Heilsuvernd - 01.03.1959, Síða 32
24
HEILSUVERND
afleiðingin orðið sú að æð stíflist eða bresti. f báðum
tilfellum lýsir þetta sér sem heilablóðfall. Einkennin eru
ákaflega margvísleg og á misháu stigi, eftir því hvar í
heilanum þetta skeður og eftir stærð æðarinnar. Stund-
um deyr sjúklingurinn svo að segja samstundis. Oft missir
hann meðvitund. Og oftast lamast hann að meira eða
minna leyti, venjulega aðeins á annarri hlið. Stundum
lamast öll hliðin, stundum aðeins andlitsvöðvar eða hluti
þeirra, eða handleggur eða fótur. Oft missir sjúklingur
málið. Menn geta náð sér og orðið fullfrískir eftir heila-
blóðfall, aðrir fá nokkurn bata.
3. Æðakölkun í nýrnaæðum er hættulegt ástand. Dag-
lega fara 500 til 1500 lítrar af blóði gegnum nýrun, sem
eru þýðingarmesta hreinsunartæki líkamans. Gegnum þau
losar líkaminn sig við mikið af úrgangsefnum, sem skiljast
út i þvagið. Það er því hætta á ferðum ef nýrnaæðarnar
þrengjast, því að þá minnkar blóðrennslið gegnum nýrun,
svo að úrgangsefnin hafa ekki möguleika á að skiljast
þar út í nægilega ríkum mæli. Nýrun eru undraverð líf-
færi. Þegar blóðið kemur inn í nýrun, síast hluti af blóð-
vatninu gegnum nýrnafrumurnar og inn í fyrsta hluta
þvagganganna. Nemur þetta blóðvatnsmagn 1/8 lítra á
mínútu eða tæpum 200 lítrum á sólarhring. Dálítið neðar
í hinum fíngerðu þvaggöngum nýrnanna fer meiri hlut-
inn af þessu blóðvatni gegnum aðrar frumur og aftur inn
í blóðrásina, en þessar sömu frumur hleypa auk þess
vissum efnum úr blóðinu öfuga leið út í þvagpípurnar. Út-
koman verður sú, að af þessum 200 lítrum sem síast gegn-
um nýrnafrumurnar fara aðeins 1.5 lítrar út úr líkaman-
um sem þvag. Menn geta lifað góðu lífi með eitt nýra.
En sýkist þau bæði, er lífshætta á ferðum.
3. Ef slagæðar í ganglimum þrengjast eða stíflast, fá
menn oft mikla verki í fætur, einkum við gang. Verkirnir
eru aðallega í kálfum og stafa af því að vöðvana vantar
súrefni. Þeir eru því svipaðs eðlis og hjartakveisan. Verk-
irnir líða frá við hvíld, því að þá dregur úr súrefniseyðslu