Heilsuvernd - 01.09.1952, Side 29
HEILSUVERND
Hvað er ofstæki?
Orðið ofstæki er munntamt mörgum þeim, sem af ýms-
um ástæðum, svo sem skorti á þekkingu eða rökum, telja
vænlegra að nota sterk vígorð en málefnarök. Brautryðj-
endur nýrrar stefnu í heilþrigðis- og næringarmálum hafa
hvarvetna fengið að kenna á þeirri bardagaaðferð, bæði
af hendi lækna og leikmanna. Og formælendur náttúru-
'lækningastefnunnar hér á landi hafa ekki farið varhluta
af þessari tegund „rökræðna“, fyrr og síðar.
Hvað er ofstæki? Er það ofstæki að hirða bílinn sinn
vel, svo að hann líti jafnan vel út og endist sem lengst, sjá
honum fyrir réttu eldsneyti, réttri smurningu og nauð-
synlegu viðhaldi? Er það ofstæki að vanda til fóðurs
mjólkurkúnna og refanna eftir bezta viti og þekkingu til
þess að firra þau sjúkdómum og fá sem mestan arð af
þeim? Er það ofstæki að vilja ekki eitra líkama sinn með
skaðlegum efnum, svo sem kókaíni, áfengi, nikótíni eða
koffeíni? Er það ofstæki að forðast þau matvæli, sem eig-
in reynsla, reynsla annarra að fornu og nýju og margvís-
legar rannsóknir og athuganir merkra lækna og fræði-
manna hafa sýnt að vera skaðlegar? Eða er það máske
ofstæki að geta ekki þolað öðrum að haga sér á annan
veg en fjöldinn?
Fyrir nokkrum árum þótti það versta skammaryrði að
vera kallaður hrossakjötsæta. Nú eru þeir menn hafðir
að háði og spotti, sem geta ekki borðað hrossakjöt eins
og annað kjöt. Ekki eru mörg ár síðan Jónas læknir Krist-
jánsson var talinn mesti öfgamaður fyrir að fordæma
hvitt hveiti og sykur sem óhæfar og heilsuspillandi fæðu-
tegundir, og hann og aðrir, sem honum fylgdu að málum,