Fréttablaðið - 09.12.2021, Síða 6
Hávaxtaskuldabréfum Alvo-
tech var breytt í hlutafé á
mjög háu gengi í sumar.
olafur@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Í lok september námu
skuldir systur-lyfjafyrirtækjanna
Alvotech og Alvogen við Oaktree
Specialty Lending Corporation,
systurfélag Oaktree Acquisition
Corp. II sem er að sameinast Alvo-
tech, 120 milljónum dala, eða ríf-
lega 15 milljörðum króna, á vaxta-
kjörum sem endurspegla að um
áhættulánveitingu sé að ræða.
Í gær var tilkynnt um samruna
Alvotech við Oaktree Acquisi-
tion Corp. II, sem er sérhæft yfir-
tökufélag (e. SPAC) og fyrirhugaða
skráningu sameinaðs félags á NAS-
DAQ-markaðinn í Bandaríkjunum.
Í tilkynningu frá Alvotech kom jafn-
framt fram að viðskiptin myndu
skila fyrirtækinu um 450 millj-
ónum Bandaríkjadala, sem skiptist
þannig að 250 milljónir komi úr
sjóðum Oaktree Acquisition Corp.
II, 150 milljónir með beinni hluta-
fjáraukningu frá alþjóðlegum fjár-
festum og 50 milljónir koma frá
núverandi hluthöfum. Heildarvirði
sameinaðs fyrirtækisins er sagt vera
2,25 milljarðar dala.
25. júní 2021 tilkynnti Alvo-
tech að eigendur 300 milljóna dala
skuldabréfaflokks, sem gefin voru
út í desember 2018, hefðu fallist
á að breyta um fjórðungi skulda-
bréfanna í hlutafé. Með áföllnum
vöxtum var fjárhæðin sem breytt
var í hlutafé 106 milljónir dala, sem
endurspeglaði 2,7 milljarða dala
verðmæti fyrirtækisins, samkvæmt
fréttatilkynningu.
Þessi mikla lækkun á verðmati fyr-
irtækisins á aðeins hálfu ári skýrist
meðal annars af því að fjárfestar nú
koma með reiðufé inn í fyrirtækið,
en í júní var einungis um umbreyt-
ingu skulda í hlutafé að ræða.
Oaktree Acquisition Corp. II er
dótturfélag Oaktree Capital Group,
LLC og stofnað á Cayman-eyjum.
Annað dótturfélag Oaktree Capital
Group, LLC er Oaktree Specialty
Lending.
Eins og önnur fjármálafyrirtæki
skilar Oaktree Specialty Lending
Corporation bandaríska fjármála-
eftirlitinu (SEC) reglulega ítarlegum
skýrslum um starfsemi sína. Skýrsl-
ur þessar, sem nefndar eru 10-K, eru
mun nákvæmari og ítarlegri en árs-
og árshlutareikningar, en engu að
síður opinber gögn.
Í nýjustu 10-K skýrslu Oaktree
Specialty Lending Corporation
kemur fram að 30. september síðast-
liðinn átti félagið fjögur svonefnd
PIK-skuldabréf útgefin af Alvotech.
Öll bera bréfin 15 prósenta fasta
ársvexti. Verðmæti þeirra er um
80 milljónir dala og er um helm-
ingur fjárhæðarinnar á gjalddaga
í desember 2023 og helmingurinn
í júní 2025. Þessi skuldabréf munu
vera hluti 300 milljóna skuldabréfa-
flokksins frá 2018.
Nánast eingöngu fyrirtæki sem
teljast í mjög áhættusömum rekstri,
eins og til dæmis sprotafyrirtæki,
gefa út PIK-skuldabréf, enda eru
vextir þeirra jafnan mun hærri
en traustari fyrirtækjum stendur
til boða. PIK-lán líkjast um margt
verðtryggðum íslenskum lánum,
þar sem yfirleitt er heimilt að bæta
vöxtum við höfuðstól þeirra fremur
en að greiða þá jafnóðum.
Einnig kemur fram í 10-K skýrsl-
unni að Oaktree Specialty Lending
Corporation á fjögur veðskulda-
bréf á fyrsta veðrétti sem gefin eru
út af Alvogen, systurfélagi Alvotech.
Verðmæti þeirra er um 40 milljónir
dala og vextir eru breytilegir með
LIBOR-vöxtum og 5,25 prósenta
álagi. Samkvæmt upplýsingum frá
Alvotech eru þessi skuldabréf Alvo-
tech og samrunanum óviðkomandi.
Samanlögð f járhæð þessara
skuldabréfa er 120 milljónir dala,
en fjárhæðin sem nýir alþjóðlegir
fjárfestar ætla að leggja nýju sam-
einuðu félagi Alvotech og Oaktree
Acquisition Corp. II til, er 150 millj-
ónir dala. n
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | www.forlagid.is
Taugatryllir
Ný glæpasaga eftir háspennudrottninguna Lilju Sigurðardóttur
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið
Rafbók HljóðbókInnbundin
elinhirst@frettabladid.is
DÝRAVERND „Mjög margir neytendur
nú til dags eru í engum tengslum við
framleiðsluna. Við verðum að fræða
fólk um þetta,“ segir Ólafur Dýr-
mundsson, búvísindamaður.
Ólafur hefur unnið að dýravel-
ferðarmálum og starfaði sem sér-
fræðingur innan Bændasamtakanna
um langt árabil. Rætt var við Ólaf á
Fréttavaktinni á Hringbraut í gær-
kvöldi.
„Við erum alltaf að biðja um
ódýrari og ódýrari matvæli, en það
eru skuggahliðar á þessu. Krafan um
ódýrari matvæli er í raun dýr blekk-
ing,“ segir Ólafur.
„Hvað varðar hænsni og alifugla
þá hefur verið gríðarlegt kynbóta-
starf í gangi. Það er verið að rækta
fugla sem skila miklum afurðum í
eggjum og kjöti. En það eru að koma
fram gallar á þessu og það verður að
taka á því,“ segir Ólafur.
„Efnið sem er framleitt úr mera-
blóði er notað í svínaframleiðslu og
ef við tökum svín sem dæmi þá þótti
ágætt fyrir 50 árum að fá átta til tíu
grísi í goti. Nú þykir það ekki viðun-
andi. Menn vilja fá fleiri grísi í hverju
goti og þá er verið að nota frjósemis-
hormóna. En dýrin eru ekki byggð til
að bera þetta, hafa ekki beinabygg-
ingu til þess,“ segir Ólafur.
Hann segir sömu sögu að segja um
varphænur, en bein þeirra brotna
vegna álags.
Ólafur segir enn fremur að reynt
sé að hafa eftirlit með þessum
málum, en að ástandið sé ekki við-
unandi. Það þurfi að endurskoða
hvernig við framleiðum matvæli,
bæði hér á landi og erlendis. n
Ólafur segir kröfu neytenda um sífellt
ódýrari matvæli vera dýra blekkingu
Í svínarækt hefur grísum fjölgað í hverju goti í nafni hagkvæmni, en oft á
kostnað dýravelferðar. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
bth@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Vegagerðin hyggst
ekki taka afstöðu um þá ákvörðun
Reykjavíkurborgar að banna nagla-
dekk á bílum borgarinnar ef undan
eru skildir sorphirðubílar.
„Það eru nagladekkin sem slíta
fyrst og fremst, þau eru megin-
þáttur í sliti á vegum. En við horfum
fyrst og fremst á umferðaröryggi.
Þess vegna höfum við mælt með að
fólk sé á nagladekkjum, sérstaklega
þegar komið er út fyrir bæinn,“ segir
G. Pétur Matthíasson, upplýsinga-
fulltrúi Vegagerðarinnar.
Að mati Vegagerðarinnar eru nagl-
ar á vegum úti á landi nauðsynlegir.
Öryggi sé sliti á götum mikilvægara
og réttlæti notkun nagladekkja.
„Þegar komið er út á land teljum
við að naglar séu nauðsynlegir, enda
er vetrarþjónustan ekki þannig að
vegirnir séu lausir við hálku. Við
teljum mun minni þörf hér á höfuð-
borgarsvæðinu fyrir nagladekk,“
segir G. Pétur.
„Við höfum þess vegna mælt með
að fólk sé á nöglum úti á landi.“ n
Mæla með notkun nagla úti á landi
Reykjavíkurborg leggst gegn notkun
nagladekkja.
Mjög háir vextir á
skuldabréfum Alvotech
Hrifust af Alvotech og stjórnendum þess
Róbert Wessman, for-
stjóri Alvotech, segir
Oaktree hafa gerst
lánveitanda Alvotech
með kaupum á hluta
af 300 milljóna dala
skuldabréfaflokki fyrir-
tækisins 2018. Nýtt
sameinað félag tekur
við því láni og vextir
þess muni lækka veru-
lega eftir skráningu
félagsins á NASDAQ.
Róbert segir for-
svarsmenn Oaktree
hafa hrifist af Alvotech: „Þeir voru mjög ánægðir með framgang
fyrirtækisins og stjórnendur og því enduðum við á að fara í SPAC-
samruna með Oaktree, eftir að hafa staðið frammi fyrir tveimur
frábærum valkostum þegar kom að því að velja SPAC.“
700 manns starfa hjá Alvotech á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
6 Fréttir 9. desember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ