Dagrenning - 01.02.1940, Blaðsíða 22
OFFSINN YFIRVECUR VITSMUNINA
O^'go
Sem dæmi um það, hvað vitsmunir glæpamanna
eru takmarkaðir, og þeir líklegir til flónskra úrráða, má
geta þess, að foringi eins glæpamannaflokks í Bandaríkj-
unum, sem hafði komist yfir töluvert fé með þorpara
brögðum sínum, afréði að gjörast reiðmaður mikill eins
og hann vissi dæmi til, að svo mörg ríkmenni þar í landi
væru. Gerði hann það fyrst að verki, að leigja vænan
reiðhest, og tók svo að æfa sig á baki. En vonin reynd-
ist manninnum ríkari en mátturinn, því hann féll af baki
og beið bana af.
Félagar hins happlausa foringja stungu nefjum
saman, og í allri dýrð þeirra vizku, komust þeir að þeirri
mikilvægu niðurstöðu, að hestinum bæri ekki að sleppa
refsingalaus. Leigðu þeir hestinn í annað sinn, leiddu
hann afvega og skutu hann til dauðs.
ALT BREYTIST
Fyrstur manna á Englandi, sem varð til þess, að
prenta skrár yfir ferðaáætlanir eimlesta og eimskipa var
George Bradshaw, prentari og myndamóta smiður, árið
1839. Félögin töldu sig illa leikin með þessari afskifla-
semi, eins og þau nefndu það, og kváðu það vera næsta
ómögulegt, að láta ferðatækin ganga eftir skráðri tíma
töflu, Nú borga slík félög stórfé árlega, einmitt fyrir
það, sem Bradshaw strekti við að gera án launa.