Fréttablaðið - 09.12.2021, Qupperneq 4
Kostnaður við flutning á
gámi frá Asíu til Íslands hefur
tífaldast. Hrávara hefur
hækkað um allt að 340 pró-
sent. Seðlabankinn vonar að
kúfnum sé náð, en útilokar
ekki vaxtahækkun.
bth@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Miklar áskoranir eru
hjá fjölmörgum fyrirtækjum hér á
landi, ekki síst í iðnaði og verslun,
vegna verðhækkana á hrávöru og
flutningum. Samhliða þessu veldur
vöru- og aðfangaskortur ýmsum
vandræðum. Hagfræðingur Sam-
taka iðnaðarins (SI) segir að ástand-
ið leiði til aukins kostnaðar við
framleiðslu, meiri verðbólgu víða
um heim og kaupmáttarskerðingar
heimilanna.
„Þetta ástand tengist efnahags-
batanum í heiminum sem fram-
boðshliðin hefur átt í erfiðleikum
með að mæta,“ segir Ingólfur Ben-
der, aðalhagfræðingur SI.
Fordæmalítil verðbólga er í
Bandaríkjunum, 6,2 prósent á árs-
grundvelli og 4,9 prósenta verð-
bólga á evrusvæðinu. „Þetta er
mjög mikil verðbólga í sögulegu
samhengi og yfir verðbólgumark-
miði bæði bandaríska og evrópska
seðlabankans,“ segir Ingólfur.
Sumar tegundir af hrávöru hafa
stökkbreyst í verði á árinu. Liþíum
hefur hækkað um 340 prósent. Þá
hefur magnesíum hækkað um 153
prósent. Verslunarmenn, ekki síst í
byggingariðnaði, segjast hafa lent í
vandræðum vegna skorts á silíkoni
og magnesíum.
Ingólfur segir að timbur og stál
séu meðal þess sem hafi hækkað í
verði, allt niður í smæstu skrúfur.
Viðspyrnan í efnahagslífinu eftir
Covid hafi fylgt hratt vaxandi eftir-
spurn, sem hafi orðið meiri en sem
nemur framleiðslu- og f lutnings-
getu. Skortur á gámum hafi bæði
tafið f lutninga á heimsvísu og
hækkað verð þeirra. Kostnaður við
f lutning á 40 feta gámi frá Austur-
Asíu til Norður-Evrópu hefur nær
tífaldast frá upphafi faraldursins.
„Ástandið hefur varað lengur en
greiningaraðilar reiknuðu með í
fyrstu,“ segir Ingólfur. „Við sjáum
að bæði fyrirtæki og heimili þurfa
að taka á sig aukinn kostnað, aukna
verðbólgu og lækkun kaupmáttar.
Þetta gæti líka leitt til hækkunar
á vöxtum, ekki síst ef þetta hefur
áhrif á verðbólguvæntingar.“
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
segist binda vonir við að hámarkinu
sé náð í hrávöruverðshækkunum.
Seðlabankinn hafi litla stjórn á
erlendri verðbólgu, en verkefnið
sé að gæta þess að áhrifin fari sem
minnst út í kerfið.
Ásgeir varar við því að fyrirtæki
noti tækifærið nú umfram aðstæður
til að hækka vöruverð. Slíkt gæti
haft áhrif á kjarasamninga. Þá sé
ákveðin hætta á að viðvarandi
fjögurra til fimm prósenta verð-
bólga leiði til agaleysis.
„Það er ekki hægt að útiloka að
þetta ástand leiði til vaxtahækkana
ef þessi þróun leggst með öðrum
þáttum,“ segir Ásgeir. „En hækkun
á hrávöru þýðir ekki bara tap heldur
líka tækifæri fyrir útflutning á áli
frá Íslandi og í sjávarútvegi.“
Svanur Karl Grjetarsson, eigandi
MótX, byggingarfyrirtækis á íbúða-
markaði, segir dæmi um allt að 30
prósenta hækkun á timbri.
„Menn eru að reyna allt hvað þeir
geta til að hagræða og stýra inn-
kaupum þannig að verðhækkunum
sé stillt í hóf. En það er högg þegar
f lutningskerfið lamast á þennan
hátt og aðföng verða erfið. Það er
ekki auðvelt að búa á eyju þegar
svona árar,“ bætir hann við. n
Þetta gæti líka leitt til
hækkunar á vöxtum,
ekki síst ef þetta hefur
áhrif á verðbólguvænt-
ingar.
Ingólfur Bender,
aðalhagfræð-
ingur SI
Flutningskostnaður tífaldast á gámi
frá Asíu og hrávara hækkað mikið
Ein afleiðing
eftirspurnar-
vandans er að
kostnaður við
flutning á 40
feta gámi frá
Austur-Asíu til
Norður-Evr-
ópu hefur nær
tífaldast frá
upphafi Covid-
faraldursins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Ásgeir Jónsson,
seðlabanka-
stjóri
480.000 KR.
VSK verð
hækkun um
áramótin*
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSKBANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • JEEP.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 1017 • LAUGARDAGA 1216
*Verð á Compass og Renegade hækkar um áramótin vegna VSK hækkana.
**Bjóðum upp á 35”40” breytingapakka fyrir Wrangler.
JEEP WRANGLER RUBICON
TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI
JEEP COMPASS
TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI
TRYGGÐU ÞÉR JEEP
Á LÆGRA VERÐI
ALVÖRU JEPPI. ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
Nú er tilvalið að tryggja sér alvöru jeppa
með alvöru fjórhjóladrifi í forsölu.
Áætlað er að bílarnir verði tilbúnir til
afhendingar í desember.
birnadrofn@frettabladid.is
MENNING Tónleikagestir bæði í
Hörpu og Hofi hafa aldrei verið
færri en á síðasta ári, samkvæmt
tölum á vef Hagstofunnar.
Á síðasta ári mættu tæplega 60
þúsund gestir á 424 tónleika sem
haldnir voru í þremur stærstu
tónleikahúsum landsins, það er
í Hörpu, Hofi og Salnum. Í fyrra
voru tónleikagestir í þessum sömu
húsum yfir 205 þúsund talsins.
Á síðasta ári sóttu 17.658 gestir
tónleika hjá Sinfóníuhljómsveit
Íslands en fara þarf aftur til ársins
1977 til að finna færri gesti. n
Ekki færri gestir á
tónleika í áratugi
arib@frettablaðið.is
REYK JAV ÍK S k i p u l a g s - o g
samgöngu ráð Reykjavíkurborgar
samþykkti í gær einróma, deili-
skipulag að nýju hverfi á Ártúns-
höfða. Um er að ræða Ártúns-
höfðasvæði 1, sem er efra svæðið
í kringum Stórhöfða. „Þetta svæði
verður í kringum torg sem mun
bera heitið Krossamýrartorg,“ segir
Pawel Bartoszek, formaður skipu-
lags- og samgönguráðs.
„Þarna verða um 1.570 íbúðir
auk verslunarstarfsemi og vonandi
menningarstarfsemi. Það munu
vonandi um fjögur þúsund manns
kalla þennan stað sitt heimili þegar
uppbyggingu er lokið.“
Gert er ráð fyrir fjölbreyttum
ferðamáta, bílastæði verða í sam-
nýtanlegum kjöllurum.
Samþykktu hátt í sextán hundruð íbúðir á Ártúnshöfða
Pawel Bartos-
zek, formaður
skipulags- og
samgönguráðs
Um er að ræða mikla umbreyt-
ingu á svæðinu. „Þetta er grátt
svæði, eins og það er stundum
kallað, með plássfrekri starfsemi,
bílasölur mikið til. Þetta er algeng
þróun í borgum, að svæðum sem
eru á einhverjum tímapunkti
staðsett í jaðri byggðar er breytt í
íbúðasvæði,“ segir Pawel.
Deiliskipulagið fer fyrir borgar-
ráð, líklega í næstu viku, og þaðan í
auglýsingu í Stjórnartíðindum.
Pawel er spenntur fyrir verkefn-
inu framundan.
„Ég geri ekki ráð fyrir að þetta
ferli taki mikinn tíma. Eftir það
eru það lóðahafar sem stjórna svo-
lítið ferðinni hvað varðar uppbygg-
ingarhraðann, en það er ekkert því
til fyrirstöðu að f lytja starfsemina
sem er þarna fyrir og byrja að rífa
og byrja að byggja.“ n
arib@frettabladid.is
REYKJAVÍK Átta heimilislausir ein-
staklingar í Reykjavík hafast við
á víðavangi við slæmar aðstæður.
Þetta kemur fram í stöðumati á
stefnu í málefnum heimilislausra,
sem lagt var fram á fundi velferðar-
ráðs Reykjavíkurborgar í gær.
Alls er 301 einstaklingur í borg-
inni skilgreindur heimilislaus.
Stærsti hluti hópsins, eða 54 pró-
sent, býr í húsnæði fyrir heimilis-
lausa eða á áfangaheimilum. Aðrir
nýta neyðargistingu. Til stendur að
stofna stýrihóp um endurskoðun
aðgerðaáætlunar á stefnunni. n
Átta heimilislaus
Margir hafast við á áfangaheimilum.
4 Fréttir 9. desember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ