Fiskifréttir - 17.12.2004, Blaðsíða 13
FISKIFRETTIR 17. desember 2004
13
VEIÐAR
strax farinn að sjá um útgerðina á
Guðnýjunni sem hann gerði síðan
út í fjölda ára. Jói Sím var stýri-
maður og Þórir Þórisson var annar
vélstjóri. Þarna voru líka Rafn
Oddsson og Ragnar Aki Jónsson.
Svo var ég um tíma stýrimaður á
Ásúlfi hjá Jóa Sím.
Ég fór mjög ungur á vélstjórnar-
námskeið því að ég var að hugsa
um að verða vélstjóri. Seinna tók
ég meirapróf til að hafa einhver
réttindi ef maður hætti á sjónum.
Á þessum árum þegar ég var ung-
lingur var hugsunin einhvern veg-
inn sú að menn ættu strax að fara
að vinna og skólamenntun skipti
engu máli. Auðvitað sér maður í
dag að menntun skiptir máli. Að
vísu er ég ekki á því að menntunin
sé allt. Núna er alltaf verið að
segja að allir eigi að mennta sig
einhver lifandis ósköp og helst all-
ir eigi að fara í háskóla. Það er eins
og enginn eigi að vinna í frum-
greinunum. En maður sem er mik-
ið menntaður og með miklar
skuldir en fær ekki vinnu - ég sé
ekki gagnið í langskólagöngu í
þeim tilfellum. Við erum að fá til
okkar fullt af hámenntuðu fólki
víða úr heiminum sem er að vinna
hér störf sem íslendingar vilja ekki
vinna. Nei, langskólagangan er
ekki allt.“
í útgerð meira en
fjörutíu ár
Konráð tók snemma 30 tonna
skipstjórnarréttindin til viðbótar
við vélstjórnarréttindin. Síðan fór
hann í Stýrimannaskólann veturinn
1964-65 og tók minna fiskimanna-
prófið. Sjálfur byrjaði hann í út-
gerð árið 1962 og hefur verið í
henni nánast óslitið síðan eða
meira en fjörutíu ár.
„Upphafið var þannig að við
keyptum fjórir saman bát, Guð-
mundur tengdafaðir minn, Tryggvi
mágur minn, Jón Hjörtur Jóhann-
esson svili minn og ég. Báturinn
sem við keyptum var Gissur hvíti
og við vorum á línu. Ég var ekki
með hann fyrst en tók fljótlega við
honum. Þá var nú þungt að gera út,
maður! Þegar búið var að borga
beituna og olíuna og borga mann-
skapnum og annan kostnað, þá var
orðið lítið eftir. Nánast ekkert.
Karlinn tengdapabbi tók aldrei
kaup þó að hann væri að vinna við
þetta í öllum frítímum, hann vann
annars staðar, en það var reynt að
láta okkur hina hafa eitthvað. Sá
sem átti flesta krakkana fékk mest.
Það var ekki bjart yfir útgerð á
þeim tíma og ég horfði svolítið til
hrefnuveiða. Lárus Sigurðsson í
Hnífsdal átti hrefnubyssu sem hann
hafði keypt af Hrefnu-Gesti. Við
fengum byssuna hjá Lárusi en hún
var aldrei sett á Gissur hvíta fyrr en
eftir að ég var búinn að selja minn
hlut í honum.
Haustið 1969 kaupi ég bát í fé-
lagi við Olaf Halldórsson, bróður
Sturlu yfirhafnarvarðar á ísafirði.
Þá hætti ég sem skipstjóri á Hrönn-
inni sem ég hafði verið með árin á
undan. Við Olafur vorum búnir að
Konráð Eggertsson sautján ára gamall þegar
hann var með Dóra Hermanns á Guðnýjunni.
Úr ferð norður á Hornstrandir fyrir mörgum árum. Hér sést aftan á hausinn á Konráð
Eggertssvni sem hefur verið að segja eitthvað sem þeir Halldór Hermannsson úr Ögur-
nesinu, Ásgeir heitinn Sigurðsson frá Bæjum á Snæfjallaströnd og Arnór Stígsson frá
Horni hafa kunnað að meta.
vera saman með fiskverkun en síð-
an vorum við saman í útgerð í
mörg ár og líka í rekstrinum á
Brjánslæk á Barðaströnd. Ólafur
heitinn var einhver besti maður
sem ég hef kynnst á lífsleiðinni.
Alveg sérstakur maður.
Báturinn sem við Ólafur keypt-
um var Halldór Sigurðsson sá
fyrsti í röðinni, 17 tonna bátur
byggður 1912. Við keyptum hann
óséðan frá Hofsósi. Þar var kall
sem skoðaði hann fyrir okkur og
svo var bara komið með hann. Bát-
urinn hét Haraldur Ólafsson þegar
við keyptum hann. Áður hét hann
Framtíðin og var búinn að standa í
mörg ár í slipp hér á ísafirði. Bát-
urinn var þá orðinn svo lélegur og
siginn að kjölurinn var genginn
upp í hann. í einhverri atvinnu-
bótavinnu hafði Marzellíus Bern-
harðsson tekið þennan bát og end-
urbyggt hann og selt hann til Hofs-
óss.
,,Svo fór að við skil-
uðum inn grásleppu-
leyfinu og fengum
hrefnuleyfi í staðinn11
Þetta var fyrsti báturinn af
þremur með nafninu Halldór Sig-
urðsson sem ég hef átt og gert út
um dagana, fyrst í félagi við Ólaf
Jlalldórsson og síðan í félagi við
Gumma son minn. Nafnið Hall-
dór Sigurðsson er nafnið á Hall-
dóri skipstjóra föður Ólafs og
skráningarnúmerið á öllum bátun-
um þremur hefur verið IS-14.
Halldór hafði verið með þetta
númer á Vébirninum, einum af
Samvinnufélagsbátunum frægu á
Isafirði. Þegar Geiri Bjartar sem
hafði verið lengi með IS-14
heyrði að báturinn okkar Ólafs
ætti að heita Halldór Sigurðsson,
þá sagði hann: Það er ekki hægt
að láta hann heita þetta nema hafa
IS-14 á honum, þið fáið númerið.
Þá var eitthvert millibilsástand
hjá Geira og hann var með númer-
ið innlagt.
Við misstum þennan bát fyrir
rest þegar hann rak upp vestur á
Brjánslæk. Þá fór Óli út úr útgerð-
inni en Guðmundur strákurinn
minn kom inn í hana með mér í
staðinn. Þá keyptum við Halldór
Sigurðsson númer tvö sem núna er
Valur í Súðavík. Við feðgarnir höf-
um verið saman í útgerðinni síðan
1985 og stundað sjóinn saman.
Guðmundur var reyndar búinn að
HJALLAHRAUNI 2 • 222 HAFNARFIRÐI • SÍMI: 555 1027 • FAX: 565 2227 • CLEOPATRA@TREFJAR.IS • WWW.TREFJAR.IS
TREFJAR ehf.
15 BRÚTTÓTONN
11.9 BRÚTTÓRÚMLESTIR
«TREF|AR
YIÐ ÓSKUM ÚTGERÐ