Fréttablaðið - 25.11.2021, Page 42
6,67%
allra brottrekstra í
ensku úrvalsdeildinni
eftir að Sir Alex Fergu-
son hætti má rekja til
Manchester United.
38
milljónir punda er
félagið búið að greiða
í starfslokagreiðslur til
Solskjær, Mourinho,
van Gaal og Moyes.
Ole Gunnar Solskjær varð á
dögunum fjórði knattspyrnu-
stjórinn til þess að fá reisu-
passann í starfi knattspyrnu-
stjóra Manchester United.
Eftir að hafa haft sama
þjálfara í 27 ár hefur starfs-
mannaveltan verið regluleg
undanfarin ár.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Það verður ekki annað
sagt en að tími Ole Gunnar Solskjær
sem knattspyrnustjóra Manchester
United hafi verið á þrotum eftir
neyðarlegt 1-4 tap gegn Watford
um síðustu helgi. Það var fimmta
tap Manchester United í síðustu sjö
leikjum, sem er versti árangur deild-
arinnar á þeim tíma. Solskjær lifði af
niðurlægjandi töp gegn erkifjend-
unum í Manchester City og Liver-
pool á dögunum en frammistaðan
gegn Watford reyndist kornið sem
fyllti mælinn.
Stuðningsmenn Manchester
United voru góðu vanir eftir að hafa
fylgst með sama manni í brúnni í 27
ár. Sir Alex Ferguson leiddi félagið
í gegnum gullaldartímabilið þegar
Manchester United vann þrettán
meistaratitla eða tæplega annað
hvert ár með Ferguson í brúnni.
Ferguson fékk svo að handvelja arf-
taka sinn, David Moyes, sem reynd-
ist ekki starfinu vaxinn.
Moyes átti erfitt uppdráttar í
starfi og var því leitað til reynslu-
meiri manna, Louis van Gaal og
Jose Mourinho. Þeir náðu báðir að
skila félaginu bikar til að lyfta en
vandræði innan sem utan vallar í
sambland við vonbrigði í deildar-
keppninni réðu örlögum þeirra og
voru þeir báðir reknir. Á stuttum
tíma sem bráðabirgðastjóri heill-
aði Ole Gunnar Solskjær stuðnings-
menn og stjórn félagsins en Norð-
manninum tókst ekki að fylgja því
eftir og vinna bikar.
Það er ekki hægt að segja að neinn
af þessum fjórum hafi ekki fengið
stuðninginn sem til þurfti á leik-
mannamarkaðnum. Félagið hefur
keypt leikmenn fyrir rúman millj-
arð punda og selt fyrir um fjögur
hundruð milljónir punda og er
með þrjá af 20 dýrustu leikmönnum
allra tíma í leikmannahóp sínum. n
Þrautin þyngri að finna
eftirmann Ferguson
Ferguson kvaddi Old Trafford með því að lyfta enska meistarabikarnum í þrettánda sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
David Moyes
n 51 leikur
n 27 sigrar
n 9 jafntefli
n 15 töp
n 52,9 prósenta sigurhlutfall
n Engir titlar
n Leikmannakaup: 77 milljónir
evra
Louis van Gaal
n 103 leikir
n 54 sigrar
n 25 jafntefli
n 24 töp
n 52,4 prósenta sigurhlutfall
n Vann enska bikarinn
n Leikmannakaup: 351 milljón
evra
Jose Mourinho
n 144 leikir
n 84 sigrar
n 32 jafntefli
n 28 töp
n 58,3 prósenta sigurhlutfall
n Vann deildarbikarinn og
Evrópudeildina
n Leikmannakaup: 466 millj-
ónir evra
Ole Gunnar Solskjær
n 168 leikir
n 91 sigur
n 37 jafntefli
n 40 töp
n 54,2 prósenta sigurhlutfall
n Engir titlar
n Leikmannakaup: 459 millj-
ónir evra
157
knattspyrnustjórar
voru reknir eða kom-
ust að samkomulagi
um starfslok í efstu
deild Englands á þeim
tíma sem Sir Alex
Ferguson stýrði liði
United.
34 Íþróttir 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR