Heilsuvernd - 01.03.1959, Blaðsíða 16

Heilsuvernd - 01.03.1959, Blaðsíða 16
8 HEILSUVERND ingarefni eru nauðsynleg til þess að fæði geti talizt full- gilt. Og það er athyglisvert, að þótt þeir séu ekki jurta- neytendur hafa þeir komizt að sömu niðurstöðu og Are Waerland. Og í sambandi við þær tvær meginstoðir waerlandsfæðisins, sem ég á eftir að ræða, kornmatinn og sérstaklega mjólkurmatinn, styðst ég m. a. við rannsóknir þessara vísindamanna. Um verðmæti ósigtaðra korntegunda þarf ég ekki að fjölyrða, svo vel þekkt sem þau eru. Samt er það svo, að margir jurtaneytendur vanmeta brauð og grauta úr ósigt- uðu mjöli, svo og soðnar kartöflur. Án þessara matvæla getur jurtafæði þó aldrei náð almennri útbreiðslu. 1 ósigt- uðu mjöli eru m. a. 5 milligrömm af B^-fjörefni í hverju kílógrammi og 24 mg af E-fjörefni, og gefur þetta korn- matnum ómetanlegt gildi, auk þess sem hann inniheldur mikla orku. Þessi efni eru nauðsynleg jafnt andlega sem líkamlega starfandi mönnum. Allt andlegt starf krefst einn- ig mikillar glutaminsýru, sem mikið er af í kornmat. Þriðja meginstoð waerlandsfæðisins, mjólk og mjólkur- afurðir, á því miður ekki upp á pallborðið hjá sumum flokkum jurtaneytenda. En þetta er einn veigamesti þátt- urinn í viðurværi okkar. Hér er það sérstaklega, sem nýj- ustu vísindarannsóknir hafa staðfest kenningar okkar. Og enginn getur borið á það brigður, að mjólkin er sú fæðu- tegund, sem öðrum fremur sér líkama okkar fyrir kalki. Ýmsir hafa borið Are Waerland á brýn ósamkvæmni í sambandi við neyzlu mjólkur, sem inniheldur dýraeggja- hvítu. En til þess lágu margar ástæður, að Waerland tók mjólkurmat upp í viðurværi sitt. Mjólkin er útbreidd fyrsta flokks fæðutegund, sem inni- heldur mörg verðmæt næringarefni. Sé hún látin niður falla verður að bæta lákamanum það upp með t. d. hnet- um, sem er dýr matur og ekki eins fjölbreyttur að nauð- synlegum næringarefnum og mjólkin. 1 því sambandi vil ég segja frá hörmulegri reynslu hins þekkta þýzka jurta- neytanda, Walters Sommers. Hann og börn hans lifðu ein-

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.