Fréttablaðið - 09.12.2021, Page 8
thorvardur@frettabladid.is
DANMÖRK Mette Fredriksen, for-
sætisráðherra Danmerkur, til-
kynnti um hertar sóttvarnaaðgerðir
í gær. Frá morgundeginum þurfa
skemmti- og veitingastaðir að loka
á miðnætti, 50 manna samkomu-
takmarkanir taka gildi og bannað
verður að kaupa áfengi í verslunum
að næturlagi. Frá 15. desember er
skólahald í grunnskólum fellt niður.
Stjórnvöld gera ráð fyrir að aðgerð-
irnar gildi í fjórar vikur. n
Íbúafundur fór fram í Réttar-
holtsskóla í gærkvöldi um
tillögur skipulagsyfirvalda
í borginni um uppbyggingu
við Bústaðaveg. Stjórnarmað-
ur í íbúasamtökunum segir
borgina í áróðursstríði gagn-
vart hverfisbúum og kallar
eftir bindandi kosningu um
tillöguna.
gar@frettabladid.is
REYKJAVÍK „Tilfinning mín er að
núverandi meirihluti sé að ganga
of langt og of nærri umferðinni
og grónum hverfum,“ sagði Eyþór
Arnalds, borgarfulltrúi og oddviti
Sjálfstæðismanna í Reykjavík, áður
en íbúafundur hófst í gærkvöldi
um tillögur að uppbyggingu við
Bústaðaveg.
Hart er deilt um tillögurnar
meðal íbúa í Bústaðahverfi. Þær
gera ráð fyrir tveggja til þriggja
hæða byggingum ofan og neðan
Bústaðavegar með íbúðum á efstu
hæðum, atvinnustarfsemi á mið-
hæðinni og bílakjallara þar undir.
Margar f leiri tillögur um þétt-
ingu byggðar í grónum borgarhlut-
um eru nú til umræðu og kveðst
Eyþór Arnalds aðspurður telja að
skipulagsmálin verði í brennidepli
í borgarstjórnarkosningunum í vor.
Af hálfu borgaryfirvalda hefur
komið fram að breytingarnar
við Bústaðaveg muni bera með
sér aukna þjónustu og verslun og
umhverfið allt verða þar líf legra og
hlýlegra. „Það eru engar forsendur
fyrir því að það að byggja blokkir
við Bústaðaveginn geri Bústaða-
hverfið blómlegra. Þvert á móti þá
má ætla að umferðin verði þyngri
og hverfið kaldara eins og þetta
lítur út,“ segir Eyþór.
Ólafur Elíasson, íbúi í Fossvogi
og einn stjórnarmanna í endur-
reistum Íbúasamtökum Bústaða-
og Fossvogshverfis, sagði fyrir
íbúafundinn í gær að borgin væri
í áróðursstríði gagnvart íbúum
hverfisins.
„Mörg okkar sem búum í hverfinu
upplifum eins og borgin sé í ein-
hverju PR-stríði við okkur að reyna
að troða þessum byggingum upp
við Bústaðaveginn. Það er gríðarleg
reiði í mjög mörgum sem geta afar
illa sætt sig við þetta,“ sagði Ólafur,
sem kveður íbúana finna hugmynd-
unum flest til foráttu, enda séu þær
algjörlega vanhugsaðar að þeirra
mati. „Fólki finnst tillögurnar vera
ljótar, þrengja mjög að hverfinu og
breyta ásýnd þess.“
Þá sagði Ólafur íbúana mjög
ósátta við hvernig staðið sé að mál-
inu og sakar borgaryfirvöld um
útúrsnúninga.
„Það er talað um eitthvert íbúalýð-
ræði en 99 prósent okkar heyra fyrst
af þessu þegar þetta er kynnt tilbúið.
Þegar síðan allt logar á íbúasíðunni
okkar vegna þess hversu mörg okkar
eru ósátt, kemur fulltrúi borgarinnar
fram og segir að það sé bara gamalt
fólk yfir sextugu sem sé á móti
þessum nýjungum – sem er ekki á
nokkurn einasta hátt rétt, fyrir utan
hversu ósvífið það er,“ sagði Ólafur.
Að sögn Ólafs hugðust þeir sem
eru andvígir áformunum leggja
það til á íbúafundinum í gærkvöldi
að frestur til athugasemda yrði enn
lengdur. „Ég held að það væri lang
eðlilegast að fá þessu frestað og að
síðan verði bindandi íbúakosning
um þessar tillögur,“ sagði Ólafur.
Eyþór kveðst telja öruggt að í
vor verði kosið um hvort haldið
verði áfram að þétta byggð með
því þrengja að umferðaræðum og
grónum hverfum, eða hvort það
eigi að opna Reykjavík og fara í upp-
byggingu á nýjum svæðum, eins og
á Keldum.
„Þarna er ekki verið að hlusta
nægilega á vilja fólks,“ segir Eyþór.
Fyrir fundinn kvaðst Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri ekki eiga
von á öðru en góðum fundi.
„Íbúasamtökin hafa verið endur-
reist vegna áhuga á þessu hverfa-
skipulagi, sem er mjög jákvætt. Við
höfum mjög góða reynslu af sam-
ráði við íbúa á undirbúningsstigi
vinnunnar við hverfaskipulag, sem
segja má að byggi á óskum sem fram
komu á fyrstu stigum,“ segir hann.
Dagur undirstrikar að það sem nú
hafi verið kynnt séu vinnutillögur.
„Í kjölfar samráðs þá verður
formleg tillaga mótuð og hún verður
einnig kynnt og auglýst þegar þar að
kemur. Fundarboðendur hafa metið
það svo að það séu einkum breyt-
ingar við Bústaðaveg sem skiptar
skoðanir eru um, en það verður
fróðlegt að heyra sjónarmiðin,“
segir Dagur.n
Borgin sögð í áróðursstríði í Fossvogi
Fulltrúar
meirihluta og
minnhluta í
borgarstjórn
mættu á íbúa
fund í Réttar
holtsskóla í
gærkvöldi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Ólafur Elíasson,
stjórnarmaður í
Íbúasamtökum
Bústaða og
Fossvogshverfis
arib@frettabladid.is
BRETLAND Allegra Stratton, ráðgjafi
Borisar Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, sagði af sér í gær í kjölfar
birtingar myndskeiðs sem sýndi
hana undirbúa spuna um jólaboð
sem haldið var á skrifstofu for-
sætisráðherrans í Downingstræti
10 í fyrra.
Mjög strangar samkomutak-
markanir voru þá í gildi í landinu og
mátti ekki halda neinar samkomur,
ekki einu sinni inni á heimilum.
Samkvæmt heimildum breskra fjöl-
miðla mættu nokkrir tugir í veislu
í Downingstræti. Myndbandið
sýnir Stratton slá á létta strengi við
fjölmiðlafulltrúa, um að segja fjöl-
miðlum að veislan hafi verið fundur.
Hart var sótt að Johnson í breska
þinginu vegna málsins, þar sem
hann baðst afsökunar á því og þver-
tók fyrir að nokkrar reglur hefðu
Hart sótt að Johnson vegna myndskeiðs
Allegra Stratton
verið brotnar. Hefur hann einnig
boðað innanhússrannsókn á mál-
inu. Samkvæmt könnun sem Sav-
anta ComRes gerði í gær, telur meira
en helmingur Breta að Johnson eigi
að segja af sér vegna málsins.
Stratton, sem var meðal annars
talsmaður stjórnarinnar í tengslum
við COP26-ráðstefnuna í haust, var
grátklökk þegar hún tilkynnti um
afsögn sína og sagðist myndu iðrast
orða sinna út ævina. n
birnadrofn@frettabladid.is
REYKJAVÍK Aukið traust nýrra íbúa
á Íslandi til lögreglu, er meðal mark-
miða sem lögð eru fram í aðgerða-
áætlun í verkefninu Öruggar borgir
á Norðurlöndunum, sem kynnt
var á síðasta fundi of beldisvarna-
nefndar.
Lagt er til að lögreglumenn frá
lögreglustöð þrjú kynni sig og sína
starfsemi fyrir öllum nýjum íbúum
sem taki þátt í verkefninu Velkomin
í hverfið þitt. n
Vilja auka traust
íbúa til lögreglu
thorvardur@frettabladid.is
COVID-19 Samkvæmt nýrri rann-
sók n Pf izer virðist ör v unar-
skammtur af bóluefni fyrirtækisins
veita mikla vörn gegn Omíkron-
afbrigðinu; eftir hann er magn mót-
efna á pari við það sem var eftir tvo
skammta gegn fyrri afbrigðum. Þó
er aðeins um bráðabirgðarannsókn
að ræða.
„Að tryggja að eins margir og
mögulegt er séu fullbólusettir og fái
örvunarskammt er enn besta leiðin
til að hindra útbreiðslu Covid-19,“
segir Albert Bourla, forstjóri Pfizer,
í yfirlýsingu. n
Þriðji skammtur
veiti mikla vörn
Covid-jól í
Danmörku
Mette Fredriksen,
forsætisráðherra
Danmerkur
8 Fréttir 9. desember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ