Fréttablaðið - 09.12.2021, Síða 30
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Stórir og fallegir fjölskyldusófar þar sem nóg pláss er fyrir alla. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Dorma selur fallega sófa í miklu úrvali og í ólíkum litum. Gott úrval af vönduðum hægindastólum í mörgum litum.
Dorma er tólf ára gamalt fjöl-
skyldurekið fyrirtæki með mikinn
metnað og sterka sýn, enda eru slag-
orð þess „Láttu drauminn rætast“.
Fyrirtækið var stofnað árið 2009
og rekur í dag fjórar verslanir, tvær
í Reykjavík og verslanir á Akureyri
og Ísafirði. „Frá stofnun fyrirtækis-
ins höfum við einsett okkur að vera
leiðandi í að kynna gestum okkar
nýjungar á rúmamarkaði ásamt því
að sérhæfa okkur í sölu á viður-
kenndum heilsudýnum og stillan-
legum rúmum, sófum og hæginda-
stólum,“ segir Svava Hólmarsdóttir
verslunarstjóri hjá Dorma sem
hefur starfað hjá Dorma í átta ár.
„Við erum mjög stolt af vöruúrval-
inu okkar, sem og af okkar duglega
starfsfólki sem tekur vel á móti
viðskiptavinum og hjálpar til við að
láta drauminn rætast.“
Gott úrval hægindastóla
Þótt flestir landsmenn tengi
Dorma vafalaust við rúm og
skyldar vörur býður fyrirtækið
upp á mikið úrval hægindastóla og
sófa frá þekktum vörumerkjum.
„Við höfum lagt mikla áherslu á að
efla úrval okkar í hægindastólum,“
segir Svava. „Við teljum okkur vera
orðin leiðandi á markaði þar sem
við höfum breikkað úrvalið gríðar-
lega, bæði er varðar gæði og verð
en þá höfum við einnig lagt mikla
áherslu á lyftistóla sem hafa verið
mjög vinsælir meðal eldri kyn-
slóðarinnar.“
Vandaðir sófar
Sófarnir eru ekki síðri, en þeir fást
af ýmsum stærðum og gerðum
að sögn Svövu. „Dorma býður
upp á mjög mikið úrval alls kyns
tegunda af sófum. Við höfum
unnið náið með sérfræðingum
og samstarfsaðilum erlendis í
að hanna fallegt vöruúrval sem
hentar fjöldanum. Verðstiginn hjá
okkar spannar vítt svið, allt frá frá-
bærri vöru á góðu verði, til þeirra
sem vilja gera vel við sig í vandaðri
vöru á hagstæðu verði.“
Rúmgóður og fallegur hornsófi frá Dorma. Bonded leðurblandan er blanda af ekta leðri og gervileðri og brúni liturinn fer vel í stofunni eða sjónvarpsherberginu.
Persónuleg og góð þjónusta
Viðskiptavinir Dorma geta búist
við persónulegri og góðri þjón-
ustu, segir Svava. „Við erum með
gott þjónustuver sem sinnir öllum
þörfum viðskiptavina okkar. Þá er
okkar frábæra starfsfólk með langa
starfsreynslu og góða þekkingu á
vörum okkar. Það leggur sig fram
við að veita persónulega og góða
þjónustu sem byggir á þekkingu
og upplýsingum frá öllum okkar
framleiðendum.“
Nýjar vörur allt árið
Hvert ár er boðið upp á spennandi
nýjungar í verslunum Dorma, sem
vekja jafnan athygli viðskiptavina.
„Við fylgjumst stöðugt með nýj-
ungum frá framleiðendum okkar
og fylgjum straumum og stefnum
markaðarins. Einnig hlustum við
á viðskiptavini okkar og hverju
þeir eru að leitast eftir hverju sinni.
Sem dæmi eigum við von á nýjum
sófum og hægindastólum fljótlega,
en við erum alltaf með nýjar og
ferskar vörur yfir árið.“
Nánari upplýsingar á dorma.is.
2 kynningarblað 9. desember 2021 FIMMTUDAGURHÆGINDASTÓLAR