Heilsuvernd - 01.09.1952, Blaðsíða 10
70
HEILSUVERND
eyrum fleiri manna og helzt allrar þjóðarinnar, með ómót-
mælanlegum sönnunum um afglöp og mistök í meðferð
þeirra matvæla, sem hún hefir daglega á milli handa. —
Því betur sem ágengt verður um þá fræðslu, því meiri
likur verða fyrir því, að fleiri en ella hneigist að gagn-
gerðum breytingum á mataræði, jafnframt því að sú sama
aukna þekking og fræðsla vinnur smámsaman á um holl-
ustusamlegri matargerð allra hinna, sem þó halda í aðal-
atriðum við sama fæðuval.
FÖSTUR.
Föstur eru gamalt og gott læknisráð. Á síðari tímum hafa þær aft-
ur komizt til vegs og virðingar og verið allmikið um þær ritað.
Meðal þeirra, sem það hafa gert, er hinn þekkti næringarfræðingur
Ragnar Berg. Hann telur föstuna verða áhrifaríkari, ef menn
drekki einhverja lútargæfa drykki, meðan á henni stendur, svo
sem seyði af grænmeti eða hráa grænmetis- og aldinsafa. Meðan
fastað er, lifir líkaminn á sjálfum sér. Við þau efnaskipti myndast
sýrur og úrgangsefni. En þau brenna þeim mun fljótar og tæm-
ast þeim mun örar út úr líkamanum sem hann hefir meira af
lútarefnum til umráða. Ofannefndir drykkir hafa því hin beztu
áhrif og flýta mjög fyrir hreinsunarstarfinu. Auk lútarefnanna flytja
þeir likamanum fjörefni og steinefni. Talið er hæfilegt að drekka
um tvo lítra á dag (vatn eða jurtaseyði eða grænmetis- og aldinsafa),
meðan fastað er. Þann tíma er og nauð.synlegt að skola ristilinn dag-
lega með 1—2 litrum af volgu vatni. — 1 2. hefti 1940 er grein um
föstur eftir franskan lækni með nokkrum frásögnum af áhrifum
þeirra á sykursýki o. fl. sjúkdóma.
ÞEIR LOKA AUGUNUM.
James C. Thomson, forstöðumaður við Kingston Clinic í Edin-
borg, þar sem eingöngu er beitt náttúrlegum lækningaaðferðum,
að mestu án venjulegra lyfja eða skurðaðgerða, segir í bók sinni
„Why chronic disease?“ (Af hverju stafa langvinnir sjúkdómar?):
„Eg hefi margsinnis boðið læknum og rannsóknarnefndum að
rannsaka sjúklinga mína, meðan þeir eru undir minni hendi og
eítir að þeir hafa hlotið bata. Oftast hefi ég ekki einu sinni verið
virtur svars“.