Fréttablaðið - 09.12.2021, Page 18
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
En það er
ekkert lát á
sóuninni.
Hún er
knúin
áfram af
svoköll-
uðum
þróuðum
ríkjum.
Þetta yrði
ein óvenju-
legasta
virkjun í
heimi.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Í þjóðsögum er sagt frá útilegumanni, sem Grímur hét
og hafðist við hjá vötnum þeim, er síðan eru við hann
kennd og kölluð Grímsvötn. Sagan segir að Grímur
hafi orðið sekur vegna vígaferla og orðið að fara
huldu höfði, en kona nokkur forspá vísaði honum að
vötnunum og taldi að hann gæti lifað þar á veiðiskap.
Grímur fór sem honum var ráðlagt til vatnanna og
gerði sér þar laufskála úr skógi er þar var nógur og tók
að veiða í vötnunum. En risi nokkur bjó ásamt dóttur
sinni í helli eigi allskammt þaðan og stal hann veiði
frá Grími. Lauk þessu svo að Grímur drap risann og
tók saman við dóttur hans.
Merkilegustu eldfjöllin
Grímsvötn með Gjálp eru talin í áttunda sæti yfir
merkilegustu eldfjöll allra tíma, samkvæmt lista
Discovery Channel.
Úrkomusvæði Grímsvatna og Gjálpar er um 200
ferkílómetrar. Bráðið vatn frá yfirborði og bráð undir
jöklinum vegna jarðhita safnast í vötnin og vatnsborð
hækkar jafnt og þétt, þar til jökulísinn fyrir framan
flýtur upp með jökulhlaupi í kjölfarið. Og þarna er um
verulegt vatnsmagn að ræða.
Óvenjulegasta virkjun í heimi
Það er hægt að byggja Grímsvatnavirkjun. Göng inn
undir jökulinn, göng gegnum bergið að vötnunum og
lokuvirki þar. Þúsund sinnum hefur verið opnað fyrir
vatnsrennsli undir stöðuvötnum og hægt að gera það í
þúsundasta og fyrsta skipti. Tæknilega er þetta reikn-
ingsdæmi fyrir arkitekta, jarðfræðinga og verkfræð-
inga, hvernig verða mannvirkin og hvað kosta þau?
Síðan yrði unnin orka úr jöfnu streymi miðað við
vatnshæð t.d. nálægt 1375 m.y.s. Stöðug orkufram-
leiðsla og engin hlaup síðan. Ef eitthvað kemur upp á í
vötnunum yrði virkjunin stöðvuð, lokan í göngunum
felld. Síðar þegar um hægist sett í gang aftur. Þetta yrði
ein óvenjulegasta virkjun í heimi. n
Eigum við að virkja
Grímsvötn?
Hallgrímur
Axelsson
verkfræðingur
Það ríkir umönnunarkreppa á Íslandi.
Harla efnuðu samfélagi hefur ekki
enn tekist að skjóta skjólshúsi yfir
margt af veikasta fólki þess, en fyrir
vikið er því komið fyrir á hjúkrunar-
heimilum, langt fyrir aldur fram.
Þetta er áfellisdómur yfir ráðandi öflum og er
algerlega á skjön við þær tyllidagaræður stjórn-
málaforingja sem draga einatt upp glansmynd-
ina af framsæknu, réttlátu og þróuðu þjóðfélagi
sem skari fram úr í samanburði við önnur lönd.
Miðaldra fólki sem glímir við langvinna og
erfiða sjúkdóma er enginn greiði gerður með
þessu innihaldslausa rausi þegar nöturlegur
veruleikinn blasir við; því er ekki ætlaður
staður við hæfi í íslensku velferðarkerfi – og má
raunar þakka fyrir að fá inni á elliheimilum
þar sem þjónusta er miðuð við elstu hópana í
landinu.
Fréttablaðið hefur á síðustu dögum rætt við
fjölda fólks í þessari stöðu, svo sem Margréti
Sigríði Guðmundsdóttur, 59 ára, sem eftir
margra mánaða heimilisleysi fékk loksins inni
á hjúkrunarheimili, sem hún þakkaði fyrir í
sjálfu sér, en hún óskar aftur á móti engum
ungum einstaklingi sama hlutskiptis.
Hún glímir við taugasjúkdóminn MS og þarf
að reiða sig á umönnun annarra. Skyldi það nú
ekki vera nóg?
29. júlí 2021
Vísindamenn hafa fyrir margt löngu reiknað út
framleiðslugetu jarðarinnar á súrefni, gróðri og
dýrum, því kvika í heimi hér. Lengi fram eftir
síðustu öld höfðu þeir ekki áhyggjur af ágangi
mannsins á þessa lykilþætti í lífríki hnattarins.
Það breyttist um 1980. Þá tók maðurinn jafn
mikið til sín og jörðin gaf.
Núna, röskum 40 árum seinna, tekur mann-
kynið miklu meira til sín en jörðin ræður við. Í
ár kláraði maðurinn ársframleiðslu jarðarinnar
29. júlí, en eftir það byrjaði hann að ganga á
hana.
Ef fram heldur sem horfir mun þessi dag-
setning færast framar, um tvo til þrjá daga á
ári. Ástæðan er einkum offramleiðsla og sóun.
Í sumum vöruflokkum er helmingnum hent.
Og í sumum löndum er neyslan svo mikil,
svo sem Sviss, að ef öll lönd jarðar neyttu jafn
mikils, þyrfti mannkynið á þremur jörðum að
halda.
En það er ekkert lát á sóuninni. Hún er knúin
áfram af svokölluðum þróuðum ríkjum sem
vilja sitt, heimta sitt. n
Gleymt fólk
benediktboas@frettabladid.is
arib@frettabladid.is
Forsetinn og samtalið
Uppfæra þurfti skýrslu úttektar-
nefndar ÍSÍ um KSÍ í gær, eftir
að Magnús Gylfason, stjórnar-
maður KSÍ, laug að nefndinni
um kaffihúsaspjall sitt við eigin-
konu landsliðsmanns daginn
eftir meint heimilisofbeldi.
Forseti landsins blandast inn í
skýrsluna, en eftir samtal Klöru
Bjartmarz, framkvæmdastjóra
KSÍ, og forsetans, lagði hún á,
gekk að stjórninni og tilkynnti
að hún væri farin og vissi ekki
hvort hún kæmi aftur. En lands-
liðsþjálfari U-17 ára landsliðsins,
Jörundur Áki Sveinsson, tók
á sprett og elti framkvæmda-
stjórann uppi og passaði að hún
yrði sótt. Hvað sagði forsetinn
eiginlega?
Álftanesbrúin
Það er engin tilviljun að þegar
Kársnesingar opna Sky Lagoon,
hipp og kúl stað sem er heitur
meðal íbúa miðborgarinnar, fái
þeir brú þannig að hægt sé að
labba þangað á baðsloppnum
úr Vesturbænum. Álftnesingar
þurfa nú rækilega að leggja höf-
uðið í bleyti vilji þeir að brúin
nái yfir til þeirra líka. Það dugar
greinilega ekki að hafa öldulaug
og almennilega vatnsrennibraut.
Það er spurning hvort brúin
birtist ekki skyndilega ef þeir
hlaða í eina vegan-mathöll með
hjólastíg? n
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 9. desember 2021 FIMMTUDAGUR