Fiskifréttir - 17.12.2004, Blaðsíða 44
44
FISKIFRÉTTIR 17. desember 2004
Á kolmunnaveiðum. (Mynd/Fiskifréttir: Hlynur Ársælsson).
Kolmunni 2003:
Heildarveiðin nam
2,4 millj. tonna
— Norðmenn veiddu 36% kolmunnans en íslendingar 21%
Heildarkolmunnaaflinn á
árinu 2003 nam um 2,4 millj-
ónum tonna samkvæmt loka-
tölum frá NEAFC, NA-Atl-
antshafsfiskveiðinefndinni,
sem gefnar voru út ekki alls
fyrir Iöngu. Þar af veiddu
Norðmenn langmest, eða um
850 þúsund tonn, en Islend-
ingar komu þar á eftir með
um 500 þúsund tonn.
Megnið af þessum kolmunna
veiddist á alþjóðlegu hafsvæði.
Norðmenn tóku þar mestan afla
sinn, eða um 460 þúsund tonn.
Lögsaga Færeyja gaf næst mest
eða um 550 þúsund tonn. Þar
voru Islendingar iðnir við
kolmunnann og tóku þar 220
þúsund tonn. Þriðja besta veiði-
svæðið var svo lögsaga Islands
en þar veddust 270 þúsund tonn.
Eins og að líkum lætur veiddu
Islendingar þar mest en Færey-
ingar voru þar einnig drjúgir.
Þeir veiddu þriðjung heildarafla
síns í kolmunna í íslensku lög-
sögunni. I lögsögu ESB veidd-
ust svo um 305 þúsund tonn
Eins og sést á meðfylgjandi
skýringarmyndum veiddu Norð-
menn 36% kolmunnaaflans á ár-
inu 2003 og íslendingar 21%.
Rússar eru í þriðja sæti með
15%. Þá má benda á að íslenska
lögsagan gaf um 16% af
kolmunnaaflanum á árinu 2003
en alþjóðlega hafsvæðið gaf um
35%.
Ekki liggja fyrir tölur um hvað
kolmunnaaflinn er orðinn mikill á
þessu ári enda eru ýmsar þjóðir að
veiða kolmunnann ennþá, þar á
meðal íslendingar. Allt stefnir þó í
að heildaraflinn verði meiri í ár en
hann var í fyrra. Norðmenn hafa
Kolmunnaafli eftir
lögsögum 2003
Heimild: NEAFC
a.m.k. ekki veitt minna í ár en í
fyrra. Afli íslenskra skipa var hins
vegar um 417 þúsund tonn nú um
miðja vikuna. Ljóst er að þau slá
ekki metið frá því í fyrra þótt kvót-
inn sé nægur þar sem fáir dagar eru
enn eftir af veiðiárinu.
Kolmunnaafli eftir
veiðiþjóðum 2003
Kolmunnaaflinn eftir þjóðum og veiðisvæðum 2003
Þjóó Alþjóðl. hafsvæði Lögsaga ESB Lögsaga Lögsaga Færeyja ÍSLANDS Lögsaga Noregs Lögsaga Svalbarða Samtals
Noregur 465.194 122.046 37.740 0 226.416 0 851.396
ÍSLAND 8.690 0 223.411 269.352 41 0 501.494
Rússland 188.131 0 119.660 0 17.322 34.395 360.160
Færeyjar 32.759 47.091 149.566 100.472 5.416 200 335.504
ESB 136.454 136.759 15.964 0 17.945 414 307.536
Pólland 297 0 0 0 0 0 297
Samtals 832.131 305.896 546.341 369.824 267.140 35.009 2.356.387
(Heimild: NEAFC)
Norðmenn hættir
síldveiðum
Síldarvertíð Norðmanna er
Iokið þetta árið. Reyndar eru eft-
ir um 500 tonn af togarakvótan-
um en ekki er talið líklegt að far-
ið verði eftir því magni því það
skiptist á milli margra skipa.
Skip.is greinir frá.
Eitt af síðustu skipunum, sem
fengu síldarafla á vertíðinni, var
togarinn Skudetrál sem var með
125 tonna afla. Þar með var afli
norskra skipa á vertíðinni orðinn
rúmlega 470 þúsund tonn. Togar-
inn fékk aflann í Vestfjorden og
fengust rúmar 50 ísl. krónur fyrir
kílóið á uppboðsmarkaði Norges
Sildesalgslag. Meðalvigtin á síld-
inni var 330 grömm og fóru um
70% aflans í stærsta flokkinn.
Að sögn vefsíðu IntraFish fer
Skudetrál nú á kolmunnaveiðar í
Norðursjó áður en áhöfnin fer heim
í jólafrí.
Tvöfalt verð
fyrir aflann
— í Skotlandi miðað við Færeyjar
Færeyska línuskipið Jákup B
er nú í Scrabster í Skotlandi en
þar fæst nú tvöfalt verð fyrir afl-
ann miðað við fiskverðið í Fær-
eyjum. Þá er ódýrara að landa í
Scrabster en í Færeyjum en á
móti kemur kostnaður við að
sigla með aflann að því er fram
kemur á Skip.is.
Rætt er við Grím Larsen, útgerð-
armann Jákup B, á vefsíðunni
Norðlýsið og þótt ekki sé greint frá
því hve mikinn afla skipið er með
þá segir að 70% aflans sé ýsa en
annar afli er þorskur, langa og
keila. 13 manns eru í áhöfn og var
Grímur sjálfur skipstjóri í veiði-
ferðinni en flestum skipverjum var
gefið frí áður en haldið var til
Skotlands. Afleysingarmennirnir
eru nokkuð við aldur og t.a.m. er
vélstjórinn 87 ára og annar í áhöfn-
inni er 78 ára.
Viking Enterpris í slipp í Reykjavík fyrir brottförina.
Viking Enterprise:
Kominn í
Kyrrahafið
Frystitogarinn Viking Enter-
prise, sem seldur var frá Islandi
til vesturstrandar Kanada fyrr í
vetur, fór í gegnum Panana-
skurðinn um sl. helgi og er hann
nú staddur á Kyrrahafi.
Siglingin frá íslandi hefur tekið
sinn tíma og er Viking Enterprise,
sem áður hét Kristinn Friðriksson
SH og þar áður Geiri Péturs ÞH,
ekki væntanlegur til Vancouver í
Kanada fyrr en 28 desember nk. að
sögn Þórarins Guðbergssonar hjá
Álasundi ehf. sem sá um sölu
skipsins. Vonast hafði verið til þess
að togarinn yrði kominn heim fyrir
jól. Skip.is greindi frá.