Heilsuvernd - 01.09.1959, Side 26
HEILSUVERND
Ennfremur hafa tilraunir sýnt, segir prófessor Halden, að
B-fjörefni veita vörn gegn geislaverkunum.
Loks kveðst próf. Halden 'hafa reynslu af því, að margir
þeir, er sýkzt hafa af mænuveiki, hafa lifað á mjög einhliða
fæði. Flestir hafa þeir borðað hvitt hveitibrauð, en ekki
heilhveitibrauð, og því hefir orðið þurrð á B-fjörefnum
hjá þeim. Hann segir, að dr. W J. Cormick hafi gefið mænu-
veikisjúklingum B-fjörefnasprautur með mjög góðum ár-
angri. Jafnfram lét hann sjúklingana borða mikið af mjólk
og mjólkurmat, grænmeti og ávöxtum.
Læknirinn hefir orðið
E. J. Stieglitz, amerískur læknir, segir: „Gallinn er sá,
að læknar hugsa aðallega um sjúkdóma, en gera sér ekki
grein fyrir því, að hægt er að efla náttúrlega heilbrigði
almennings“.
K. WaTker, þekktur enskur læknir, segir: „Sannleikur-
inn er sá, að læknar hafa verið svo önnum kafnir við að
rannsaka og lækna sjúkdóma, að þeir hafa varla haft tíma
til að kynna sér lögmál heilbrigðinnar“.
J. A. Ryle, annar enskur læknir, segir: „Læknastéttin
hugsar ennþá meira um að lækna sjúkdóma en að taka
fyrir rætur þeirra“.
H. E. Sigerist, enskur læknir, segir: „Það verður að
brjóta niður múrinn milli sjúkdómalækninga og sjúkdóma-
varna. En það verður ekki gert með því einu að bæta nýj-
um námsgreinum inn í læknisfræðinámið. Hugsunarhátt-
urinn þarf að breytast. Það þarf að vekja áhuga lækna-
nemanna á heilbrigði, í stað þess að beina huga þeirra aðal-
lega að sjúkdómum“.
(Úr „Health Culture").