Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.11.2021, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 25.11.2021, Qupperneq 27
Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli 15% afsláttur af lausasölulyum 20 – 25% afsláttur af öllum vörum Gildir í Netapóteki Lyavers og verslun Svartir dagar ly aver.is Suðurlandsbraut 22 Afhendum samdægurs á höfuðborgarsvæðinu mán–lau ef pantað er fyrir kl. 13:00 *Frí heimsending ef pantaðir eru tveir lyfseðlar eða verslað er fyrir meira en 9.900 krónur. Seðlabankastjóri fór nýlega í stælur við forystu launafólks og atvinnu­ lífs vegna kjarasamninga. Deilur af þessu tagi eru gamal­ kunnar. En hitt er meira nýmæli að seðlabankastjóri skuli hafa forystu um þær. Tilgangurinn er að sýna fram á ábyrgð viðsemjenda á vinnumarkaði á verðbólgu. Viðbrögðin hafa verið hefð­ bundin: Talsmenn fyrirtækjanna taka undir með seðlabankastjóra en vilja eigi að síður standa við gerða samninga. Launþegaforystan hafnar því hins vegar að alþýðan sé gerð ábyrg fyrir verðbólgunni. Hlutverkaskipti Orsakir verðbólgunnar eru vita­ skuld margvíslegar nú eins og áður. Við sumar verður ekki ráðið, en aðrar eru afleiðing rangra ákvarð­ ana á Alþingi, á vinnumarkaði og jafnvel í Seðlabankanum sjálfum. Á endanum er það þó ríkisstjórn á hverjum tíma sem ber ábyrgð. Henni verður ekki skotið neitt annað. Þetta er lykilatriði í lýð­ ræðislegri stjórnskipun. En nú er engu er líkara en ríkis­ stjórnin og Seðlabankinn hafi samið um hlutverkaskipti. Ríkisstjórnin virðist líta á sig sem hlutlausa kjölfestu, sem blandar sér helst ekki í eldfima umræðu, en Seðlabankinn brúkar munn og gefur út pólitíska leið­ sögn um launastefnu. Einsdæmi Síðustu kjarasamningar voru ein­ stæðir um tvennt. Í fyrsta lagi gaf ríkisstjórnin fyrir­ fram loforð um verulegar skatta­ lækkanir og margvísleg útgjöld án skilyrða um að niðurstaðan væri í samræmi við efnahagsleg mark­ mið. Það hafði aldrei gerst áður, jafnvel ekki á tímum misjafnlega ábyrgra vinstri stjórna. Í öðru lagi kynntu aðilar vinnu­ markaðarins ekki niðurstöður eigin samninga. Það gerði ríkis­ stjórnin í Ráðherrabústaðnum. Með þessu axlaði ríkisstjórnin meiri pólitíska ábyrgð á efnahags­ legum áhrifum kjarasamninga en nokkur önnur ríkisstjórn hefur gert. Hlutleysisstefna Nú hafa hlutir þróast á annan veg en vonir stóðu til. Þá bregður svo við að Ráðherrabústaðurinn breytist allt í einu í vettvang efna­ hagslegrar hlutleysisstefnu. Alþingi hefur svo verið óvirkt frá júlíbyrjun þar til nú. Ríkisstjórnin segist réttilega vera meirihlutastjórn, en hefur í tvo mánuði eftir kosningar viljað njóta skjóls eins og starfsstjórn vegna innri íhugunar. Fréttir herma að fjárlög næsta árs eigi að afgreiða á undanþáguhraða á nokkrum dögum í desember. Það er óþægilega fjarri góðum lýðræðis­ legum stjórnarháttum. Óvissuferð Þegar hlutir fara úrskeiðis er mikilvægt að almenningur sé vel upplýstur. Það þarf að segja erfiða hluti eins og aðra. Stundum getur jafnvel verið hyggilegt að taka djúpt í árinni til þess að fá fótfestu fyrir raunhæf viðbrögð. Þegar tómarúm myndast í umræðunni vegna forystuleysis ríkisstjórnar er um margt skiljan­ Hver á að segja erfiðu hlutina? legt að Seðlabankinn reyni að fylla upp í það. Eftir sem áður er það lýðræðisleg skylda ríkisstjórnar að hafa forystu. Hún á að senda aðilum vinnumarkaðarins skilaboð, sé þess þörf. Við ríkjandi aðstæður er ríkis­ stjórn án launastefnu ekki trú­ verðugur málsvari efnahagslegs stöðugleika. Hún er í óvissuferð. Heitar kartöflur Vaxtahækkunum fylgir pólitískur vandi. Ástæðan er sú að ríkis­ stjórnin lofaði áframhaldandi lágum vöxtum í kosningunum þó að Seðlabankinn hefði þá þegar hafið hækkun vaxta. Mörg heimili tóku ákvarðanir í trausti þess að nýr stöðugleiki væri fundinn. Það kemur í hausinn á þeim nú að sú staðhæfing ríkis­ stjórnarinnar var vísvitandi til­ búningur. Vextir eiga eftir að hækka upp fyrir verðbólgutöluna. Það er vandi sumra en hagur annarra. Vandi heildarinnar liggur í meiri og tíðari sveiflum en í samkeppnis­ löndunum. Sá vandi breytist ekki meðan ríkisstjórnin snertir ekki heitar kartöflur. Að tala Upp á síðkastið hafa komið fram fróðlegar upplýsingar í þessu sam­ hengi: Fleiri erlendir fjárfestar hafa yfirgefið íslenska hagkerfið en komið. Gögn OECD sýna að lægra hlutfall af landsframleiðslu fer til rannsókna og þróunar en á öðrum Norðurlöndum. Formenn Bandalags háskóla­ manna og Samtaka iðnaðarins hafa vakið athygli á því að Íslendingar eru nú í hópi þeirra Evrópuþjóða sem hægast fara í að endurheimta hagvöxt ársins 2019. Einmitt þarna ræðst hvort unnt er að auka kaupmátt, greiða skuldir og verja velferðarkerfið. Ríkisstjórnin á ekki að afneita þeim vanda. Hún á að tala um hann og ræða hverju þurfi að breyta til að bæta stöðuna. n FIMMTUDAGUR 25. nóvember 2021 Skoðun 27FRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.