Fréttablaðið - 09.12.2021, Side 26
PU
RIFY
Það er alltaf gaman að
klæða sig upp fyrir jólin,
enda gefst þá einstakt tæki-
færi til þess að vera í sínu
fínasta pússi án þess að fólk
spyrji mann í sífellu hvort
maður sé að fara eitthvert.
jme@frettabladid.is
Gamla klisjan „í kjólinn fyrir
jólin“ gildir ekki um hátíðirnar
í ár, því jólaflíkin 2021 er bless-
unarlega ekki þröngur kjóll
sem þrengir að við át á reyktum
steikum. Það allra heitasta þessi
jól fyrir dömurnar er fallegt og
áberandi pils eða buxur, parað
saman við fallega peysu í yfir-
stærð. Það er eitthvað einstakt við
það að setja saman mjög sparilegt
pils við þykka og hlýja peysu. Við
það myndast sérlega notalegt
útlit, með sparilegu yfirbragði.
Það ætti ekki að koma neinum
á óvart að stóru peysurnar eru
áfram í brennidepli yfir hátíðirn-
ar, því ef faraldurinn hefur kennt
okkur eitthvað þá þurfa þægindin
ekki alltaf að víkja fyrir stílnum
eða öfugt.
Tískuhúsin stimpluðu duglega
inn þessa skemmtilegu sam-
setningu á tískupöllunum síðasta
vor og pöruðu óspart saman falleg
pils með ýmsum mynstrum og
fallegri áferð og þykkar, stórar
og hlýjar peysur. Djúp v-hálsmál
voru þá sérlega áberandi enda afar
elegant. n
Í peysuna fyrir jólin
Þetta guðdómlega gula dress var
hluti af haust- og vetrarlínu Max
Mara á tískuvikunni í febrúar síðast-
liðnum í Mílanó. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Peysurnar koma sterkar inn yfir há-
tíðirnar. Fatamerkið Maryling setur
módelið í skyrtu undir peysuna, sem
brýtur skemmtilega upp hálsmálið.
Jason Wu sýnir hér fallega peysu í
yfirstærð með einu jólalegasta pilsi
sem um getur, en pilsið er fagurlega
skreytt Coca Cola glerflöskum.
Mergjað pils úr haust- og vetrarlínu
Louis Vuitton. Bosmamikil stígvél
undirstrika yfirstærðina á skemmti-
legan hátt.
4 kynningarblað A L LT 9. desember 2021 FIMMTUDAGUR