Heilsuvernd - 01.03.1959, Síða 25
HEILSUVERND
17
En fleiri eru hornin, sem í þarf að líta. Holl fæða er
nauðsynleg, en enginn heldur þó heilsu til lengdar sem
ekki sefur þeim svefni, sem hann þarfnast, vanrækir alla
útivist og hreyfingu og neytir svo auk þess eiturlyfja. En
furðulegt er samt, hvað sumir mega bjóða sér. Enda nota
margir það sér til varnar, þegar þeir vilja réttlæta lifn-
aðarhætti sína. Yfirleitt er vandinn ekki í því fólginn að
segja til vegar. Benda má á fjölda bóka, sem er hin bezta
leiðsaga í heilsurækt. Hitt er erfiðara að skafa svo úr
eyrum manna, að orðin sleppi inn. Ekki inn um annað
eyrað og út um hitt, heldur alla leið inn, þangað sem
skynsemin býr. Hún sefur oft fast og þarf að ýta duglega
við henni. Þetta mannlega eðli, sem í okkur býr, er svo
erfitt viðfangs, því að hið góða, sem við viljum, gerum
við ekki. Þessvegna verðum við stöðugt að halda vökunni
og berjast við svefninn, sem að okkur sækir. Til þess þarf
trú. Trú á sigur hins góða málefnis, sem við viljum berj-
ast fyrir. Við erum aldrei nógu vakandi. Lítum til dæmis
á þetta félag okkar, Náttúrulækningafélagið. Hlutverk þess
er að fyrirbyggja sjúkdóma og stuðla að heilbrigði á sál
og líkama. Getur tilgangurinn verið betri? Hvers vegna
eru ekki fleiri í slíkum félagsskap? Hvers vegna sjáum við
svo fáa unglinga í hópi okkar? Við erum ekki nógu brenn-
andi í andanum, ekki nógu samtaka, ekki nógu mikið lif-
andi. Ég á ekki við að okkur skorti ofstæki. Af því verður
alltaf of mikið í heiminum. Það þrengir hugsunina og kynd-
ir undir sjálfbirgingslegri dómsýki. Það á ekkert skylt við
lif og anda, þó að sumir séu svo glámskyggnir að rugla
svo fjarskyldum hugtökum saman. Náttúrulækningafélag
á ekki að vera leiðinleg kredduklíka fyrir skrítið fólk, held-
ur lifandi, skemmtilegt og frjálslynt félag fyrir venjulega
dauðlega menn. Það krefst ekki annars bindindis en þess,
sem hver og einn kýs að leggja á sjálfan sig af fúsum og
frjálsum vilja. En annað er það, að með því að ganga í
félagið gefur þú til kynna, að þú sért stefnu þess hlynntur,
a. m. k. í aðalatriðum. Og þú verður að gera það upp við