Heilsuvernd - 01.03.1959, Side 36

Heilsuvernd - 01.03.1959, Side 36
28 HEILSUVERND 3. I því eru einnig ómettaðar fitusýrur. 4. 1 því er einnig aukanæring, sem nýtur sín vel, þeg- ar um ungþörn er að ræða. 5. D-fjörvið í lýsinu virðist nýtast betur, að tiltölu, heldur en þegar um sterkari fjörviblöndur er að ræða. 6. Það er dálítið joð í lýsi. 7. íslendingar framleiða sjálfir mikið magn af fyrsta flokks lýsi, bæði til eigin afnota og útflutnings.“ Bls. 33: Mynd af 5 vikna gömlum kjúklingum. Sá stærsti fékk náttúriegt D-fjörvi úr lýsi. Miðfuglinn fékk gerfi-D- fjörvi, ,,Calciferol“, sama fjölda eininga og hinn fyrri. Minnsti fuglinn fékk ekkert D-fjörvi. Loks segir svo á bls. 123: „Margfróðir karlar og konur töldu lýsið vera allra meina bót, eða svo til. Vísindin hafa léð lýsinu eftirfarandi eiginleika, og mun þó varla full- talið: 1. Tryggir eðlilegan fósturþroska og vöxt og viðgang alls ungviðis og lengir lífið. 2. Fyrirbyggir og læknar beinkröm unglinga og bein- meyru fullorðinna og krampahneigð barna. Það tryggir og rétta tannbyggingu og flýtir fyrir að bein- brot grói. 3. Hefir vernandi áhrif á augun gegn augnbólgum, bæt- ir sjón undir vissum kringumstæðum og læknar náttblindu. 4. Verndar slímhúðir og hefir læknandi áhrif á ýmsa húðsjúkdóma. 5. Eykur mótstöðuafl gegn hitasóttum, sérstaklega andfærasjúkdómum, og ýmsum öðrum kvillum, sem sóttkveikjur valda. 6. Hefir lengi haft orð á sér sem gott sárasmyrsl, sér- staklega á brunasár og önnur sár, sem hafzt hafa illa við og gengið illa að skinnga. 7. Hefir yfir 50 ár verið viðurkennt lyf við meðferð berklaveiki, bæði til þess að byggja upp hina al-

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.