Heilsuvernd - 01.06.1953, Blaðsíða 34

Heilsuvernd - 01.06.1953, Blaðsíða 34
62 HEILSUVERND Félagsfréttir. Aðalfundur Náttúrulækningafélags ísafjarðar var haldinn 8. febr. 1953. Á árinu höfðu verið haldnir 3 félagsfundir, og á tveimur þeirra voru bornar fram veitingar, jurtate og smurt brauð, sem félagskonur sáu um. Stjórnin útvegaði félagsmönnum ávexti og útient jurtate. Basar var haldinn í því skyni að afla fjár til kaupa á kornmyllu. Sett var upp kornmylla, sem keypt var fyrir milli- göngu NLFÍ í Reykjavík. Félagar í árslok voru 66 (árið áður 55). Stjórn félagsins skipa: GuSmundína .1. Helgadóttir (form.), Sig- urður Hannesson (ritari), M. Sinison (gjaldkeri), Jónas Magnús- son og Helg'i Þorbergsson. , i : ; ; i . '. Aðalfundur Náttúrulækningafélags Akureyrar var haldinn í niarz 1953. Á árinu voru haldnir 2 stjórnarfundir og 2 félagsfundir. Á öðrum þeirra mætti Jónas læknir Kristjánsson og flutti erindi. Haldinn var útbreiSslufundur og sýnd þar sænska kvikmyndin „Leiðin til heilbrigði“. Keypt var kornmylla á árinu. Félagar í árslok voru 174, þar af 5 ævifélagar. í ársbyrjun voru félagar 124, og liefir þvi fjölgað urn 50. Stjórnin var öll endurkjörin, en hana skipa: Páll Gunnarsson, kennari (forni.), frk. Anna Laxdal, kaupk., Páii Sigurgeirsson, kaupm., Eiríkur SigurSsson, yfirkennari, og Barði Brynjólfsson, málarameistari. | > Aðalfundur Náttúrulækningafélags Akraness var iialdinn í maí 1953. Félagar eru rétt um 100 (voru 55 á næsta aSalfundi á undan). Nánari skýrsla verSur birt síðar. Pöntunarfélag Náttúrulækningafélags Reykjavíkur var stofnað nýiega fyrir forgöngu stjórnar NLFR. Stjórn þess skipa: Friðrik Lunddal, Hilmar J. NorSífjörS, Klemens Þórleifsson, Marteinn M. Skaftfells og Steindór Björnsson frá Gröf. Hressingarheimili NLFÍ var opnaS 20. júní í húsmæSraskólan- um Hverabökkum í HveragerSi. Forstöðukona er ungfrú Sigur- laug Jónsdóttir, hússtjórnarkennari, og ungfrú Þorbjörg ÞórSar- dóttir, hússtjórnarkennari, sem starfaði um skeið við hressingar- heimili NLFÍ í Varmalandi sl. suniar, verður matreiðslukona. Skrifstofa NLFÍ er flutt að Týsgötu 8. Gjafir í Heilsuhælissjóð NLFÍ: Frá Halldóri Stefánssyni, Flókag. 27, 100 krónur.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.