Heilsuvernd - 01.03.1959, Blaðsíða 33
HEILSUVERND
25
vöðvans. Af æðaþrengslunum leiðir ennfremur að fótlegg-
ir og fætur verða kaldir, tærnar blána, neglur aflagast
og þykkna. Síðar birtast svartir blettir, sem sýna að drep
er að byrja í fætinum. Getur svo farið að taka þurfi tær
eða fætur af sjúklingnum.
4. Æðatappar geta komið út frá æðakölkun. Þá hefir
blóðstorka sezt innan á skemmd í æðavegg, hluti af þess-
ari blóðstorku losnar og berst lengri eða skemmri veg,
unz tappinn stöðvast og stíflar æðina. Einkennin verða
lík því sem að ofan er lýst, eftir því hvar í líkamanum
tappinn stöðvast: hjartaslag, heilablóðfall eða verkir og
drep í fæti. Stöðvist tappinn í lungnaslagæð, getur það
einnig haft banvænar afleiðingar.
Eins og áður er sagt eru hinar eiginlegu orsakir æða-
kölkunar lítt þekktar. Sykursýkisjúklingar fá stundum
æðakölkun á mjög háu stigi. En sykursýki er mikil truflun
á efnaskiptum líkamans, og mætti því ætla, að efnaskiptin
almennt, sem standa í nánu sambandi við næringuna, væru
þáttur í orsakakeðjunni.
Ennfremur fær fólk sem mikið reykir, og ekki sízt fólk
á bezta aldri, stundum kvalir í útlimi. hendur eða fætur,
líkar þeim sem lýst er hér að ofan, og með svipuðum
afleiðingum. Þetta stafar af því að við reykingarnar
þrengjast æðarnar, eins og sjá má m. a. á því, að við að
reykja eina sígarettu lækkar húðhiti á fingrum eða tám
um 2—3 stig. Sennilega á tóbakið því ekki litla sök á
æðakölkun, og er þegar hér á undan drepið á þátt þess
í myndun kransæðasjúkdóma.
Heilsa okkar fer fyrst og fremst eftir ástandi æðakerf-
isins. Æðarnar greinast í hárfínt net sem umlykur hverja
frumu líkamans, færir þeim næringu og flytur frá þeim
úrgangsefni. Þetta eru frumskilyrði þess að fruman sé
fyllilega starfhæf. Truflun á ástandi blóðs og æða getur
því valdið sjúkdómum jafn margvíslegum og líffærin og
störf þeirra eru margbreytileg.
Sumir telja að menn eigi að lifa 120 ár eða þaðan af