Heilsuvernd - 01.09.1959, Page 31

Heilsuvernd - 01.09.1959, Page 31
HEILSUVERND 93 FLÚOR OG TANNSKEMMDIR. Á undanförnum árum hefir mjög verið um það deilt, hvort rétt sé að bæta flúor í drykkjarvatn almennings í því skyni að draga úr tannskemmdum (sjá 3. hefti 1958). Hæfileg flúorblöndun virðist bera nokkurn árangur í þessa átt. Hinsvegar er hætta á ferðum af slíkri blöndun, vegna þess að flúor er sterkt eiturefni. Hafa margir merk- ir læknar og vísindamenn varað við þessum hættum og sýnt, að þær hafa við rök að styðjast. Ennfremur hefir verið á það bent, að á annan hátt er hægt að ná miklum mun betri árangri í baráttunni við tannskemmdir (sbr. t. d. grein á bls. 92 í þessu hefti). Nýlega hefir þekktur danskur vísindamaður, tlr. med. Knud O. Möller, prófessor í lyfjafræði við háskólann í Kaupmannahöfn, kvatt sér hljóðs um þetta deilumál í dag- blaðinu Socialdemokraten. Hann segir, að samkvæmt ný- legri rannsókn, sem gerð var í Bandaríkjunum og náði yfir mikinn fjölda kvenna og barna hafi það komið í Ijós, að konur, sem notuðu flúorauðugt neyzluvatn, eignuðust oftar en aðrar konur svonefnda mongólska fávita. Auk þess telja menn sig áður hafa fundið, að mongólskum fávitum yfirleitt sé síður hætt við tannskemmdum en öðr- um börnum. Prófessor Möller telur sennilegt, að flúorinn verki sem lamandi eitur á efnakljúfa (enzym) líkamans og trufli þannig eðlilegan líkamlegan og andlegan þorska fóst- ursins. Meðal mongólsku fávitanna, sem skoðaðir voru í sam- bandi við ofangreinda rannsókn, fundust nokkrir með ský á augasteini. Slíkt einkenni er tíðara í byggðarlögum, þar sem flúormagn neyzluvatns er um 1 mg í lítra (en að því marki er stefnt vði flúorblöndun) en í héruðum með litlu flúormagni i neyzluvatni. (Að mestu úr HÁLSA, 1959, 5).

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.