Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 60
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Laufey Haraldsdóttir og
félagar í leikhópnum Slembi-
lukku opna geymslu allra
landsmanna fyrir almenn-
ingi í Borgarleikhúsinu í
desember, eftir að hafa leitað
fanga og fyrirmynda í alvöru
geymslum úti um allar trissur.
odduraevar@frettabladid.is
Laufey Haraldsdóttir hjá leik-
hópnum Slembilukku leitaði á
náðir almennings í Fréttablaðinu í
október, þegar hún sagði frá undir-
búningsvinnu leikritsins Á vísum
stað, sem gekk meðal annars út á að
fá að róta í geymslum fólks.
Þá upplýsti hún að hópurinn
hafði þá þegar fundið gamlan
bolla úr eigu Páls Óskars í geymslu
ónefndrar konu. „Þetta voru ein-
hverjar 26 geymslur sem við heim-
sóttum,“ segir Laufey mánuði síðar
þegar stutt er í frumsýningu Á
vísum stað.
„Þetta er meira eins og að mæta í
geymslu hjá einhverjum heldur en
að mæta í leikhús og sjá Draum á
Jónsmessunótt. Þetta verður inter-
aktívt upplifunarleikhús,“ útskýrir
Laufey.
Hún segir að hópurinn hafi haft
úr nógu að moða eftir fjársjóðsleit-
ina í síðasta mánuði. „Við fundum
ótrúlegustu hluti sem við höfum
komið fyrir hérna í leikhúsinu og
ætlum núna að kynna niðurstöður
okkar fyrir gestum,“ segir hún.
Áhorfendum mun meðal ann-
ars gefast kostur á að velja það sem
þeim þykir merkilegast á sýning-
unni. „Svo stefnum við á að opna
lítið safn með hlutunum hérna í
leikhúsinu,“ segir Laufey. Hún segir
ekki einungis veraldlega hluti hafa
fundist heldur líka tónlist.
Fundu Friends
„Við fundum ýmsar kassettur.
Uppáhaldsspólan okkar var alveg
ómerkt,“ segir Laufey en þar mátti
heyra ónefnda söngkonu syngja.
Smáforritið Shazam, sem greinir
tónlist, náði ekki einu sinni að bera
kennsl á söngkonuna.
„En það var kannski vegna þess
að eini kassettuspilarinn sem við
fundum var gamalt útvarp sem
spilar allar spólurnar svolítið hægt,“
skýtur Laufey inn í hlæjandi. „Við
fundum líka spólu í geymslu hjá
mömmu sem er með upptöku af
mér að syngja.“
Þá fann hópurinn gamlar upp-
tökur af vinsælustu grínþáttum í
heimi, Friends. „Það var einhver
sem gat alls ekki sofnað nema með
því að hlusta á Friends á tíunda ára-
tugnum og tók hljóðið þess vegna
upp.“
Laufey segir Þjóðminjasafnið hafa
átt eftirminnilegustu geymsluna.
„Þetta var trúarleg upplifun fyrir
okkur. Þau farga engu og ætla, eins
og hún sagði okkur sérfræðingurinn
á safninu, að geyma allt þangað til
að maðurinn tortímir sjálfum sér
eða þar til það kemur eldgos og eyði-
leggur geymsluna. Þetta sagði hún
við okkur!“
Olnbogabörn herbergja
Laufey segir hópinn hafa lært það
í ferlinu að geymslur eru ekkert
annað en mjög persónuleg herbergi.
„Það er samt ekki talað nógu mikið
um þær. Þær eru svo persónulegar
og algjör olnbogabörn herbergj-
anna,“ segir hún.
Leikritið verður fjölbreytt enda
litað af heimildasöfnun hópsins.
„Við gerðum í raun það sem okkur
fannst passa best hverju sinni. Ég
verð til dæmis með glærukynn-
ingu af því að mér fannst það þjóna
forminu og þetta verður alls konar
samsuða af atriðum.“
„Við viljum bjóða fólki inn í
geymslur landsmanna og sýna því
að við erum öll svipuð í þessum
geymslumálum. Fólk er oft eitt-
hvað að fela þetta. Við erum öll með
flöskupoka í geymslunni og það er
bara allt í lagi.“ n
Slembilukka mun opna
geymslu allra landsmanna
Laufey Haraldsdóttir, Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir og Eygló Höskuldsdóttir
Viborg vilja hvetja landsmenn til að hugsa hlýlegra til geymslna landsins.
MYND/AÐSEND
odduraevar@frettabladid.is
„Ég fagnaði þessum tímamótum
með því að opna rauða og njóta þess
einn heima í fyrra ef ég man þetta
rétt,“ segir leikarinn Níels Thibaud
Girerd, þegar hann er spurður hvað
hann gerði á tíu ára afmæli þess
þegar hann rappaði „Sælir Nilli“
frammi fyrir alþjóð.
Nilli var staddur í Lissabon í
heimsókn hjá kærustunni, knatt-
spyrnukonunni Sóleyju Guðmunds-
dóttur, þegar Fréttablaðið náði af
honum tali og var í besta skapi, eins
og reyndar venjulega.
„Ég sit bara hérna yfir kaffibolla
í Portúgal,“ segir Nilli og leggur
áherslu á síðasta orðið með frönsk-
um hreim. „Hér verð ég í viku,“
heldur hann áfram eiturhress.
Nilli segist nokkuð reglulega
minntur á eigin frammistöðu í inn-
slagi Monitor frá því í október 2010,
þar sem hann skaust skyndilega upp
á stjörnuhimininn. „Ég var einmitt
minntur á þetta um daginn, þá
poppaði eitthvað upp á Facebook
hjá félaga mínum. En í fyrra fannst
mér þetta mikil tímamót en þá var
þetta Covid í algleymingi,“ segir
Nilli.
„Ég og Sóley gerðum okkur glaðan
dag, fögnuðum þessu og ætli við
höfum ekki bara hlustað á lagið?“
spyr Nilli hlæjandi. n
Nilli sæll í ellefu ár og einn mánuð
Níels er nú staddur í heimsókn hjá
Sóley í Portúgal. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er samt ekki talað
nógu mikið um þær.
Þær eru svo persónu-
legar og algjör oln-
bogabörn herbergj-
anna.
52 Lífið 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Lok, lok og læs
Yrsa Sigurðardóttir1 Sigurverkið
Arnaldur Indriðason
Fagurt galaði fuglinn sá
Helgi Jónsson
Anna Margrét Marínósdóttir
Rauð viðvörun
Jólin eru á leiðinni
Sigrún Eldjárn
Vetrarfrí í Hálöndunum
Sarah Morgan
Lára bakar
Birgitta Haukdal
Sextíu kíló
af kjaftshöggum
Hallgrímur Helgason
Nýja Reykjavík
Dagur B. Eggertsson
Úti
Ragnar Jónasson
Jól á eyjahótelinu
Jenny Colgan
2
3
5
7
9
8
10
6
4
Metsölulisti
Vikuna 17. - 23. nóvember