Fréttablaðið - 09.12.2021, Page 24
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Þar sem jólin eru tími kósíheita
heima fyrir, með konfekt og góða
bók í hönd, er fátt betra en að eiga
góð náttföt til að hafa það sem
notalegast yfir hátíðirnar. Að gefa
falleg náttföt eða náttkjól er klass-
ísk gjöf fyrir konur á öllum aldri og
svo sannarlega jólagjöf sem hittir
í mark,“ segir Birna Magnúsdóttir,
eigandi undirfataverslunarinnar
Selenu í Faxafeni.
Birna segir ákveðna tísku-
strauma vera í náttfötum á milli
ára.
„Í ár koma svört náttföt frá
öllum merkjunum okkar í Selenu,
og svart er nú einu sinni vinsælasti
liturinn hjá okkur íslensku kon-
unum,“ segir Birna.
„Að sjálfsögðu eru einnig ljósari
litir í boði, því úrvalið er svo fjöl-
breytt hjá okkur og eitthvað
fyrir alla,“ segir Birna og og sýnir
fjölbreytta liti, svo sem ljósbleika,
dökkbleika, vínrauða, grá tóna,
bláa tóna, rauða tóna og græna
tóna, að ógleymdum svörtu nátt-
fötunum.
„Við leggjum áherslu á að bjóða
upp á fjölbreytt úrval af náttfatnaði
úr vönduðum náttúruefnum sem
gæla við hörundið og veita einstaka
vellíðan. Við þekkjum það svo vel
að fátt jafnast á við að kúra í nýjum
náttkjól eða náttfötum um jólin,“
segir Birna brosmild.
Draumagjöfin fæst í Selenu
Desember er ákaflega skemmti-
legur tími í Selenu.
„Þá er verslunin full af nýjum
og fallegum vörum og mikil til-
hlökkun hjá okkur starfsfólkinu að
taka á móti viðskiptavinum í leit
að fallegum gjöfum fyrir sína heitt-
elskuðu eða konurnar í lífi sínu. Á
aðventunni fáum við liðsauka frá
fyrrum starfsmönnum Selenu, sem
finnst ómissandi að koma og taka
þátt í jólastemningunni og aðstoða
viðskiptavini við val á fallegum
gjöfum. Það er nefnilega þannig að
í Selenu fæst draumagjöfin,“ segir
Birna í jólaskapi.
„Það er mjög gaman að sjá mörg
kunnugleg andlit líta inn: Við-
skiptavini sem hafa haldið tryggð
við Selenu og þiggja aðstoð okkar
við að velja hina fullkomnu gjöf,
sem við svo pökkum fallega inn
þannig að fallegi jólapakkinn sé
tilbúinn undir jólatréð.“
Frí gjafainnpökkun er einnig í
boði fyrir viðskiptavini sem kjósa
að versla í vefversluninni selena.is.
„Vefverslunin er frábær gluggi að
versluninni sjálfri og þar er hægt
að skoða vörurnar og vörulýsingar
í rólegheitum heima, og finna
út hvað maður vill versla, hvort
heldur sem viðskiptavinir koma
til okkar í verslunina eða kjósa að
panta í vefversluninni,“ greinir
Birna frá.
„Ég vil líka minna á að við
bjóðum fría heimsendingu heim
að dyrum um allt land með Póst-
inum.“
Vinsælar skógjafir til kvenna
Úrval af undirfötum, náttkjólum,
náttfötum og sloppum er fjölbreytt
og glæsilegt í Selenu. Því ættu allir
að finna eitthvað fallegt í jólapakk-
ann, hvort sem það er fyrir ungar
eða eldri konur.
„Undirföt eru alltaf vinsæl jóla-
gjöf og í Selenu má finna frábært
úrval af vönduðum og fallegum
undirfötum fyrir öll tilefni og í
fjölbreyttum stærðum. Við erum
með gott úrval af litum og fyrir
þessi jólin eru svartur, vínrauður,
gráblár, miðnæturblár og antík-
bleikur nýjustu litirnir í undirfata-
flórunni,“ upplýsir Birna innan um
glæsilegan undirfatnað í Selenu.
„Svo má ekki gleyma skógjöf-
unum vinsælu, því að gefa fallegt
undirfatasett í skóinn er hluti af
jólahefðinni hjá mörgum okkar
viðskiptavina. Margir vita upp
á hár hvaða stærð skal velja eða
treysta á okkur, og vita sem er að
það er aldrei neitt mál að skipta ef
stærðin passar ekki.“
Selena undirfataverslun er stað-
sett í Bláu húsunum við Faxafen,
108 Reykjavík. Sími 553 7355. Opið
alla daga til jóla, til klukkan 18
virka daga og til klukkan 17 um
helgar. Boðið verður upp á lengri
opnun þegar nær dregur jólum.
Til hægri má sjá frábært úrval fallegra og léttra sloppa úr modal-velúr, bamb-
us-velúr og bómullar-velúr. Til vinstri eru vinsælir baðsloppar úr blöndu af
bómull og bambus, einstaklega mjúkir í fallegum litum.
Úrvalið af undirfötum í Selenu er stórglæsilegt, fallegir
litir, frábær snið og fjölbreyttar stærðir frá undirfata-
merkjunum Panache, Lingadore og Ewa Bien.
Kvenleiki og rómantík einkenna
undurfallegu undirfötin frá Ewa
Bien þar sem fara saman falleg form
og einstakar blúndur.
Þessi fallegi gráblái litur er einn af
nýjum litum vetrarins frá Panache.
Hann má einnig finna í náttfata-
línunni frá Nina von C og Coemi.
Kósí heimasett frá þýska merkinu
Nina Von C er tilvalin gjöf, flottar
leggings og hvít síð peysa, virki-
lega fallegt í jólapakkann.
Dásamlega mjúk náttföt úr náttúruefninu Modal frá
Cyberjammies eru á óskalista margra fyrir þessi jól,
hægt er að velja um ýmsa liti og tvö mismunandi snið.
Stuttir satínnáttkjólar og kimonosloppar frá LingaDore
eru sívinsæl jólagjöf og til í ýmsum litum og útfærslum.
Glæsileiki og
fallegar blúndur
einkenna nátt-
fötin frá þýska
merkinu Nina
von C. Þau koma
í vínrauðu og
grábláu og
einnig hægt að
fá náttkjóla í
sömu línu með
löngum ermum
eða hlýrakjóla.
Fjölbreytt úrval af fallegum náttfötum með áherslu á náttúruefni.
Að gefa fallegt
undirfatasett í
skóinn er hluti af jóla-
hefðinni hjá mörgum
okkar viðskiptavina.
Þeir vita að það er aldrei
neitt mál að skipta ef
stærðin passar ekki.
2 kynningarblað A L LT 9. desember 2021 FIMMTUDAGUR