Heilsuvernd - 01.09.1952, Blaðsíða 35
HEILSUVERND
95
LÆKNIRINN HEFIR ORÐIÐ.
Um fjörefna- og steinefnalyf.
R. C. Garry, prófessor í lífeðlisfræði við háskólann í Glasgow,
sagði í ræðu i félagi brezkra lyfjaifræðinga árið 1948: „Það er
óhyggilegt, án knýjandi nauðsynjar, að bæta fjörefnum og stein-
efnum í matvæli. Þekking okkar nær enn sem komið er skemmra
en svo, að öruggt sé, að slíkar ráðstafanir valdi ekki tjóni“.
(Honest hread).
B. T. Fraser, enskur náttúrulæknir, kemst svo að orði: „Efna-
skortur í líkamanum þarf ekki að stafa af vöntun efna i viður-
værinu, heldur af þvi, að líkaminn geti ekki, einhverra orsaka
vegna, hagnýtt sér næringarefnin. Þótt nóg sé t. d. af kalki í
daglegu fæði, getur ofsýring líkamans hindrað fulla nýtingu þess.
En ofsýring er afleiðing af of mikilli neyzlu sýrugæfra fæðuteg-
unda (kjöt, fiskur, egg, kornmatur). Meltingartruflanir og skortur
á D-fjörefni geta einnig varnað því, að kalkið meltist og síist
inn i blóðið. Ennfremur hindra meltingartruflanir meltingu
járnsins i fæðumni. Af þessum ástæðum koma járn- eða kalk-
iyf ekki að tilætluðum notum, auk þess sem þau standa mjög
að baki hinum líifrænu járn- og kalksamböndum i náttúrlegri
fæðu“. (Rude Health).
Dr. Weston Price, sem rannsakað hefir heilbrigðisástand frum-
stæðra þjóða um allan heim, og þar á meðal sérstaklega útbreiðslu
tannskemmda, segir:
„Það er ekki hægt að fullnægja efnaþörf líkamans með þvi að
bœta í fæðið nokkrum tilbúnum efnum, sem vitað er, að líkaminn
þarfnast .... Líkami mannsins getur ekki nýtt svo vel sé stein-
efni í ólífrænni mynd“. (Rude Health).
ÚTBREIÐIÐ BÆKUR N. L. F. í.
SAFNIÐ ÁSKRIFENDUM AÐ HEILSUVERND.
Garðyrkjusýning verður í KR-skálanum í Kaplaskjóli 2G. sept.
til 5. okt. N.L.F.Í. var hoðin þátttaka í sýningunni og sýnir þar
m. a. ýmsa rétti og grænmetisdrykki, brauð úr nýju mjöli o. fl.
Gefst sýningargestum kostur á að gæða sér á þessum réttum.
Hvítlaukur er kominn til landsins og' verður seldur í verzlunum
Silla og Valda Vesturg. 29 og Háteigsv. 2.
Nýrir áskrifendur, sem greiða áskriftargjald fyrirfram, fá í
kaupbæti einhvern af árgöngunum 1947—48 eða 1951.