Fréttablaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 19
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Sumir stjórnmálaskýrendur telja
að VG hafi farið halloka í samning-
um stjórnarflokkanna um nýjan
stjórnarsáttmála og uppstokkun
ráðuneyta.
Til að komast að þessari niður-
stöðu verða menn þó að horfa á
VG eins og hún var. Þá má segja
sem svo að VG hefði líklega fengið
meira út úr því að taka Framsókn
með í samstarf við Samfylkingu og
Flokk fólksins.
Veruleikinn er hins vegar allt
annar.
Flóknara dæmi
VG er ekki lengur róttækur flokkur
nema í náttúruvernd. Fyrir fjórum
árum náði hann þeirri stöðu
að ráða hvernig ríkisstjórn yrði
mynduð og hélt henni þrátt fyrir
verulegt tap í kosningunum.
Þorri kjósenda VG er sáttur
við kyrrstöðupólitík í efnahags-
málum. Atvinnulífið er hins vegar
viðkvæmara fyrir henni. Að því
leyti gæti Sjálfstæðisflokkurinn
verið í þrengri stöðu en VG eftir
endurnýjun samstarfsins.
Ýmsir telja að VG hafi fórnað
drottningu með því að láta
umhverfisráðuneytið af hendi
til Sjálfstæðisflokksins og fallast
á að orkumálin yrðu hluti af
þeim pakka. En dæmið er aðeins
flóknara.
Auðvelt þóf
Á sumum sviðum er löggjöf svo
opin að ráðherra getur án laga-
breytinga og samráðs við sam-
starfsflokka breytt stefnunni í
grundvallaratriðum. Heilbrigðis-
ráðherra nýtti sér þetta á síðasta
kjörtímabili.
Í orkumálunum getur ráðherra
hins vegar ekki hreyft sig um
hænufet án nýrra lagaheimilda
og samkomulags við samstarfs-
flokka. VG hefur því fullkomið
stöðvunarvald á þessu sviði, sem
Sjálfstæðisflokkurinn hafði ekki
í heilbrigðismálunum á síðasta
kjörtímabili.
Ekki verður því annað séð en að
VG hafi valdað þessa stöðu býsna
vel. Þau þurfa ekki að hafa meira
fyrir því að þæfa orkumálin en
Sjálfstæðisflokkurinn hafði fyrir
því að bregða fæti fyrir stjórnar-
skrármál forsætisráðherra á
síðasta kjörtímabili.
Þverstæðan
Loftslagsmálin og orkumálin eru
eitt stærsta viðfangsefni næstu
ára. Þverstæðan í íslenskri pólitík
endurspeglast með afar skýrum
hætti á þessu málasviði.
Án orkuskipta ná menn tak-
mörkuðum árangri í að koma í veg
fyrir kolefnislosun. Og án nýrra
virkjana verður lítið úr orku-
skiptum.
Ungir umhverfissinnar gáfu
Sjálfstæðisflokknum falleinkunn í
loftslagsmálum fyrir kosningar. En
VG kom út með láði.
Veruleikinn er hins vegar sá að
VG er á móti nauðsynlegum virkj-
unum til þess að orkuskiptin geti
átt sér stað. En leifarnar af gömlu
stóriðjustefnunni gera það að
verkum að Sjálfstæðisflokkurinn
er tilbúinn til þess að virkja til þess
að ná settum loftslagsmarkmiðum.
Við erum á þeim tímapunkti að
VG valdar stöðuna býsna vel
komast ekki hjá því að forgangs-
raða eða miðla málum milli nátt-
úruverndar og loftslagsverndar. En
VG getur það ekki.
Í raun og veru hefur VG því
komið innri pólitískum veikleika
í þessu efni yfir á Sjálfstæðisflokk-
inn.
Ábyrgðin
Mjög ólíklegt er að VG muni nota
neitunarvaldið til þess að stöðva
allar virkjanaframkvæmdir.
En ákvarðanir verða dregnar á
langinn og þær munu á endanum
hvorki duga til þess að fullnægja
kröfum um orkuskipti né til þess
að ná framsæknum hugmyndum
um að nota orku í ríkari mæli til
verðmætasköpunar.
Náist loftslagsmarkmiðin ekki
situr Sjálfstæðisflokkurinn uppi
með ábyrgðina. En VG verður í
skjóli.
Að auki mun það reynast Sjálf-
stæðisflokknum erfitt ef hann
getur ekki nýtt þetta kjörtímabil
til þess að virkja fyrir nýja verð-
mætasköpun.
Viðsnúningur
Hætt er við að skilaboðin um
fjölgun ráðuneyta fari illa í þorra
kjósenda Sjálfstæðisflokksins.
En útþensla báknsins og fjölgun
ríkisstarfsmanna veldur forystu
VG ekki erfiðleikum gagnvart
kjósendum sínum.
Gagnrýni úr atvinnulífinu á
ríkisfjármálastefnuna fyrir að
leggja ekkert af mörkum til þess
að ná niður verðbólgu og verja
lágvaxtaumhverfið, bitnar fyrst
og fremst á Sjálfstæðisflokknum.
Hún skemmir aftur á móti minna
fyrir VG.
Spár um að utanríkisvið-
skiptin dragi hagvöxt niður eftir
næsta ár, benda til þess að Sjálf-
stæðisflokknum hafi ekki tekist
að tryggja samkeppnishæfni
atvinnulífsins nægjanlega vel. Það
er auðveldara fyrir VG að segja
að nóg sé til og við getum lifað á
aukinni einkaneyslu.
Niðurstaðan er sú að líkur eru
á að samstarfið á þessu kjörtíma-
bili verði Sjálfstæðisflokknum
erfiðara en VG. Það yrði viðsnún-
ingur. n
Náist loftslagsmark-
miðin ekki situr Sjálf-
stæðisflokkurinn uppi
með ábyrgðina. En VG
verður í skjóli.
Samkvæmt nýlegri verðlagskönnun ASÍ kom
Ly
aver best út miðað við meðalverð ölda
vara í könnuninni.* Kynntu þér vöruúrvalið og
lágt vöruverð á lyaver.is eða í verslun Lyavers.
Lægsta meðalverðið
er í Ly
averi
* Samkvæmt könnun Verðlagseftirlits ASÍ á lausasölulyum
og öðrum vörum þriðjudaginn 2. nóvember.
ly
aver.is
Suðurlandsbraut 22
FIMMTUDAGUR 9. desember 2021 Skoðun 19FRÉTTABLAÐIÐ