUTVEGUR
KARLINN I BRUNNI
FISKMARKAÐIR
Allir markaðir (Islandsmarkaöur) dagana 5.-11. des. 2004 (Tölur fyrir slægðan fisk eru á undan tölum fyrir óslægðan fisk) Meðal- Lægsta Tegund Magn verð verð kg kr./kg kr./kg Hæsta verð kr./kg
ÞORSKUR 259.537 183,42 58,00 251,00
ÞORSKUR 248.631 150,10 72,00 220,00
ÝSA 145.494 118,56 46,00 177,00
ÝSA 199.145 98,11 42,00 136,00
UFSI 65.030 42,98 5,00 60,00
UFSI 2.143 33,24 6,00 38,00
LÝSA 3.540 68,89 45,00 75,00
LÝSA 677 46,13 20,00 50,00
GULLKARFI ósl. 49.081 75,38 5,00 114,00
LANGA 12.517 83,55 19,00 110,00
LANGA 1.724 65,01 19,00 76,00
BLÁLANGA 4.039 55,19 24,00 78,00
BLÁLANGA 208 39,81 18,00 60,00
KEILA 52.670 50,41 21,00 89,00
KEILA 2.067 45,48 10,00 57,00
STEINBÍTUR 11.642 185,39 27,00 250,00
STEINBÍTUR 1.349 129,13 63,00 163,00
TINDASKATA 60 67,50 19,00 116,00
TINDASKATA 6.016 9,34 ,00 18,00
HLÝRI 25.971 188,86 50,00 234,00
HLÝRI 630 156,07 52,00 235,00
SKÖTUSELUR 17.175 298,64 33,00 361,00
SKÖTUSELUR 3 148,00 148,00 148,00
SKATA sl. 88 102,05 32,00 124,00
ÓSUNDURLIÐAÐ sl 142 45,00 45,00 45,00
LÚÐA 2.788 676,29 318,00 1.016,0C
LÚÐA 8 659,00 659,00 659,00
GRÁLÚÐA sl. 1.027 225,13 184,00 230,00
SKARKOLI sl. 18.874 217,71 8,00 305,00
ÞYKKVALÚRA sl. 1.515 310,05 5,00 430,00
LANGLÚRA sl. 653 97,90 75,00 100,00
STÓRKJAFTA sl. 5 7,00 7,00 7,00
SANDKOLI 3.396 65,46 5,00 79,00
SANDKOLI 181 29,00 29,00 29,00
SKRÁPFLÚRA 1.606 54,87 5,00 65,00
SKRÁPFLÚRA 287 8,82 5,00 50,00
SÍLD ósl. 20 160,00 160,00 160,00
SV-BLAND ósl. 163 83,04 47,00 93,00
GRÁSLEPPA ósl. 1 45,00 45,00 45,00
RAUÐMAGI ósl. 63 68,73 10,00 87,00
SANDHVERFA sl. 18 685,56 650,00 715,00
HROGN/ÞORSKUR 238 68,68 49,00 110,00
KINNFISK/ÞORSKU 24 579,00 579,00 579,00
GELLURsl. 530 573,95 248,00 629,00
NÁSKATA 464 34,98 27,00 40,00
NÁSKATA 4 5,00 5.00 5,00
UNDÞORSKUR 28.499 107,18 24,00 144,00
UNDÞORSKUR 16.846 87,34 45,00 102,00
UNDÝSA 7.192 76,57 28,00 91.00
UNDÝSA 9.085 66,01 20,00 87,00
LAX sl. 1.039 263,93 100,00 330,00
FLÖK/ÞORSKUR 200 595,00 540,00 700,00
HVÍTASKATA sl. 333 29,79 5,00 36,00
LIFUR 2.023 32,00 28,00 55,00
1 206.672 131,64
Auglýsingar
569 6623
„Við fengum um 400 tonn af
loðnu í tveimur hölum á föstu-
daginn og laugardagmorgun-
inn og erum nú inni á Jökul-
fjörðum að frysta loðnu,“ sagði
Maron Björnsson, skipstjóri á
Guðmundi Ólafi ÓF, í samtali
við Fiskifréttir í byrjun vikunn-
ar er hann var spurður um
veiðina á loðnumiðunum.
Maron gat þess að fyrra holið
hefði verið tekið í mjög erfiðu
veðri. „Það er ekki óskastaðan að
veiða loðnu hér. Við köstuðum í
þokkalegu veðri en það versnaði
snögglega þannig að við gátum
ekki híft. Við toguðum þvi aðeins
lengur á meðan veðrið gekk yfir
en það var svo mikil loðna á
ákveðnum bletti að trollið rifnaði.
Við náðum aðeins 200 tonnum.
Maron Björns-
son, skipstjóri
á Guðmundi
Ólafi ÓF
(Mynd: Hafþór Hreiðarsson).
Ennþá meirí óvissa en í fyrra
— i upphafi vetrarvertíðar á loðnu
Við tókum annað tog á sama
bletti og fengum 200 tonn á fimm
tímum.“
Ljóst að loðnan mælist
ekki á réttum tíma
Maron sagði að loðnan væri
ágæt til vinnslu en ómögulegt
væri að segja til um ástand loðnu-
stofnsins miðað við gang veið-
anna til þessa. Þeir hefðu að vísu
séð talsvert mikið af loðnu en að-
eins á þeim bletti sem þeir voru á.
Fá skip eru á miðunum og veðrið
er slæmt norðaustan þeirra
þannig að engir eru að leita á
þeim slóðum. „Vertíðin leggst
samt vel í mig að öðru leyti en
því að mér sýnist að stjórn veið-
anna ætli að fara nákvæmlega í
sama far og í fyrra. Það tókst ekki
að mæla stofninn í haust og mér
sýnist að við ætlum að fara inn í
þessa vertíð með jafnvel enn
meiri óvissu en í fyrra. Mín skoð-
un er sú að okkur takist bara ekki
að mæla neina loðnu fyrr en kom-
ið er langt fram í febrúar og þá er
vertíðin búin. Ég held að það sé
hverjum manni ljóst að ef við ætl-
um að reyna að lifa á þessari
grein þarf að setja fastan loðnu-
kvóta og fara varlega í þeirri tölu.
Það má þá auka við kvótann ef
mikið magn mælist"
Mátti leita betur á
norðaustursvæðinu
Fram kom hjá Maroni að þrátt
fyrir að farið hefði verið yfir
þokkalega stórt leitarsvæðið í
haust hefði samt mátt gera betur.
„Talsvert svæði djúpt norður og
norðaustur af landinu var skilið
eftir. Ég er óhress með það. Skipin
höfðu sum hver nógan tíma til að
halda leitinni áfram. Þau þurftu
ekki að flýta sér í land. Að þessu
sinni fengu leitarskipin ágæta
greiðslu en hvert skip fær tvo
loðnutúra fyrir viðvikið. Það er
eðlilegt að greiða þeim fyrir leitina
enda ekki hægt að vera hálfan
mánuð á sjó og fá ekkert fyrir það.
ekki ljóst hvað mátti veiða fyrr en
23. febrúar. Ég segi því að það eigi
að setja strax á 500 þúsund tonna
kvóta og ekki seinna en fyrir ára-
mót þannig að menn geti skipulagt
sig. Ég hef engar áhyggjur af loðn-
unni. Þótt ekki hafi tekist að mæla
stofninn er ljóst að talsvert fannst
af loðnu á stóru svæði norður með
Grænlandskantinum allt norður í
„Ég get ekki annað séð en að farsæl-
ast sé að LÍÚ taki yfir hafrannsóknir.
Útgerðarmenn stóðum straum af
kostnaði við smíði Árna Friðrikssonar
RE á sínum tíma og við ættum alveg
eins að geta annast rekstur hans.“
Vitað var að Árni Friðriksson RE
og Huginn VE voru að finna loðnu
norður á 70. gráðu og austur undir
22. gráðu. Það hefði því mátt leita
betur á norðaustursvæðinu."
500 þús. tonna kvóta
strax
— Ef gefinn verður út fastur
loðnukvóti hvað telur þú að hann
eigi að vera stór?
„Ég myndi sætta mig við um
500 tonna fastan heildarkvóta þótt
það sé reyndar lægri tala en ég hef
nefnt áður. Menn hljóta að sjá að
þetta er nauðsynlegt vegna þess að
við höfum ekki náð neinum tökum
á því mæla loðnuna fyrr en í lok
vertíðar. Við getum ekki horft upp
á það aftur sem gerðist á síðustu
vertíð þegar heilu verstöðvarnar
misstu af loðnuvertíðinni. Þá var
Scoresbysund. Þá tókst ekki heldur
að kanna stór svæði vegna íss,“
sagði Maron. Hann benti einnig á
að göngumynstur loðnunnar hefði
breyst mikið eins og reyndar
göngumynstur annars uppsjávar-
fisks eins og síldar og kolmunna.
Þessir fiskar halda sig mun norðar
en áður.
LÍÚ taki yfir hafrann-
sóknir
Maron sagði að efla þyrfti rann-
sóknir og að það væri óviðunandi
að bæði skip Hafrannsóknastofn-
unar lægju bundin við bryggju
þessa dagana. „Ég er ekki aðeins
að tala um þörfina á að rannsaka
loðnuna betur. Nú er til dæmis
gríðarlegur uppgangur í síldinni.
Við fundum fyrir þessu fyrst í fyrra
en síldin virðist hafa náð sér ennþá
betur á strik í ár. Við erum ekki að
nýta þennan stofn eins vel og
hægt er. Reyndar er það algjört
slys að ekki skuli hafa verið gef-
inn út viðbótarkvóti í síld. Þetta
ástand er til háborinnar skammar.
Ég get ekki annað séð en að far-
sælast sé að LÍÚ taki yfir haf-
rannsóknir. Við stóðum straum af
kostnaði við smíði Árna Friðriks-
sonar RE á sínum tíma og ættum
alveg eins að geta annast rekstur
hans.“
Fimm daga að veiða
tvo síldarkvóta
Maron tók fram að hann væri
ekki eingöngu að tala um rann-
sóknir á íslensku sumargotssíld-
inni. „Norsk-íslenska síldin hefur
veiðst í bland við aðra sild á ver-
tíðinni. Enginn veit hvað mikið er
af henni og þær litlu athuganir
sem gerðar hafa verið á lönduð-
um afla segja lítið. Norsk-ís-
lenska síldin gæti þess vegna ver-
ið í torfum utan við það svæði
sem síldveiðiflotinn var á. Enginn
hefur kannað þetta vegna þess að
síldveiðin var meiri en nóg á tak-
mörkuðum svæðum. Til dæmis
voru gríðarlegir síldarflekkir á
Hvalbakssvæðinu. Hjá okkur
voru veiðarnar algert aukaatriði.
Við gátum gengið að síldinni
vísri og eyddum aðeins fimm sól-
arhringum á vertíðinni til þess að
veiða tvo síldarkvóta. Það þurfti
ekki að hafa meira fyrir veiði-
skapnum en raun ber vitni. í ljósi
þess hve mikið er af síld er átak-
anlegt að horfa upp á það hvernig
rannsóknum á henni er hagað og
veiðum stjórnað,“ sagði Maron
Björnsson.
Ffski
FRETTIR
Útgefandi: Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ritstjórn: Áskrift og innheimta: Áskriftarverð fyrir hvert tölublað:
Framtíðarsýn hf. Guðjón Einarsson Sími: 569 6625 Sími: 511 6622
Mýrargötu 2 101 Reykjavík gudjon@fiskifrettir.is Fax: 569 6692 Fax: 569 6692 Greitt m. greiðslukorti: 371 kr/m.vsk Greitt m. gíróseðli: 421 kr/m.vsk
Skip.is - fréttavefur Fiskifrétta
Ritstjórnarfulltrúi: Kjartan Stefánsson Sími: 569 6624 Eiríkur St. Eiríksson Sími: 569 6610 Fax: 569 6692 Lausasöluverð: 495 kr/m.vsk
kjartan@fiskifrettir.is Fax: 569 6692
Auglýsingastjóri: Hertha Árnadóttir Auglýsingar: Sími: 569 6623 Prentvinnsla: Gutenberg
hertha@fiskifrettir.is Fax: 569 6692