Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 4
thorgrimur@frettabladid.is NÁTTÚRUVÁ Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir það geta tekið tíma að koma í ljós hvort hlaup sé að hefjast í Grímsvötnum. Mælingar sýna að íshellan í Grímsvötnum sígur. Samkvæmt til- kynningu Veðurstofunnar fundaði vísindaráð Almannavarna í gær. Þorvaldur segir að teikn sem nú sjáist séu af því tagi sem gjarnan boði hlaup. „Við sjáum sig á íshellunni, lækk- un á yfirborði á Grímsvatni sjálfu, sem er stöðuvatnið ofan í öskjunni á Grímsvötnum. Ef það f læðir út úr henni og vatnið finnur sér leið undan ísnum þá tæmist hluti af Grímsvötnum, vatnið f læðir niður og kemur síðan neðan við endann á skriðjöklinum. Þetta getur tekið nokkra daga, jafnvel viku. Þá eykst bara vatnslagið, stundum mjög mikið,“ segir Þorvaldur. Að sögn Þorvaldar eru engin bein merki um að eldgos sé í vændum. Hann bendir á að Grímsvatnahlaup leiði ekki endilega til goss. Íshellan hefur nú sigið um nær 60 sentimetra og hraðinn eykst. n Þolandi á barnaheimilinu á Hjalteyri segist hafa barist fyrir rannsókn allt frá árinu 2007. Var ekki trúað. Forset- inn hlustaði á sögu hans í gær. bth@frettabladid.is SAMFÉLAG Steinar Immanúel Sörensson, einn þolenda í svoköll- uðu Hjalteyrarmáli, segist hafa barist allt frá árinu 2007 fyrir því að rannsókn færi fram á starfsemi barnaheimilisins, sem rekið var í nokkur ár við Hjalteyri í Eyjafirði á áttunda áratug síðustu aldar. „Strax eftir að Breiðagerðismálið kom upp bað ég um rannsókn, en þá bar ríkið því við að hún ætti ekki við vegna þess að ekki hefði verið um ríkisrekið heimili að ræða. Það náttúrlega stenst enga skoðun,“ segir Steinar. Hann bætir við að hann hafi upp- lifað að sér hafi ekki verið trúað. „Ég upplifði viðmót eins og ég væri að ljúga.“ Um sanngirnisbætur sem Vist- heimilanefnd hefur greitt út til þolenda í sambærilegri stöðu og umræða er um að endurvekja, segir Steinar að hann myndi þiggja bæt- urnar. Þær séu þó ekki aðalatriðið í hans huga. „Við verðum að einfaldlega fá þessi mál upp á yfirborðið. Ég og aðrir þolendur viljum afsökunar- beiðni að lokinni rannsókn.“ Steinar segir að sárin sem dvölin á Hjalteyri skildi eftir, muni aldrei gróa. „Fólk verður að átta sig á að þessi meðferð í bernsku hefur litað allt mitt líf. Allt mitt líf og bróður míns og fjölmargra annarra barna sem þarna voru.“ „Það eru mörg líf í rúst, sumir hafa fyrirfarið sér. Ég heyrði í manni sem sagðist hafa grátið í þrjá daga eftir þáttinn vegna þess að hann rifjaði upp sína eigin reynslu,“ bætir hann við. Eftir að Stöð 2 afhjúpaði síðast- liðinn sunnudag hvernig börn á heimilinu þurftu að upplifa kúgun og kynferðisofbeldi, gjarnan undir yfirskyni guðstrúar, hafa orðið mikil viðbrögð. Steinar segist hafa fylgst með framvindunni í kerfinu. Viðbrögðin hafi vakið blendin við- brögð, þakklæti, en líka aðrar til- finningar. Erfitt hafi verið að sjá ráðamenn móast við að taka ábyrgð á hvaða ráðuneyti eigi að standa fyrir rannsókn. Hann hafi þó ekki setið auðum höndum og látið duga að fylgjast með, heldur hafi hann átt símtal við forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson, í gær. Auk þess sendi Steinar Salvöru Nordal, umboðsmanni barna, bréf eftir að Fréttablaðið birti viðbrögð umboðsmanns barna við málinu. Salvör segir frásagnirnar hræði- legar. Málið sé mjög alvarlegt, ekki síst vegna þess að brotið hafi verið á börnum sem eigi sér ekkert bak- land. Málið sýni fram á mikilvægi eftirlits með allri svona starfsemi. For sæt is- og dóms málaráðherrar ætla að kalla eftir greinargerð um hvernig beri að haga rannsókn á máli barnanna á Hjalteyri, enda sé búið að fella lög um Vistheim ila- nefnd úr gildi. n Fólk verður að átta sig á að þessi meðferð í bernsku hefur litað allt mitt líf. 480.000 KR. VSK verð­ hækkun um áramótin* UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK­BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • JEEP.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10­17 • LAUGARDAGA 12­16 *Verð á Compass og Renegade hækkar um áramótin vegna VSK hækkana. **Bjóðum upp á 35”­40” breytingapakka fyrir Wrangler. JEEP WRANGLER RUBICON TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI JEEP COMPASS TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI TRYGGÐU ÞÉR JEEP Á LÆGRA VERÐI ALVÖRU JEPPI. ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF. Nú er tilvalið að tryggja sér alvöru jeppa með alvöru fjórhjóladrifi í forsölu. Áætlað er að bílarnir verði tilbúnir til afhendingar í desember. Fjölnir Sæmundsson, sem er for- maður Landssambands lögreglu- manna, var rangfeðraður í blaðinu í gær og sagður Þorgeirsson.  LEIÐRÉTTING ingunnlara@frettabladid.is Aðeins f imm lönd í heiminum stunda blóðmerahald: Kína, Arg- entína, Úrúgvæ, Þýskaland og Ísland. Starfsemin snýst um að taka blóð úr fylfullum hryssum til að vinna úr því hormónið PMSG sem er notað í framleiðslu frjósemislyfja fyrir húsdýr. Langstærsti kaupandi þessara lyfja eru erlendir verk- smiðjubændur. Ísland er þriðji stærsti fram- leiðandi PMSG í öllum heiminum og með talsvert stærri iðnað en Þýskaland og því langstærsti lög- legi framleiðandi PMSG í Evrópu. Þetta segir Sabrina Gurtner, full- trúi alþjóðlegu dýraverndarsam- takanna Animal Welfare Founda- tion í samtali við Fréttablaðið, en hún rannsakaði blóðmerahald á Íslandi 2019 til 2021. Samtök hennar vörpuðu ljósi á hryllilegar aðstæður í greininni í Suður-Ameríku árið 2015. Þar er fóstureyðing framkvæmd svo hægt sé að stunda blóðtöku á tveimur tímabilum á ári. Í kjölfarið hættu öll evrópsk og norður-amerísk lyfjafyrirtæki og svínabændur að versla PMSG frá Suður-Ameríku og byrjuðu að kaupa frá evrópskum framleiðendum, það er frá Íslandi. „Öll verslun færðist frá Suður- Ameríku til Evrópu eftir 2015. En evrópski iðnaðurinn er í raun bara Ísland,“ segir Sabrina. n Nánar á frettabladid.is Ísland með mesta blóðmerahald í Evrópu Barist fyrir rannsókn í fjórtán ár Steinar Immanúel Sörensson, sem mátti þola illa meðferð á Hjalteyri, segist hafa talað fyrir daufum eyrum er hann bað um rannsókn fyrir fjórtán árum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Við Svínavatn þar sem stundaður er búskapur með blóðmerar. MYND/AWF Forboði um hlaup í Grímsvötnum Þorvaldur Þórðar- son, prófessor 4 Fréttir 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.