Heilsuvernd - 01.09.1959, Síða 34
96
HEILSUVERND
þessa misræmis og eins vegna hins, að mjög seint gengur
að fá greiðslur hjá ýmsum sjúkrasamlögum, þá mun nú
um miðjan ágúst verða tekið upp það fyrirkomulag á hæl-
inu, að sem flestir sjúklingar greiði dvöl sína hér að fullu
sjálfir og innheimti svo hjá sínu sjúkrasamlagi, þegar heim
kemur.
Hælislóðin.
Lítilsháttar er nú byrjað á að rækta og slétta næsta
umhverfi hælisins, og mun því verki verða haldið áfram
á næstu árum. Á sumardaginn fyrsta s.l. barst hælinu
skemmtileg sumargjöf. Var það sjóður að upphæð kr.
2.700.00. Þessi peningaupphæð var samskotafé frá flestum
þeim sjúklingum, sem hér dvöldu þá. Átti Haraldur Halls-
son frá Steinkirkju forgöngu um þessi samskot, en þau voru
ánægjulegur vottur um þann áhuga um velferð stofnunar-
innar, sem rikir hjá þeim, sem hér dvelja.
Sundlaugarklukka.
Annað atriði má nefna, sem bendir á umbótaáhuga
sjúklinganna. Það er að nú hefir verið keypt sundlaugar-
klukka fyrir samskotafé sjúklinganna og starfsfólksins.
Hefir henni verið komið fyrir, þar sem vel sér á hana úr
lauginni.
Kapellusjóðurinn.
Enn hafa borizt nokkrar gjafir og áheit í kapellusjóð-
inn, og ætti fólk hann vel að muna, ef það vill og getur
látið eitthvað af hendi rakna góðu máli til framdráttar.
Ráðskonuskipti.
Hinn síðasta júní s.l. lét af störfum sem ráðskona hælis-
ins frú Sigurlaug Jónsdóttir. Hún hefir starfað hér mörg
ár af frábærum áhuga, dugnaði og samvizkusemi, en varð
nú að hætta vegna heimilisástæðna. Við starfinu tók ung-
frú Kristrún Jóhannsdóttir, Hveragerði. Er hún vel mennt-
uð og áhugasöm um framgang stefnu okkar og starfs.