Fréttablaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 36
8 kynningarblað 9. desember 2021 FIMMTUDAGURHÆGINDASTÓLAR
G Plan 6250 er stórglæsileg mubla.
thordisg@frettabladid.is
Þegar hægindastóllinn 6250 kom
fyrst á markað, varð hann fljótt
þekktur sem þægilegasti stóll í
heimi. Það var breski húsgagna-
framleiðandinn G Plan sem tefldi
honum fyrst fram á markaðinn
árið 1962, en fyrirtækið var stofnað
árið 1898 og hefur að markmiði að
skapa yfirmáta glæsilega og þægi-
lega stóla og sófa.
Stóllinn 6250 er einkar virðu-
legur ásýndar, djúpur, víður og
mjúkur, og með skemli í stíl veitir
hann hámarksslökun. Þá er hann
bæði á snúningsfæti og hægt að
rugga honum.
G Plan-hæg-
indastóllinn var
áberandi í kvik-
myndum og sjón-
varpi á sjöunda
áratugnum. Hann
varð heimsfrægur
eftir að hafa sést sem stóll skúrks-
ins Blofelds í James Bond-mynd-
inni You Only Live Twice árið 1967.
Þá sást hann líka í
Bítlamyndinni Help!
frá árinu 1965 þar sem
John Lennon lét fara
vel um sig í 6250-stól í
húsi Bítlanna og lék þar
á gítar.
Framleiðslu 6250 var
hætt árið 1982
en þrjátíu árum
seinna, eða árið
2012, ákvað G Plan að endurvekja
hönnun gamla hægindastólsins
og kalla hann The Sixty Two. Hver
einasti stóll er handgerður í hús-
gagnaverksmiðju G Plan í Melks-
ham á Englandi og hannaður til að
standast tímans tönn.
Stóllinn var upphaflega bólstr-
aður í svörtum vínyl en fleiri litir
komu síðar til sögunnar og fæst
hann nú í tugum mismunandi
áklæða og lúxusleðurs. The Sixty
Two er afar stássleg mubla og þykir
hinn fullkomni griðastaður þegar
fólk vill njóta dekurs, vellíðunar
og næðis með eigin hugsunum eða
góðri bók. n
Heimsins þægilegasti hægindastóll
Eames hægindastóllinn á heim ili í
Kaupmannahöfn. MYND/AÐSEND
elin@frettabladid.is
Það getur verið erfitt að finna
góðan hægindastól. En hvað er það
sem gerir góðan stól? Hann þarf
að vera þægilegur að sitja í en að
sama skapi þarf hann að vera fal-
legur í stofu. Til eru nokkrir frægir
stólar sem setja punktinn yfir i-ið í
stofunni. Þeirra á meðal er Eames
hægindastóllinn.
Eames hægindastóllinn eftir
Charles og Ray Eames er sagður
vera í sérflokki þegar kemur að
slíkum stólum. Hann var hann-
aður árið 1956 og þótti strax vera
mikill klassi yfir honum. Hönnuð-
irnir vildu gera klassíska hönnun
og markmið þeirra var að gera
enn þægilegri stól en áður hafði
þekkst. Innblásturinn kom frá
hafnaboltahanska. Þessi stóll biður
mann að setjast niður með góða
bók í hönd og gleyma öllu öðru í
kringum sig. n
Innblástur út
íþróttum
Uppblásnir stólar voru það heitasta í
stuttan tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
sandragudrun@frettabladid.is
Uppblásanlegir hægindastólar
komust í tísku seint á 10. áratugn-
um og varla var til það unglinga-
herbergi sem ekki skartaði slíkum
stól. Stólarnir voru oft í skærum
litum og pössuðu vel við lava-
lampann sem lýsti upp herbergið.
Í Bandaríkjunum urðu stólarnir
vinsælir meðal háskólanema sem
áttu litla peninga og lítið pláss
fyrir húsgögn. Auðvelt var að flytja
stólana milli staða og þeir voru líka
góður kostur þegar rýma þurfti
heimavistina fyrir sumarfrí. En
þægilegir voru uppblásnu stólarnir
ekki. Ef sest var í þá var ekki auð-
velt að standa upp og föt þess sem
sat urðu rafmögnuð. Jafnskjótt og
stólarnir poppuðu upp í versl-
unum hurfu þeir. Eftir aldamótin
voru þeir alls ekki eftirsóknarverð-
ir lengur, enda höfðu unglingarnir
sem áttu þá fullorðnast og upp-
götvað að uppblásanlegir stólar
sem springa af minnsta tilefni eru
ekki hentugustu húsgögnin. n
Uppblásinn
unglingadraumur
RAFSTILLANLEGIR HLEÐSLUSTÓLAR
• 3-MÓTORA HÆGINDASTÓLL
• HANDVIRK OG ÞÆGILEG HÖFUÐPÚÐASTILLING 42°.
• INNBYGGÐ HLEÐSLURAFHLAÐA SEM ENDIST
250 SINNUM FYRIR ALLA MÓTORA.
EINSTÖK ÞÆGINDI OG SLÖKUNum jólin
JAMES
STÓLL MEÐ SKEMLI
Verð 169.990.-
ZERO
GRAVITY
POSEIDON
RAFSTILLANLEGUR
Verð 269.990 kr.-
APOLLO
RAFSTILLANLEGUR
Verð 269.990.-
IRIS
RAFSTILLANLEGUR
Verð 239.990.-
MODULAX HÆGINDASTÓLAR
BELGÍSK HÖNNUN OG ÞÆGINDI Á HVERT HEIMILI
Sæktu Modulax
appið á modulax.be
og skoðaðu hvernig
stóllinn lítur út
á þínu heimili
ZERO
GRAVITY
PANDORA
RAFSTILLANLEGUR
Verð 249.990.-
ALLA MODULAX STÓLA ER
HÆGT AÐ SÉRPANTA SEM
LYFTUSTÓLA
STILLINGAR
FRÁBÆR
VERÐ
Ve
rð
b
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
in
ns
lá
tta
rv
ill
ur
o
g/
eð
a
br
ey
tin
ga
r.
EIN
HLEÐSLA
ENDIST Í
MÁNUÐ
LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233
BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150
OPIÐ virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16
UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði
og Bara snilld, Egilsstöðum | svefnogheilsa.isBALDURSNES 6 – AKUREYRI VERSLUN & OUTLET – LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK
UM FJÓRÐUNGUR LANDS-
MANNA SEFUR Á DÝNU
FRÁ SVEFN & HEILSU*
*Samkvæmt könnun frá Gallup.
Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu