Heilsuvernd - 01.06.1953, Síða 13
HEILSUVERND
41
40—50 flöskur á dag eða meira. Einn hældi sér af því að
hafa drukkið 96 flöskur á einum degi.
Af tilraununum í bifreiðaakstri dregur Goldberg m. a.
þá ályktun, að maltdrykkir, sem nema 3—4 flöskum af
3,2% öli, eða brennd vín, sem nema 1,0—1,3 dl
af brennivini, minnka hæfni æfðs bílstjóra að aka
bifreið um hér um bil 25—30%, og er þá áfengismagnið
í blóðinu 0,4—0,6 pro mille.
Þessi áhrif koma greinilega í ljós og verða aðgreind frá
þeim, sem þreyta veldur og æfingar, þegar borið er saman
við hóp bifreiðastjóra, sem látnir eru leysa af bendi sömu
prófraunir án þess að hafa bragðað áfengi.
Áfengismagnið í blóðinu ræður úrslitum um stig áfengis-
áhrifanna. Neðri mörk áfengisáhrifa við bifreiðaakstur eru
að meðaltali um 0,35—0,40 pro mille. En þetta alkóhól-
innihald verður að jafnaði í blóðinu, þegar maðurinn hefir
drukkið þrjár flöskur af 3,2% öli eða um það bil fjórar
flöskur af öli í öðrum flokki, það er 2,6% öli, eða þegar
maðurinn hefir drukkið %—1 1 af brennivíni. Þegar illa
stendur á og líkaminn tekur mjög fljótt við vínandanum,
getur enn minna áfengismagn minnkað starfshæfni. Annars
verður minna alkóhól í blóðinu og áhrifin minni af öli en
af sama magni áfengis í brenndum vínum.
Vínandinn hverfur skjótast úr líkamanum, þegar hans
hefir verið neytt í öli, en seinast, þegar hans er neytt í
brenndu víni. I þessu felst skýringin á því, að 'bjórvambir
geta hellt í sig slíkum kynstrum af öli á stuttri stundu.
Áhrif af 0,2 pro mille.
Um lágmarkið, sem áfengismagnið í blóðinu þarf að ná
til þess að áhrifa gæti, hefir áður verið sannað, að þetta
hlutfall getur verið mismunandi hjá einstaklingum innan
ákveðinna takmarka og að það hækkar eftir því sem mað-
urinn er vanari neyzlu áfengis. Hjá hófdrykkjumönnum
mun lágmarkið við tilteknar tilraunir í rannsóknarstofum
vera 0,2—0,4 pro mille. Ef þetta er umreiknað í áfengis-