Fiskifréttir - 17.12.2004, Qupperneq 39
38
FISKIFRÉTTIR 17. desember 2004
LUÐUVEIÐAR AMERIKUMANNA
Guð minn góður,
eins og veturínn
sé skollin á
— litið í skipsbók skonnortunnar Concord í íslandsferð árið 1890
Skonnortan Concord var eitt þeirra skipa frá Gloucester sem sigldi
flestar ferðir til að veiða lúðu á íslandsmiðum á árunum 1884-1897.
Eins og fram kemur í viðtalinu hér að framan við Jóhann Diego
komst hann yfir dagbók sem Alex D. Bushie, stýrimaður á Concord,
hélt þegar skipið var hér að veiðum á árinu 1890. f dagbókinni lýsir
Alex háskalcgri siglingu á milli Bandaríkjanna og íslands, lúðuveið-
um hér við land við erfið skilyrði, lífinu um borð og samskiptum við
íslendinga.
Hér á eftir verður gripið niður í
valda kafla í dagbókinni og í end-
ursögninni er stuðst við íslenska
þýðingu Jóhanns Diego. Skipstjór-
inn á Concord er langafi Jóhanns
eins og fram er komið, John
Baptiste (Dugas) Duguo, og er
hann yfirleitt nefndur gamli mað-
urinn í bókinni.
... ekki annað en
umtalið eitt
Concord leggur af stað frá
Gloucester miðvikudaginn 26.
mars árið 1890 og dagbókin hefst á
þessum orðum: „I dag er brottfar-
ardagur og við siglum af stað
klukkan ellefu þennan morgun."
Skömmu síðar segir: „Framundan
er löng sigling og yfir úfið úthaf að
fara. I áhöfn okkar eru aðeins níu
menn. Hinn helmingur áhafnarinn-
ar bíður komu okkar á íslandi því
þangað er för okkar heitið. Þar ætl-
um við að stunda lúðuveiðar í sum-
ar.“ Færslu dagsins lýkur með
trega: „Allt er hljótt um borð og
það vomir einsemd yfir mann-
skapnum. Menn vita sem víst er að
bráðum verða þeir ekki annað en
umtalið eitt heima hjá stúlkunum
þeirra."
Störfin um borð
A leiðinni til íslands hrepptu
þeir á Concord ýmis veður en að
mestu leyti gekk siglingin vel. Alex
lýsir einkum veðri og vindum í
dagbókinni en einstaka sinnum
bregður hann upp myndum af líf-
inu um borð. Þannig segir til dæm-
is strax fimmtudaginn 27. mars: „í
gærkvöldi, svona á milli klukkan
átta og tíu, tókum við þrír okkar í
spiL.Við gerðum það bara svona
til að drepa tímann. Þá spiluðum
við nokkurs konar póker. Ég náði
af þeim heilum dollar og þrjátíu
sentum.“
Ekki virðast störfin um borð
vera mikil önnur en að fylgjast
með rá og reiða. Eitt af skyldustör-
funum á útleiðinni er að huga að
veiðarfærum. Sú vinna hefst á
fimmta degi siglingarinnar: „Þegar
morgunverðinum var lokið fórum
við að setja öngla á tauma. Það eru
okkar fyrstu verk er lúta að veiðar-
færum sem við allir tökum þátt í.
Þar er mikið verk óunnið og þarf
því helst að vera lokið áður en við
tökum land á ný. En okkur entist
ekki langur tími við önglana að
þessu sinni. Klukkan tíu slitnaði
framstagið af frammastrinu. Um
leið skemmdist málmbaulan með
staglykkjunum sem mastursstögin
eru fest við fremst á bugspjótinu.“
Hnísur og borgarís
Föstudaginn langa bar upp á 4.
apríl. Þá taka þeir eftir því að all-
stór hópur af hnísum er á svamli
allt í kring um skipið. „Korteri
seinna erum við búnir að ná einni
þeirra inn á skipsdekkið. Hún var
temmilega stór. I dag er föstudag-
urinn Iangi og því hátíðisdagur um
borð. I formiðdaginn dunduðum
við okkur við að flá hnísuna.
Gamli maðurinn hirti allt lýsi sem
hann gat náð úr dýrinu. Lyktin af
henni var sérlega megn og óþægi-
leg. Lifrin og hjartað bragðast
mjög vel, eru nánast eins og úr
svíni. Kjötið er hins vegar ósköp
seigt.“ Sama dag er skrifað í dag-
bókina: „...við höfðum haft borg-
arís í sjónmáli allan tímann. Nú
skríðum við allnærri meðfram ein-
um slíkum. Vindur er hægur af
vestri. Ég verð því fegnastur þegar
við verðum lausir við þessa „köldu
gæja“. Það fer hrollur um mig því
mér líkar engan veginn að þurfa að
sigla svona innan um þá.“ Þess má
geta að Concord var þá stödd á
siglingarleið sem Iiggur litlu norð-
ar en sá staður sem risafarþega-
skipið Titanic sökk eftir árekstur
við borgarísjaka með hörmulegum
afleiðingum í aprílmánuði rúmum
tveimur áratugum síðar.
Fuglaveiðar á Þingeyri
I birtingu föstudaginn 11. apríl
sjá þeir Látrabjargið teygja sig upp
úr haffletinum. Ferðin hafði gengið
vel og tók hún þá ekki nema sextán
daga. Daginn eftir eru þeir komnir
inn á Dýraijörð. Þegar þangað er
komið segir Alex að fyrsta verk
gamla mannsins hafi verið að setja
niður eina doríu og bregða sér á
fuglaveiðar. Skaut hann þrettán
fugla, líklega æðarfugl. Síðan seg-
ir: „Litli Jón, eins og við köllum
hann, kom um borð ásamt tveimur
öðrum mönnum. Hann hefur verið
með okkur í mörg ár og gert það
gott. Gamli maðurinn gerði upp
við hann 108 króna mismun sem
rétti af hlut hans frá því í fyrra.“
Hann segir einnig frá því að þeim
hafi borist fréttir um að veturinn
hafi verið harður á íslandi. Vænt-
anlega eru þeir spenntir að koma
sér á veiðar en þeir fara sér samt að
engu óðslega. Fleiri skip eru kom-
in og þeir verða að bíða eftir því
nokkra stund að komast að bryggju
hjá Gramsversluninni á Þingeyri.
Drykkja og bindindi
Skipstjórinn fer í land sunnu-
daginn 13. apríl og færir tveimur
mönnum hjá Grams versluninni
gjafir, skó, skyrtu og húfu. „Við
fórum einnig í landi um stund í
gærkvöld," segir Alex síðan í dag-
bókinni. „Við vorum svo komnir
aftur um borð um níu og vorum
allir allsgáðir. Þrír af strákunum
sóru þess eið að taka ekki sopa í
þessari veiðiferð. Ég og sá gamli
erum þeir einu sem megum taka
sjúss um borð þegar okkur lystir.
Það gerum við þó aðeins ef það er
viðeigandi. Ég vona bara að strák-
arnir geti staðið við sitt og haldi
sig frá víni í sumar því þá verður
allt svo miklu léttara og betra. Á-
höfn Nelsons var ansi vel slompuð
allan daginn í gær. í gærkvöld þeg-
ar þeir áttu að vera að lesta salt um
borð voru aðeins fimm eða sex
menn við vinnu. Hinir voru að
drekka og slæpast."
Ef enginn kjaftar frá
er ekkert að óttast
Mánudaginn 14. apríl eru allir
úr islensku áhöfninni komnir um
borð. Þann dag er einnig dregið um
á hvaða doríum þeir eiga að vera en
einn Islendingur er á hverri doríu.
Vegna veðurs dregst nokkra daga
að unnt sé að halda til veiða. Þeir
leggja loks af stað en þurfa að
krussa til baka og leita vars inni á
Dýrafirði. Meðan þeir bíða færis
fer gamli maðurinn aftur á veiðar, -
og hann skýtur æðarfugl sem var
þá eins og nú ólöglegt. Þessu er
lýst þannig: „Þegar klukkan var
nær ijögur hafði veður létt svo að
sá gamli fór ásamt tveimur Islend-
ingum á skytterí. Það er æðarfugl
um allan sjó en hann má alls ekki
veiða. Tíu króna sekt liggur við
þegar slíkt veiðibrot er frarnið í
fyrsta skipti. Hins vegar er sektin
100 krónur þegar brotið er framið í
þriðja sinn og að auki eru skotvopn
og skotfæri gerð upptæk. En ef
enginn er til að kjafta frá þá er ekk-
ert að óttast. Ég held líka að bráðin
verði að finnast, í það minnsta fið-
ur eða fjaðrir, ef bera á sök á ein-
hvern.“
Veslings heimamennirnir
Mánudagur 21. apríl eru þeir
komnir aftur út en þurfa enn að
leita vars og að þessu sinni inni á
Skutulsfirði. Þar lágu þegar við
festar tvær aðrar amerískar
skonnortur, J.W. Bray og Comm-
onwelth. Miðvikudaginn 23. apríl
fara þeir í land á ísafirði. „Það sem
okkur fannst eftirtektarverðast að
sjá var allur sá fjöldi skipverja af
öðrum skipum sem ráfaði um í
reiðileysi. Margir þeirra voru út úr
drukknir. Vesalings heimamennirn-
ir sem þarna búa. Þeir hljóta að líta
á amerísku sjómennina sem æði ó-
vægna rusta. Þannig koma þeir
sem eru mest áberandi - og það eru
flestir þeirra sýnist mér - fyrir sjón-
ir innfæddra. Eitt er þó víst. Eng-
inn úr okkar áhöfn á hlut í svona
hegðun. Okkur blöskraði svo mjög
að sjá þetta að við drifum okkur
sem skjótast um borð aftur og sett-
umst enn að spilum."
Alex minnist sáralítið og svo til
ekki neitt á íslensku strákana um
borð allt sumarið. Hann hrósar á
einum stað ungu mönnunum fyrir
hvað þeir eru duglegir að læra
enskuna. Hann getur þess einnig að
íslendingarnir kunni ljöldann allan
af spilum, álíka mörg og Amerík-
Upphafssíða skipsbókarinnar
sem Alex D. Bushie skrifaði í ís-
landsferðinni 1890.
anarnir, og þeir séu fljótir að læra
þeirra spil.
Selur innfæddum vað-
stígvél og olíugalla
Föstudaginn 25. apríl er loksins
komið blíðskapar veður, hægur vind-
ur og sólskin. Það er stór floti fiski-
skipa frá ýmsum þjóðum sem leggur
úr höfn frá Isafirði þennan morgun.
Á meðan áhöfnin á Concord gerir
klárt til brottfarar þennan morgun
skýst gamli maðurinn á land til að at-
huga hvort hann geti ekki selt inn-
fæddum stígvél eða olíugalla. Hann
er með mikinn vaming til að selja.
Hann selur 12 pör af stígvélum.
Concord fer síðan út og nemur stað-
ar um fimmtán mílur frá landi. Alex
segir í bókinni að austurhöfða ísa-
fjarðardjúps hafi þá borið í austsuð-
austur frá þeim. Akkeri þeirra liggur
á níutíu faðma dýpi og þeir kalla
þetta svæði Ræsið. Þeirra fýrsta verk
er að gera tvö handfæri klár til að
veiða þorsk í beitu. Lítið gerði þorsk-
urinn þó vart við sig. Þeim tekst að-
eins að innbyrða tólf fiska.
Fengu sextíu lúður
í fyrstu lögn
Eftir þessa bræludaga er það
sem sagt fyrst laugardaginn 26.
apríl sem allt er gert klárt, nokkrar
doríurnar settar niður og fyrstu lín-
urnar lagðar. „Þegar klukkan var
svo um fjögur í eftirmiðdaginn rér-
um við aftur út til að draga línuna.
Áður en við ýttum frá sagði gamli
maðurinn að það væri gott ef við
fengjum nægan fisk til að beita lín-
una á ný og þá fyrir allar doríurnar.
Okkur tókst þetta og gott betur. Við
drógum sextíu góðar lúður og nóg
af öðrum fiski í beitu til viðbótar
og það allt góðan fisk,“ segir Alex
en hann getur þess ekki hvað lúð-
urnar eru þungar en miðað við að
meðalþyngdin hafi verið 70-80
kíló má ætla að fyrsta lögnin hafi
gefið um það bil 4,5 tonn. Seinna
um daginn þurfti áhöfnin að moka
„Margir þeirra voru út úr drukknir. Vesalings
heimamennirnir sem þarna búa. Þeir hljóta að
líta á amerísku sjómennina sem æði óvægna
rusta. Þannig koma þeir sem eru mest áberandi
- og það eru flestir þeirra sýnist mér - fyrir sjón-
ir innfæddra
FISKIFRÉTTIR 17. desember 2004
39
fram pönnu af salti til að ganga frá
þeim afla sem kominn var, þ.e.
flaka og salta, og stafla flökunum í
lest. Rafabeltin, þ.e. feitasti hluti
lúðunnar, uggarnir og næstu hlutar,
voru söltuð í ámur.
Góður ádráttur
Alex er að vonum ánægður með
aflann og mánudaginn 28. apríl
skrifar hann: „Aflinn var góður og
við náðum í talsvert af góðri lúðu,
fengum um hundrað og fimmtíu.“
Þriðjudaginn 29. apríl er veiðin
einnig góð en þá voru þeir á um
fimmtíu faðma dýpi út af Isafjarð-
ardjúpi. „Þetta var góður ádráttur,
vel yfir hundrað fiskar og þurftu
sumar doríurnar að losa tvisvar en
aðrar oftar,“ segir Alex í bók sinni.
Daginn eftir er gert að aflanum.
„Um fjögur drifum við okkur á
lappir, fengum okkur morgunverð
og tókum síðan til óspilltra mál-
anna þar sem frá var horfið daginn
áður. Við flökuðum og söltuðum
fiskinn og bjuggum um hann niðri
í lest.“ Næsta dag fimmtudaginn 1.
maí fara þeir aftur út að draga lín-
una. Að þessu sinni hafa þeir að-
eins sextíu fiska upp úr krafsinu.
Daginn eftir eru þeir með eitt
hundrað og fimmtíu góða fiska.
Þar næsta dag fá þeir sextíu fiska á
grunnsævi, á þrjátíu og tveimur
föðmum og um átta mílur frá landi.
160 lúður af stærstu gerð
Eftir ágætisbyrjun dregur úr
veiðinni um stund. Sunnudaginn 4.
maí er þess getið að hafísinn sé
ekki langt undan og aflinn þá er
ansi tregur, aðeins fjörutíu fiskar.
Nokkrum dögum seinna kemur
fram að stærsti hluti aflans hafi
verið steinbítur. Samt fengu þeir
einar þrjátíu góðar lúður. Daginn
eftir glaðnar yfir veiðinni. „Þegar
klukkan var komin fram yfir mið-
nættið felldum við segl og lögð-
umst við akkerisfestar. Allar dorí-
urnar voru settar út og lagði hver
þeirra sínar þrjú stykki af línum.
Við fórum svo aftur út og vitjuðum
rétt undir sjö í morgun. Að þessu
sinni fengum við góðan afla, hund-
rað og sextíu lúður af stærstu gerð-
inni. Þegar aflinn var kominn á
dekk, gengum við frá honum í lest-
inni en lyftum svo akkeri og létum
reka smá stund áður en akkerið var
látið síga á ný.“ Þennan góða afla
fengu þeir norður af Hornbjargi.
merísk skonnorta á Miklabanka í kringum árið 1890. Ameríkumenn
Unduðu lúðuveiðar á íslandsmiðum á slíkum skipum.
Allir bláedrú
Föstudaginn 9. maí er Concord
komin að mynni Dýrafjarðar og þar
með lýkur fyrstu veiðiferðinni.
Þeir byrja á því að ganga frá aflan-
um sem fékkst kvöldið áður, um
fimmtíu lúðum. „Klukkan fjögur
höfðum við lokið við að gera að og
ganga frá öllum afla um borð. Þá
vorum við líka búnir á þrífa
skipið og okkur sjálfa. Fleira
munum við ekki taka fyrir
í dag,“ skrifar Alex.
Daginn eftir færir hann
í dagbókina að þeir
hafi landað þeim afla
sem átti að geyma í
landi. „Klukkan þrjú
höfðum við lokið öll-
um verkum. Þá var ; ífjg
logn svo að við skellt-
um okkur í land okkur
til ánægjuauka. Gleð-
skapurinn var þó enginn á \ ^
okkar mönnum. Engu að
síður áttum við notalegt kvöld _ -:
í landi og allir voru bláedrú. Ég
get bara með engu móti sleppt því
að hafa um það orð því það er fáséð
atferli hjá sjómönnum að þeir séu
ekki slompaðir í landi. Jafnvel þeim
gamla er brugðið. Hann er á engan
hátt viss hvemig hann á að bregðast
við þessu.“
Kettir læknisins
Alex skrifar einnig i dagbókina
þennan sama dag: „Einu var ég
næstum búinn að gleyma. Það er
um lækninn sem býr hérna á Þing-
eyri. Hann á fjóra ketti og þá afar
fallega. Það merkilega og dular-
fulla við þá er að þeir fylgja honum
alltaf eftir eins og hundar. Þeir fara
einnig um fjöll og firnindi. Þeir
fara hvert sem hann fer. Hvort sem
hann fer fótgangandi eða á hest-
baki, þá fylgja þeir honum eftir.
Hann fer kannski einnar mílu leið
upp til fjalla og sest þar niður, þá
eru þeir innan tíðar búnir að ná
honum og setjast í kring um hann.
Þeir koma og fara og gera allt sem
hann vill. Slíku athæfi á maður
ekki að venjast með ketti. Ekki
svona dags daglega alla vega.“
Farið á Diego-blettinn
Sunnudaginn 11. maí er haldið
frá Þingeyri í næstu veiðiferð skips-
ins. Lýsing á henni er svipuð og á
fyrri ferðinni, mest er skrifað um
veður og aflabrögð. Verður því farið
hér fljótt yfir sögu. Heldur er veðr-
ið hryssingslegt sem fyrr en aflinn
er mun minni en áður. Þeir fara inn
á Breiðafjörð og veiða þar þorsk í
beitu. Lítið er þar af lúðu og þeir
bera næst niður út af Patreksfirði.
Nokkrum dögum seinna taka þeir
stefnuna á Diego-blettinn á Halan-
um en þegar þeir koma þangað er
önnur skonnorta þar fyrir. Von-
brigðin leyna sér ekki: „McKenzie
er nú akkúrat á blettinum okkar með
lóðin sín. Þetta erbara lítið svæði en
þar er hellingur af fiski. Við erum of
hræddir til að leggja ofan í þá. Þeir
eru alveg vísir með að skera á allt
hjá okkur ef við ögrum þeim. Það
að við skyldum ekki vera komnir
þarna á undan á ég erfitt með að
sætta mig við. Nú eru það þeir sem
fá fiskinn þarna og að það skyldu
hafa verið við sem sýndum þeim
hvar hann er að fá! McKenzie verð-
ur kominn heim þann fjórða. Þá
mun hann stæra sig af þessu og
segja hvernig hann kenndi þeim
hinum að veiða við Island.“
Ártal rist á kvið lúðunnar
Þeir gefast upp á því að bíða eft-
Doríuveiði á Miklabanka. Hér er
líklega verið að draga þorsk um
borð.
ir því að komast á Diego-blettinn
eins og miðin voru kölluð af Amer-
íkumönnum. Fimmtudaginn 29.
maí eru þeir í Aðalvík og þar kem-
ur fyrir svolítið athyglisvert. „I afl-
anum sem við drógum í morgun
fundum við eina litla lúðu, svona
tveggja feta langa. Á hvítum kvið
hennar var markað með skurði,
sem var vel gróinn, ártalið 1885.
Hún hlýtur að hafa verið afar smá
þegar það var gert. Mér skilst að
þeir frönsku geri mikið af því að
merkja þær svona.“
Hríðarveður í byrjun júní
Þriðjudagur 3. júní leita þeir
vars í Dýrafirði. Þá var komið hríð-
arveður. Daginn eftir skrifar Alex:
„Allar hlíðar eru nú þaktar snjó og
það er sannkallaður vetur enn á
þessum morgni. Þannig mun það
hafa verið hér alla síðustu viku.
Daginn eftir: „Hér inni á firðinum
er enn þétt snjókoma og vindurinn
af austnorðaustri en ekki hvasst.
Engu að síður er útlitið eins og um
hávetur sé að ræða. Á hverri nóttu
myndast ísing á öllu alls staðar og
smálækirnir botnfrjósa.“
Föstudaginn 20. júní liggja þeir
rétt utan við Patreksfjörð. Þá er
greint frá viðskiptum skipstjórans
við íslendinga: „All mikill rosi var
í veðrinu að sjá fyrir utan. Við
fengum heimsókn af nokkrum Is-
lendingum í eftirmiðdaginn og
einnig litu um borð til okkar Frans-
menn. Við fórum svo einnig á land
til að skoða okkur um. Gamli mað-
urinn keypti þar af íslendingi um
tvö þúsund pund af lúðuflökum.
Hann greiddi fyrir með gúmmístíg-
vélum og olíustökkum.“
Eins og vetur væri
skollinn á
Segja má að veðrið hafi verið í
aðalhlutverki þetta sumar. Það
snjóaði 4. júní og í lok júní var enn
vetrarlegt: „Um klukkan eitt var
veðrið að stillast en þá tók að
slydda. Samt settum við doríurnar
út og fórum að draga. Þetta var
langbesti dráttur í meira en mánuð.
Við fengum meira en hundrað
fiska og þegar við vorum allir
komnir á dekk hófum við að flaka
og leggja niður...Vindur var af
norðaustri og regnskúrir, stundum
slydda. Hugsið ykkur bara, og það
er svona stutt í fjórða júlí.“ Segja
má að sumarið hafi verið stutt
því 3. ágúst skrifar Alex
eina ferðina enn að hann
gangi á með slyddu.
Daginn eftir má lesa
þetta: „Útlitið var
eins og kominn væri
vetur á ný og erfitt
er að segja hvenær
hann muni ganga
niður á ný því svona
veðurlag getur eins
f' vel staðið yfir í allt að
mánuð í senn. Og hér
er fiskurinn tregur svo
það er ekki mikinn pening
upp úr þessu að hafa.“ Um
miðjan ágúst má finna þessa
veðurlýsingu í dagbókinni: „I
morgun var hann virkilega hvass
og leit, guð minn góður, út eins og
veturinn væri skollinn á.“
Tólf konum smalað
ílautarferð
Nú líður að lokum úthaldsins.
Þeir taka stefnuna inn á Dýrafjörð
22. ágúst og fara að búa sig til heim-
ferðar. Sunnudaginn 24. ágúst er
hljóðið heldur betra í stýrimannin-
um: „Nú var besta veður í morgun,
hlýtt og stillt. Að loknum morgun-
verði fórum við í land og þar eð nú
er sunnudagur var fátt við að vera
annað en leggja sig í grasið. Gram
gamli og nokkrir vinir hans smöl-
uðu saman tólf konum í lautarferð
með okkur, og fórum við svona
fimmtán mílur upp með ánni. Þang-
að riðu allir á hestum. Það var
myndarleg strolla sem þarna reið
fram dalinn. Klukkan átta um
kvöldið voru allir komnir til baka úr
lautarferðinni. Einhverjir hljóta að
hafa skemmt sér þar um stund en í
lokin hlýtur það að hafa verið nokk-
uð hráslagalegt því það var farið að
hvessa af austri og nógu kalt til að
klæðast þykkri yfirhöfn.“
... eitt það aumasta sumar
Föstudaginn 29. ágúst er gert
upp við Islendingana. „Níu menn
úr áhöfn okkar snéru nú hver heim
til sín vel klyfjaðir og klárir og á-
nægðir með sinn hlut.“ Þótt íslend-
ingarnir hafi verið ánægðir er Alex
stýrimaður alls ekki kátur. Hann
segir í dagbókinni: „Þetta hefur
verið eitt það aumasta sumar sem
um getur í langan tíma.“ Mánudag-
inn 1. september leggja þeir af stað
út úr höfninni á Þingeyri og er
komnir til Gloucester sunnudaginn
28. september. Lýkur þar með frá-
sögninni af íslandsferð Concord
árið 1890.
Þess má svo geta í lokin að í
gömlum skýrslum frá Gloucester
má lesa að Concord hafi landað
120 þúsund pund af lúðuflökum
þetta sumar. í sömu heimild er get-
ið um fjögur önnur skip sem komu
með 140-160 þúsund pund af lúðu-
flökum hvert frá íslandsmiðum
árið 1890.