Fréttablaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 19
Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli Sumir stjórnmálaskýrendur telja að VG hafi farið halloka í samning- um stjórnarflokkanna um nýjan stjórnarsáttmála og uppstokkun ráðuneyta. Til að komast að þessari niður- stöðu verða menn þó að horfa á VG eins og hún var. Þá má segja sem svo að VG hefði líklega fengið meira út úr því að taka Framsókn með í samstarf við Samfylkingu og Flokk fólksins. Veruleikinn er hins vegar allt annar. Flóknara dæmi VG er ekki lengur róttækur flokkur nema í náttúruvernd. Fyrir fjórum árum náði hann þeirri stöðu að ráða hvernig ríkisstjórn yrði mynduð og hélt henni þrátt fyrir verulegt tap í kosningunum. Þorri kjósenda VG er sáttur við kyrrstöðupólitík í efnahags- málum. Atvinnulífið er hins vegar viðkvæmara fyrir henni. Að því leyti gæti Sjálfstæðisflokkurinn verið í þrengri stöðu en VG eftir endurnýjun samstarfsins. Ýmsir telja að VG hafi fórnað drottningu með því að láta umhverfisráðuneytið af hendi til Sjálfstæðisflokksins og fallast á að orkumálin yrðu hluti af þeim pakka. En dæmið er aðeins flóknara. Auðvelt þóf Á sumum sviðum er löggjöf svo opin að ráðherra getur án laga- breytinga og samráðs við sam- starfsflokka breytt stefnunni í grundvallaratriðum. Heilbrigðis- ráðherra nýtti sér þetta á síðasta kjörtímabili. Í orkumálunum getur ráðherra hins vegar ekki hreyft sig um hænufet án nýrra lagaheimilda og samkomulags við samstarfs- flokka. VG hefur því fullkomið stöðvunarvald á þessu sviði, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði ekki í heilbrigðismálunum á síðasta kjörtímabili. Ekki verður því annað séð en að VG hafi valdað þessa stöðu býsna vel. Þau þurfa ekki að hafa meira fyrir því að þæfa orkumálin en Sjálfstæðisflokkurinn hafði fyrir því að bregða fæti fyrir stjórnar- skrármál forsætisráðherra á síðasta kjörtímabili. Þverstæðan Loftslagsmálin og orkumálin eru eitt stærsta viðfangsefni næstu ára. Þverstæðan í íslenskri pólitík endurspeglast með afar skýrum hætti á þessu málasviði. Án orkuskipta ná menn tak- mörkuðum árangri í að koma í veg fyrir kolefnislosun. Og án nýrra virkjana verður lítið úr orku- skiptum. Ungir umhverfissinnar gáfu Sjálfstæðisflokknum falleinkunn í loftslagsmálum fyrir kosningar. En VG kom út með láði. Veruleikinn er hins vegar sá að VG er á móti nauðsynlegum virkj- unum til þess að orkuskiptin geti átt sér stað. En leifarnar af gömlu stóriðjustefnunni gera það að verkum að Sjálfstæðisflokkurinn er tilbúinn til þess að virkja til þess að ná settum loftslagsmarkmiðum. Við erum á þeim tímapunkti að VG valdar stöðuna býsna vel komast ekki hjá því að forgangs- raða eða miðla málum milli nátt- úruverndar og loftslagsverndar. En VG getur það ekki. Í raun og veru hefur VG því komið innri pólitískum veikleika í þessu efni yfir á Sjálfstæðisflokk- inn. Ábyrgðin Mjög ólíklegt er að VG muni nota neitunarvaldið til þess að stöðva allar virkjanaframkvæmdir. En ákvarðanir verða dregnar á langinn og þær munu á endanum hvorki duga til þess að fullnægja kröfum um orkuskipti né til þess að ná framsæknum hugmyndum um að nota orku í ríkari mæli til verðmætasköpunar. Náist loftslagsmarkmiðin ekki situr Sjálfstæðisflokkurinn uppi með ábyrgðina. En VG verður í skjóli. Að auki mun það reynast Sjálf- stæðisflokknum erfitt ef hann getur ekki nýtt þetta kjörtímabil til þess að virkja fyrir nýja verð- mætasköpun. Viðsnúningur Hætt er við að skilaboðin um fjölgun ráðuneyta fari illa í þorra kjósenda Sjálfstæðisflokksins. En útþensla báknsins og fjölgun ríkisstarfsmanna veldur forystu VG ekki erfiðleikum gagnvart kjósendum sínum. Gagnrýni úr atvinnulífinu á ríkisfjármálastefnuna fyrir að leggja ekkert af mörkum til þess að ná niður verðbólgu og verja lágvaxtaumhverfið, bitnar fyrst og fremst á Sjálfstæðisflokknum. Hún skemmir aftur á móti minna fyrir VG. Spár um að utanríkisvið- skiptin dragi hagvöxt niður eftir næsta ár, benda til þess að Sjálf- stæðisflokknum hafi ekki tekist að tryggja samkeppnishæfni atvinnulífsins nægjanlega vel. Það er auðveldara fyrir VG að segja að nóg sé til og við getum lifað á aukinni einkaneyslu. Niðurstaðan er sú að líkur eru á að samstarfið á þessu kjörtíma- bili verði Sjálfstæðisflokknum erfiðara en VG. Það yrði viðsnún- ingur. n Náist loftslagsmark- miðin ekki situr Sjálf- stæðisflokkurinn uppi með ábyrgðina. En VG verður í skjóli. Samkvæmt nýlegri verðlagskönnun ASÍ kom Ly aver best út miðað við meðalverð ölda vara í könnuninni.* Kynntu þér vöruúrvalið og lágt vöruverð á lyaver.is eða í verslun Lyavers. Lægsta meðalverðið er í Ly averi * Samkvæmt könnun Verðlagseftirlits ASÍ á lausasölulyum og öðrum vörum þriðjudaginn 2. nóvember. ly aver.is Suðurlandsbraut 22 FIMMTUDAGUR 9. desember 2021 Skoðun 19FRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.