Fréttablaðið - 25.11.2021, Page 32
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB
Yfirhafnir
fyrir íslenska
veðráttu
SKOÐIÐ
LAXDAL.IS
Rapparinn Cardi B sló ræki-
lega í gegn með klæðnaði
sínum á American Music
Awards verðlaunaafhend-
ingunni um síðustu helgi, en
hún var kynnir kvöldsins og
kom fram í mörgum ólíkum
samsetningum af hátísku-
klæðnaði.
oddurfreyr@frettabladid.is
Cardi B hefur sjaldan ef nokkurn
tímann sést í eins glæsilegum
klæðnaði og á verðlaunaafhend-
ingu American Music Awards síð-
asta sunnudag. Þetta var í fyrsta
sinn sem hún er kynnir hátíðar-
innar og hún nýtti tækifærið til að
spóka sig í mörgum ólíkum sam-
setningum frá hátískuhúsum eins
og Schiaparelli, Jean Paul Gaultier,
Alexandre Vauthier og f leirum,
með dyggri aðstoð frá stílistanum
sínum, Kollin Carter. Tískumið-
illinn Women's Wear Daily fór
yfir klæðnaðinn og gaf innsýn í
hönnunina.
Átta „lúkk“ á einu kvöldi
Cardi B byrjaði kvöldið í klæðnaði
sem gleymist seint. Hún mætti á
rauða dregilinn í sérhönnuðum
svörtum Schiaparelli-kjól með
svart slör og svarta hanska með
gullnöglum. Svo var hún með
gullgrímu fyrir öllu andlitinu.
Cardi skipti síðan í dramatískan
klæðnað fyrir byrjun sýningar-
innar og mætti á svið í svörtum
flauelskjól með háu hálsmáli sem
var klofinn upp að læri og var með
fjaðraðan höfuðbúnað úr haust-
safni Alexandre Vauthier fyrir
árið 2021.
Síðan kom hún aftur á svið í
svörtum jakkalegum flauelskjól
með glitrandi axlir og sat ofan á
nokkrum Loius Vuitton ferða-
töskum.
Cardi fór ekki bara upp á svið
til að kynna, heldur vann hún líka
verðlaunin fyrir besta hipphopp-
lagið fyrir smellinn Up. Hún kom á
svið til að taka við verðlaununum í
kanarígulum kjól með úfið skraut
eftir Jean Paul Gaultier úr haust-
safninu frá 2019.
Því næst kom Cardi B fram í
fjólubláum kjól með kristalskreyt-
ingum á búknum, en á öxlunum
var hún með stórar fjólubláar
fjaðrir úr safni Jean-Louis Sabaji
fyrir haustið 2021. Eftir það fór
hún í korsettlegan topp við svart
pils og var með stórt svart skraut
sem líktist blævæng á höfðinu.
Rapparinn fór svo aftur í föt
frá Schiaparelli til að klára verð-
launaafhendinguna og kom fram
í víðum jakka með alls kyns
gullskrauti. Að lokum spókaði
hún sig á rauða dreglinum með
verðlaunin sín í hvítum kjól með
hvíta hettu sem var skreytt
gimsteinum og kom úr
safni Miss Sohee fyrir
haustið 2021. n
Tískusigur
Cardi B á AMA
Rapparinn vakti mikla athygli með
þessu sérstaka útliti frá Schiaparelli.
Eftir að hún var búin að taka við
verðlaunum sínum kom
hún fram í þessum
fjólubláa kjól.
Þetta var í fyrsta
sinn sem hún er
kynnir hátíðarinnar og
hún nýtti tækifærið til að
spóka sig í mörgum
ólíkum samsetningum
frá hátískuhúsum.
Cardi B endaði kvöldið á rauða
dreglinum í hvítum klæðnaði
sem var skreyttur gimsteinum.
Cardi B var
glæsileg
á sunnu-
dagskvöld.
Cardi B tók við
verðlaununum
sínum í þessum
gula kjól sem er
með skrauti frá
Jean Paul Gaultier.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þegar Cardi B
fór fyrst upp
á svið var
hún í þessum
dramatíska
klæðnaði.
4 kynningarblað A L LT 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR