Heilsuvernd - 01.06.1953, Qupperneq 22
HEILSUVERND
Hvernig geto ndmsmenn lifað ódýrost?
Sænskur námsmaður beindi þeirri spurningu til tíma-
ritsins Waerlands-Mánadts-Magasin, hvernig hann ætti að
fara að því að fæða sig fyrir einar 50 krónur á mánuði án
þess að þurfa að óttast skort á nauðsynlegum næringar-
efnum. Honum var sendur matseðill. sem fer hér á eftir.
Morgunverður: y3—y2 lítri súrmjólk, 1 bolli hveitikím
(50—60 gr), 2 meðalstórar kartöflur, hráar.
Hádegisverður: Krúska eða sambærilegur grautur (200
—250 gr), y2 1 nýmjólk, dálítið af soðnum kartöflum (eða
hráum).
Kvöldverður: 100 gr hráar gulrætur, annað eins af hvít-
káli (eða rófum) og grænkáli (eða salati og spínati), 3—400
gr kartöflur, Vs 1 áfir, 30 gr smjörlíki, nokkrar lauksneiðar,
nokkrar brauðsneiðar (úr ósigtuðu mjöli), dálítið af
steinselju.
Eftir sænsku verðlagi kostar efnið kr. 1,67 á dag eða
50 krónur á mánuði, og er þá gert ráð fyrir, að engu þurfi
teljandi að kosta til matreiðslunnar, enda er hún ekki
flóknari en svo, að hver og einn getur annast hana í 'her-
bergi sínu.
Fæði svipað þessu mundi kosta 7—10 krónur á dag hér
á landi. Til samanburðar má minna á, að efnið í fæðið í
hressingarheimili N.L.F.I. kostaði um 11 krónur á dag
sumarið 1951 en um 13 krónur sumarið 1952. En þar var
ekkert til sparað til að gera fæðið sem f jölbreyttast, mikið
notað af smjöri og rjóma, og grænmeti án tillits til verðs.
Matseðillinn hér að ofan er því góður leiðarvísir til handa
námsmönnum og öðrum þeim, er úr litlu hafa að spila. Með
því að fara eftir honum, ætti að vera auðvelt að fæða sig
fyrir 2—300 krónur á mánuði og fá þó stórum betra og
hollara viðurværi en matsöluhús hafa að bjóða — og jafn-