Fréttablaðið - 25.11.2021, Page 44

Fréttablaðið - 25.11.2021, Page 44
Laugavegurinn er algjört byggingarsögusafn. Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Einar Pálmar Elíasson húsasmíðameistari og iðnrekandi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju föstudaginn 26. nóvember kl. 14.00. Sýna þarf fram á neikvætt hraðpróf við komu í kirkju samkvæmt sóttvarnalögum. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni: https://promynd.is/einarel og www.selfosskirkja.is Bergsteinn Einarsson Hafdís Jóna Kristjánsdóttir Örn Einarsson Steinunn Fjóla Sigurðardóttir Sigrún Helga Einarsdóttir Sverrir Einarsson barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar og móður okkar, Jónínu Þ. Arndal (Nínu Arndal) Drekavöllum 26, Hafnarfirði, Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs, sr. Arnórs Bjarka Blomsterberg og Útfararstofu Hafnarfjarðar. Fyrir hönd aðstandenda, Hjalti Skaftason Guðrún, Lilja og Vigdís Guðbjartsdætur. Hjartans þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og vináttu við andlát elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Guðrúnar Rögnu Valdimarsdóttur (Stellu) Fjölskyldan þakkar sérstaklega starfsfólki hjúkrunarheimilisins Sléttuvegi fyrir einstaka umhyggju. Björn Kr. Gunnarsson Arndís Ármann Ásta Gunnarsdóttir Margrét Ármann Halldór Jensson Gunnar Óðinn Einarsson Valdimar Ármann Gunnar Friðrik Eðvarðsson Stella María Ármann Sigurður Stefánsson og barnabarnabörn. Við aðstoðum þig við gerð viljayfirlýsingar um útför þína af nærgætni og virðingu – hefjum samtalið. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Hinsta óskin Hjónin Anna Dröfn Ágústsdóttir og Guðni Valberg rekja sögu Laugavegarins í nýútgefinni bók sinni. arnartomas@frettabladid.is „Laugavegurinn er algjört byggingar- sögusafn,“ segja hjónin Anna Dröfn Ágústsdóttir sagnfræðingur og Guðni Valberg arkitekt sem gáfu nýlega út bókina Laugavegur þar sem gerð er grein fyrir byggingar- og verslunarsögu götunnar í máli og myndum. Aðspurður um hvaðan hugmyndin að bókinni kom segir Guðni: „Ég opn- aði verslunina Dogma með bræðrum mínum á Laugavegi fyrir nítján árum og á sama tíma var ég að íhuga að byrja í arkitektanámi. Þegar við vorum að gera breytingar á rýminu var ég mikið að spá í það hvaða verslanir höfðu verið í hús- næðinu áður og velti mikið fyrir mér sögu húsanna í kring. Þessi forvitni um götuna hefur eiginlega fylgt mér síðan.“ Laugavegurinn hefur lengi verið eins konar ósæð fyrir bæjarlífið í Reykjavík. „Um aldamótin 1900 fór verslunum þar að fjölga. Þessi fjölmennasta íbúðagata bæjarins breyttist f ljótt í aðalgötu og tóku gömlu timburhúsin mörg tals- verðum breytingum í takt við ný hlut- verk og dæmi voru um að húsum væri lyft til að koma fyrir verslun eða verk- stæði á jarðhæð,“ segir Guðni og bætir við að timburhúsin hafi svo „vikið eitt af öðru fyrir hærri steinsteyptum nýbygg- ingum á öðrum og þriðja áratugnum“. „Þau hús setja enn svip á götuna en sem dæmi má nefna húsið sem Andrés Andrésson klæðskeri reisti á Lauga- vegi 3 og Sandholtsbakarí og Verslun Guðsteins ofar við götuna,“ segir Anna Dröfn. „Laugavegurinn er allt frá því að hann er lagður aðalleiðin fyrir þá sem koma fótgangandi eða ríðandi á hesti inn í bæinn. Þegar umferð eftir veginum sem hafði verið lagður í Laugarnar eykst fara sífellt f leiri að sjá tækifæri í því að koma upp þjónustu við þessa ferðamenn sem áttu erindi til Reykjavíkur og þá að vera jafnvel fyrst til þess að selja þeim eitt- hvað og byggja þá ofarlega en lengst af var vinsælast að byggja nálægt Kvosinni þar sem hjarta verslunar var,“ bætir hún við. Stórhýsi og stærri hugmyndir Í bókinni fara Anna Dröfn og Guðni yfir sögu meira en hundrað húsa við Lauga- veginn og leggja áherslu á byggingar- sögu þeirra, hvernig þau litu út í upp- hafi, hvaða hugmyndir hafi verið uppi um framtíð þeirra og hvernig þau hafi umbreyst í gegnum árin. Eitt af þeim húsum sem stóð upp úr hjá Önnu Dröfn og Guðna í rannsóknar- vinnunni var Laugavegur 25. „Ég hefði fyrirfram aldrei nefnt það sem mitt uppáhaldshús á Laugaveginum en þegar ég kynntist sögu þess þá var það svo áhugavert,“ segir Guðni. „Þar var byggt stórhýsi árið 1961 með súlnagöngum sem taka næstum tvær hæðir. Þar stóð steinbær sem var minnkaður til að koma nýbyggingunni fyrir, en það var síðan aldrei klárað í fyrirhugaðri mynd. Það er magnað að sjá myndir af húsinu sem reis árið 1961 í þeirri mynd sem það stóð til 1980.“ Anna Dröfn segir að á mynd af húsinu megi sjá hvernig gatan átti að teygja sig næstum inn í húsið. „Það segir svo mikla sögu um það hvernig mið- bærinn hefði getað þróast,“ segir hún.“ n Ósæð Reykjavíkur Guðni og Anna rekja sögu meira en hundrað húsa við Laugaveginn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Eitt af húsunum sem stóð upp úr í rannsóknarvinnu Önnu Drafnar og Guðna er Lauga- vegur 25 sem á sér stórmerkilega byggingarsögu. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR 1667 Jarðskjálfti ríður yfir Kákasushérað og verður 80 þúsund manns að bana. 1849 Jólaslagarinn Rúdolf með rauða trýnið birtist fyrst á vinsældalistum vestanhafs. 1867 Sænski efnafræðingurinn Alfred Nobel fær einkaleyfi fyrir framleiðslu dínamíts. 1953 Öflugur jarðskjálfti skekur Honsu í Japan. Flóð- bylgja fylgir í kjölfarið. 1955 Kynþáttaaðskilnaður bannaður í lestum og langferðabílum sem fara á milli ríkja í Banda- ríkjunum. 1963 John F. Kennedy lagður til hinstu hvílu í Arling- ton-kirkjugarðinum í Virginíuríki. 1969 John Lennon skilar OBE heiðursnafnbót til að mótmæla stuðningi Bretlands við Víetnam- stríðið. 1970 Rithöfundurinn Yukio Mishima sviptir sig lífi eftir misheppnaða valdaránstilraun í Japan. 1975 Súrinam öðlast sjálfstæði frá Hollandi. 1984 Þrjátíu og sex tónlistarmenn safnast saman í hljóðveri í Notting Hill í Lundúnum og taka upp lagið „Do they know it´s Christmas?“ og safna þannig fé til styrktar hungruðum í Eþíópíu. 2005 Georg Best, hinn kunni norður-írski fótbolta- maður, deyr. Hann hafði ekki lifað heilsusam- legu lífi. 2014 Lionel Messi setur markamet í meistaradeild Evrópu. Merkisatburðir TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.