Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 50
Með verkinu er ég að endurbyggja sjálft augnablik eyðilegg- ingarinnar: setja saman eyðileggingu og mína sköpun. Hrafnkell Sigurðsson sýnir verk í Hverfisgalleríi og ber sýningin yfirskriftina Tjón­ verk / Recondestruction. Efniviður sýningarinnar er sóttur í brotin skíði, stóla, spýtnabrak, snjóþotur og beygluð skilti í kjölfar snjóflóðs sem féll á skíðaskálann í Skarðsdal í Siglufirði síðasta vetur. „Verkin eru skúlptúr sem ég bjó til á Siglufirði í sumar þar sem ég dvaldi í listamannavinnustofu,“ segir Hrafnkell. „Ég lagði leið mína upp í skíðasvæðið í Skarðsdal og gekk þar fram á drasl sem var á víð og dreif í snjóskafli í gili fyrir neðan skíðasvæðið. Þetta reyndist vera brak úr skíðaskálanum sem varð fyrir snjóflóði og splundraðist. Ég skynjaði mátt náttúrunnar í þess­ um brotum, hversu miklir kraftar hefðu valdið þessari eyðileggingu. Ég ákvað að smíða eitthvað úr þess­ um brotum. Svo leit ég í kringum mig og hugsaði með mér að gott væri að reisa skúlptúr á stöpli. Allt í einu sá ég glitta í steyptan kassa í gilinu sem var eins og hann hefði verið gerður fyrir skúlptúr.“ Spurður hvort ekki hafi kostað mikla vinnu að smíða verkið segir Hrafnkell: „Það var brjáluð vinna að skrapa saman, negla og skrúfa og hlaupa upp og niður gilið. Ég fór í ham.“ Hrafnkell segist hafa gert skúlp­ túrinn með það í huga að mynda hann. Afraksturinn er fimm ljós­ myndir sem sýna skúlptúrinn frá mismunandi hæðum. „Skúlptúr­ inn er rúmir tveir metrar á hæð. Til að ná þessum bláa himni fyrir aftan skúlptúrinn án þess að sýna fjöll og umhverfi þurfti ég að nota langa linsu. Fjarlægðin varð að vera mikil og það kostað hlaup með myndavélina upp bratt gil, fram og til baka í hvert sinn sem eitthvað þurfti að laga.“ Hvað vill hann að áhorfandinn skynji þegar hann horfir á mynd­ irnar? „Þessi skúlptúr er óregluleg kaótísk samsetning, eins og spreng­ ing. Það er eins og augnablikið þegar snjóflóðið féll á skálann sé komið í mynd. Með verkinu er ég að endur­ byggja sjálft augnablik eyðilegg­ ingarinna: setja saman eyðileggingu og mína sköpun. Það er ekki til neitt orð sem sameinar þessar andstæð­ ur, eyðileggingu og sköpun – þannig Eyðing og sköpun Verkin eru skúlptúr sem ég bjó til á Siglufirði, segir Hrafnkell. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þessi skúlptúr er óregluleg kaótísk sam- setning, segir Hrafnkell. MYND/AÐSEND Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is að ég bjó til nýtt orð, recondestruc­ tion, eða tjónverk,“ segir Hrafnkell. Auk mynda af skúlptúrunum er á sýningunni lítil mynd sem sýnir snjóflóðavarnarefni, sem er notað sem sem stoðefni í snjóflóðagarða. „Mig langaði til að mynda þetta efni til að undirbyggja ákveðna sögu eða frásögn sem er í verkinu og tengist snjóflóðinu á þessu augnabliki. Ég kalla myndina Fyrirbygging/Pre­ construction. Það er ekki búið að byggja úr efninu en einmitt það hefði getað komið í veg fyrir að skálinn splundraðist.“ n TÓNLIST Sinfóníuhljómsveit Íslands Verk eftir: Sibelius og Thomas Adès Einleikur: Víkingur Heiðar Ólafsson Eldborg í Hörpu fimmtudagur 18. nóvember Jónas Sen Finnska tónskáldið Jean Sibelius drakk eins og svín og hann reykti líka. Hann varð samt eldgamall. Á efri árum sagði hann: „Allir lækn­ arnir sem hvöttu mig til að hætta að reykja og drekka eru dauðir!“ Tónlist Sibeliusar er stórbrotin og full af vímu og lífsnautn, sem er svo sannarlega grípandi. Það var hún þó ekki á tónleikum Sinfóníu­ hljómsveitar Íslands á fimmtu­ dagskvöldið. Fyrsta tónsmíðin var upphaflega fyrir kór, sem Sibelius sendi í keppni, en útsetti síðar fyrir strengjasveit og slagverk. Kórtext­ inn var um elskendur, og því hefði maður búist við djúsí tónlist. Hér vantaði einhverja hormóna, því herlegheitin voru óttalega and­ laus undir stjórn Thomasar Adès. Spilamennska hljómsveitarinnar var samt góð, bæði nákvæm og fal­ lega mótuð, en hún dugði ekki til að lyfta tónlistinni upp úr meðal­ mennskunni. Ofviðrið, svíta nr. 2, eftir sama tónskáld, var ekki mikið kræsi­ legri. Hún byrjaði sem leikhústón­ list við Ofviðri Shakespeares og samanstendur af stuttum köflum, nokkuð sundurlausum. Þar er enginn voldugur hápunktur á borð við þá sem eru svo áhrifaríkir í sin­ fóníum Sibeliusar. Hljómsveitin spilaði engu að síður ágætlega og var útkoman ljúf og lét þægilega í eyrum, en risti ekki djúpt. Mögnuð dögun Thomas Adès stjórnandi er einn­ ig tónskáld, og þekktastur þannig. Næst á dagskránni var verk eftir hann sjálfan sem bar heitið Dawn, eða Dögun. Hún var í sjakonnuformi, sem er ættað frá barokktímanum, þegar Bach og Handel voru uppi. Það einkennist af sömu hendingunni sem er endurtekin aftur og aftur, án nokkurra breytinga, en með mis­ munandi yfirborði. Yfirborðið hér fólst í fjölbreytilegum hljóðfærasam­ setningum og ólíkum stefbrotum, sem mynduðu síbreytilega áferð. Tónlistinni óx stöðugt ásmegin og var hápunkturinn voldugur. Hljómsveitin spilaði listavel undir öruggri stjórn tónskáldsins, hver einasti hljóðfærahópur var með sitt á hreinu. Uppröðun sveitarinnar var óvanaleg, sumir blásarar voru staðsettir á svölum. Þannig varð til ákveðin þrívídd sem tíðkast ekki á sinfóníutónleikum. Þrívíddin skapaði sérstök hughrif, það var eins og að vera svífandi úti í geimi að horfa á dögunina færast yfir jarðarkúluna. Hvert svæði á fætur öðru lýstist upp, sem mun einmitt hafa verið hugmynd tónskáldsins með verkinu. Þetta var magnað. Fráhrindandi sköpun Tónleikunum lauk með píanókon­ sert eftir Adès, In Seven Days. Titill­ inn vísar til sköpunarsögunnar í Biblíunni. Yfirbragð tónlistarinn­ ar var dálítið kuldalegt. Kom þá í hugann það sem talsmaður kaþ­ ólsku kirkjunnar í Bandaríkjunum, Robert Barron, hefur haldið fram. Hann segir að í kristninni skapi Guð heiminn í kærleika, ólíkt mörgum „heiðnum“ trúarbrögðum þar sem veröldin verður til úr átökum. Þessi kærleikur virtist víðsfjarri í tón­ listinni hér. Þvert á móti var sköp­ unin hranaleg og fráhrindandi; Guð virtist ekki vera sérlega geðþekkur. Víkingur Heiðar Ólafsson lék einleik á nýjan f lygil, sem kom prýðilega út. Einleikurinn var stór­ brotinn og glæsilegur, allt var tært og fullkomlega mótað. Hljómsveitin spilaði líka f lókinn tónavefinn af kostgæfni og heildarmyndin var f lott. En maður spurði sjálfan sig, til hvers? Sköpun þessa heims eins og Adès sýndi hana var án kærleika og ekki eftirsóknarverð, og tónlistin því síður. n NIÐURSTAÐA: Vel spilað allt saman, en misáhugavert. Flottir tónleikar – og þó Einleikurinn var stórbrotinn og glæsilegur, segir Jónas FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR 42 Menning 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.