Heilsuvernd - 01.03.1959, Blaðsíða 18

Heilsuvernd - 01.03.1959, Blaðsíða 18
10 HEILSUVERND salts varðveitir hún að miklu leyti C-fjörefni sín óskert. Kartöflur eru nauðsynlegar í fæði almennings, ekki að- eins hráar, heldur og soðnar, þar eð varla er hægt að borða þær hráar í nógu mikiu magni. Prófessor Schweigart kveðst hafa reynt og rannsakað waerlandsfæðið nákvæmlega og komizt að þeirri niður- stöðu, að það sé á allan hátt fuilnægjandi og innihaldi öll nauðsynleg fjörefni, steinefni og önnur lífefni í réttum hlutföllum. Sérstaklega sé það auðugt að nauðsynlegum eggjahvítuefnum. Það fullnægi þannig öllum þeim kröf- um, sem hann hafi sjálfur sett fram. Prófessor Halden er sömu skoðunar. Báðir hafa boðizt til að mæla með þessu fæði í fyrirlestrum sínum. Árlega halda fyrrnefnd samtök vísindamanna fjölmenn þing í Þýzkalandi. Þeir hafa komizt að nákvæmlega sömu niðurstöðu og Are Waerland varðandi heilbrigt líferni og gefið út yfirlýsingu, þar sem lögð er höfuðáherzla á eftir- farandi atriði: heilnæma fæðu, hreint vatn, hreint loft, allt án mengunar frá skaðlegum efnum, geislavirkum úr- gangsefnum og bakteríueyðandi lyfjum. Ennfremur heil- brigðan jarðveg. Yfirlýsingunni lýkur með þessum orðum: „Nauðsynlegt er að flytja líkamanum reglulega nægi- lega mikið af lífefnum, svo sem nauðsynlegum eggjahvítu- og fituefnum og fjörefnum. Þannig á næringin að geta komið í veg fyrir tannskemmdir, krabbamein, hjarta- og meltingarsjúkdóma og hverskonar menningarsjúkdóma“. En waerlandskerfið gengur ekki eingöngu út á mata- ræði, heldur alla þætti daglegs lífernis, sem áhrif geta haft á heilsuna. M. a. hefir Waerland lagt áherzlu á háttbundnar sveifl- ur, sem vísindamenn hafa fundið í daglegum efnaskiptum líkamans. Skiptist sólarhringurinn í 3 tímabil, sem hvert er 8 klukkustundir. Þannig einkennist t. d. tímabilið frá kl. 4—12 f. h. af því, að þá er líkaminn að skilja út úr- gangsefni. Þennan tíma ætti ekki að íþyngja líkamanum

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.