Fréttablaðið - 25.11.2021, Qupperneq 28
JAGUAR F-PACE 180D RWD
Nýskr. 11/2019, ekinn 41 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð: 7.690.000 kr.
Rnr. 420822.
RANGE ROVER Evoque P300e
Nýskr. 4/2021, ekinn 7 þús. km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 9.690.000 kr.
Rnr. 420820.
LAND ROVER Discovery 5 HSE Lux
240D G4
Nýskr. 5/2020, ekinn 36 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð: 13.890.000 kr.
Rnr. 148507.
LAND ROVER Defender SE
First Edition P400
Nýskr. 9/2020, ekinn 29 þús. km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð: 16.790.000 kr.
Rnr. 420821.
RANGE ROVER Evoque 180D
Autobiography
Nýskr. 6/2016, ekinn 42 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð: 6.490.000 kr.
Rnr. 148607.
JAGUAR I-PACE S EV400
Nýskr. 9/2019, ekinn 26 þús. km,
rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 8.290.000 kr.
Rnr. 420725.
RANGE ROVER Fifty Edition P400e
Autobiography
Nýskr. 3/2021, ekinn 6 þús. km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 24.440.000 kr.
Rnr. 420799.
LAND ROVER Discovery Sport SE
R-dynamic
Nýskr. 2/2018, ekinn 53 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð: 6.890.000 kr.
Rnr. 148631.
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
0
8
5
2
2
J
a
g
u
a
r
n
o
t
a
ð
ir
8
b
íl
a
r
5
x
2
0
2
5
n
ó
v
Í dag er alþjóðlegur baráttudagur
gegn of beldi gagnvart konum og
markar hann upphaf sextán daga
átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem
lýkur á mannréttindadegi Samein-
uðu þjóðanna 10. desember. Í tilefni
átaksins eru byggingar víðsvegar
um heiminn lýstar upp með appels-
ínugulum lit að kvöldi 25. nóvember
sem er táknræn aðgerð fyrir bjarta
framtíð kvenna án ofbeldis.
S a m k v æ m t u p p l ý s i n g u m
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
verður ein af hverjum þremur
konum fyrir of beldi á lífsleiðinni.
Kynbundið of beldi er því eitt
útbreiddasta mannréttindabrot í
heiminum og fyrirfinnst á öllum
sviðum samfélagsins.
Heimsfaraldur heimilisofbeldis
Heimsfaraldur Covid-19 hefur haft
í för með sér verulega aukningu á
ofbeldi gegn konum um heim allan.
Í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna
um heimsmarkmiðin eru dæmi um
að tilkynningar um heimilisofbeldi
hafi aukist um allt að 80 prósent í
sumum löndum.
Sterk staða Íslands á sviði jafn-
réttismála í alþjóðlegu samhengi
er tækifæri til að gegna leiðandi
hlutverki á alþjóðavettvangi. Í því
samhengi er mikilvægt að styðja
við jafnréttisstarf innanlands og
að Ísland leggi sitt af mörkum á
heimsvísu.
Íslensk stjórnvöld leiða alþjóð-
legt aðgerðabandalag um kyn-
bundið of beldi í tengslum við
átaksverkefni UN Women Kyn-
slóð jafnréttis. Markmið þess er
að vinna að heildstæðum lausnum
og leiða til umbreytandi aðgerða í
samræmi við heimsmarkmið Sam-
einuðu þjóðanna.
Í skuldbindingum Íslands í verk-
efninu er lögð áhersla á stefnu-
mótun og lagasetningu sem hefur
meðal annars að markmiði að
uppræta kynbundið of beldi með
auknum forvörnum, bættu sam-
ráði um aðgerðir gegn of beldi og
ef lingu þjónustu og stuðningsúr-
ræða við bæði þolendur og gerend-
ur. Lögð er áhersla á að ná betur til
drengja og karla í forvarnarstarfi og
að ráðist verði í aðgerðir gegn staf-
rænu kynferðisof beldi og úrbætur
í réttarvörslukerfinu sem fylgi
eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar
í málaf lokknum. Að auki hefur
Ísland um árabil lagt ríka áherslu
á jafnréttismál og samþætt þau
stefnumótun í þróunarsamvinnu og
allri málafylgju á alþjóðavettvangi.
Til að mynda eru íslensk stjórnvöld
meðal þeirra ríkja sem veita hvað
hæst framlög til UN Women.
Í samstarfi við malavísk stjórn-
völd og UN Women studdi Ísland
nýverið gerð fyrstu landsáætlunar
Malaví um konur, frið og öryggi í
samræmi við ályktanir öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna. Malavísk
stjórnvöld kynntu áætlunina fyrr
í þessari viku sem er mikilvægur
áfangasigur fyrir hvert ríki. Áður
hafði Ísland unnið að sambærilegu
verkefni í samstarfi við stjórnvöld
í Mósambík.
Mikilvæg alþjóðasamvinna
UNFPA er ein áherslustofnana
Íslands í þróunarsamvinnu og
gegnir lykilhlutverki þegar kemur
að þjónustu við þolendur kynferðis-
brota á átakasvæðum. Í síðustu viku
var undirritaður rammasamningur
við stofnunina sem kveður á um
þreföldun á kjarnaframlögum á
næsta ári, sem veitir henni sveigj-
anleika til að bregðast við þar sem
neyðin er mest hverju sinni.
Í áratug hefur Ísland stutt við
samvinnuverkefni UNFPA og UNI-
CEF um afnám limlestinga á kyn-
færum kvenna og stúlkna. Þær eru
gróf birtingarmynd of beldis gegn
konum og stúlkum og er umfang
þeirra gríðarlegt, en talið er að um
200 milljónir núlifandi kvenna og
stúlkna lifi með af leiðingum lim-
lestinga á kynfærum.
Gert er ráð fyrir að baráttan
gegn kynbundnu of beldi verði
eitt af áherslumálum Íslands í for-
mennsku Evrópuráðsins á næsta
ári og mun málaflokkurinn áfram
skipa stóran sess í starfi Íslands á
vettvangi mannréttindaráðs Sam-
einuðu þjóðanna.
Ísland mun halda áfram að tala
fyrir mannréttindum, frelsi og
jafnrétti kynjanna á alþjóðavett-
vangi og hvetja alþjóðasamfélagið
til að standa vörð um fyrri áfanga-
sigra.
Reynslan hefur sýnt að lítil ríki
geta haft mikil áhrif. n
Upprætum kynbundið ofbeldi
Guðlaugur Þór
Þórðarson
utanríkis- og
þróunarsam-
vinnuráðherra
Ísland mun halda áfram
að tala fyrir mannrétt-
indum, frelsi og jafnrétti
kynjanna á alþjóðavett-
vangi.
28 Skoðun 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ