Heilsuvernd - 01.06.1953, Síða 20
HEILSUVERND
Krabbamein framleitt meö tjöru.
I Fréttabréfi um heilbrigðismál, apríl 1953, er frá því
sagt, að með því að smyrja tjöru á húð tilraunamúsa, hafi
nær helmingur músanna sýkzt af krabbameini eftir 12 til
22 mánuði. En í tóbaki er nokkurt magn af tjöru (úr 200
sígarettum fást hvorki meira né minna en 9 gr), sem reyk-
ingamenn anda ofan í sig með reyknum.
1 Iþessu sambandi er rétt að rifja upp frásögn af merki-
legum tilraunum úr 2. hefti HEILSUVERNDAR 1949. Þar
segir svo:
„Hollenzkur prófessor, dr. H. T. Deelman að nafni, gerði
eftirfarandi tilraun:
Hann bar tjöru á eyrað eða á einhvern vissan stað á
músum daglega eða nokkrum sinnum í viku í nokkra mán-
uði samfleytt. Margar mýnsar fengu krabbameinsæxli í
húðina á þeim stað, sem tjaran var borin á. Mýsnar voru
á ýmsum aldri, og fengu þær yngri krabbamein ekki síður
en hinar eldri. Mælir það gegn þeirri skoðun ,að krabba-
mein sé í eðli sínu ellisjúkdómur. Hinsvegar sýndi það sig,
að það þurfti að halda tilrauninni áfram í marga mánuði,
eða sem svarar 10 til 30 árum í ævi mannsins, til þess að
æxli mynduðust. Enda er það margstaðfest af reynslunni,
þar sem tímaákvörðun hefir verið möguleg, að krabba-
mein í mönnum er mörg ár eða jafnvel áratugi að búa um
sig, áður en það brýzt út.
Það er kunnugt, að í tjöru og biki eru eiturefni. Það eru
þessi eiturefni, sem framleiða krabbamein í tilraunamúsun-
um, þegar þau fá að verka nægilega langan tíma. Eitur-
áhrifin eru svo lítil, að þeirra verður ekki vart jafnóðum,
en stöðug og langvarandi verkun hinna smáu eiturskammta
hefir þessi örlagaríku áhrif.
Nú var tilrauninni breytt á þann veg, að skinnspretta