Heilsuvernd - 01.09.1959, Qupperneq 33
HEILSUVERND
95
FRÉTTIR
frá heilsuhæli N.L.F.Í. í Hveragerði.
Byggingarframkvæmdir.
Nýja viðbótarbyggingin, sem lesendum Heilsuverndar
er kunnugt um að byrjað var að byggja síðastliðið haust,
er nú það langt komin, að sjúklingar eru fyrir nokkru
farnir að búa í hluta hennar. öll herbergin munu verða
komin í notkun um 25. júlí. Eftir er þó að dúkleggja og
fullmála, en það verður gert á næsta vetri, þegar aðsókn
að hælinu minnkar.
Aðsókn að hælinu.
Umsóknir um hælisvist eftir 15. ágúst, þegar sjúkra-
samlagssjúklingar verða teknir inn á ný, eru meiri en
svo, að allir sem pantað hafa geti komizt inn þá strax.
Flestir þessara sjúklinga munu dvelja 4—6 vikur, og nú
þegar eru upp pöntuð þau rúm, sem losna í september,
þegar fyrsti hópurinn fer. Nokkuð er komið af pöntunum
um hælisvist í október, enn er þó hægt að bæta við á
þann mánuð.
Daggjöld og greiðslur.
Daggjöld þeirra sjúklinga, sem njóta nuddmeðferðar,
leirbaða eða annars slíks, eru kr. 135.00. Þar af hafa öll
sjúkrasamlög landsins heimild til að greiða kr. 100.00, en
eru ekki skyldug til þess, lögum samkvæmt. Þetta veldur
því, að stjórnir hinna ýmsu sjúkrasamlaga haga þessu á
ýmsan hátt. I Reykjavík og víða annarsstaðar greiða sjúkra-
samlögin kr. 100.00 á dag í allt að 42 daga, einu sinni á ári,
fyrir þá sjúklinga, sem þess óska og eru taldir þurfa á hæl-
isvist hér að halda, samkvæmt dómi trúnaðarlæknis. önn-
ur hafa samþykkt lægri upphæðir, og til mun það vera, að
þessi greiðsla sé miðuð við eitt skipti á ævinni fyrir hvern
sjúkling, en þess munu mjög fá dæmi, sem betur fer. Vegna