Fréttablaðið - 09.12.2021, Page 32
Aðventan er einn fallegasti
tími ársins og margir halda
mikið upp á aðventuna í
ljósi þess að þá er hægt að
skreyta og lífga upp á dimm-
asta skammdegið með fal-
legum jólaljósum og hlýjum
hlutum sem gleðja augað.
sjofn@frettabladid.is
Bryndís Stella Birgisdóttir innan-
hússhönnuður, sem ávallt er kölluð
Stella, er mikill fagurkeri og nýtur
þess að hafa fallegt í kringum sig,
sérstaklega á aðventunni. Hún
heldur í þann sið að skreyta fyrir
hverja aðventu en á það til að
skipta um þema og liti.
„Ég nýt þess að verja aðventunni
með fjölskyldu og vinum. Hver jól
er ég með ákveðið jólaþema sem
breytist ár frá ári. Núna í ár lýsir
jólaþemað í náttúrulegu ræturnar.
Kanilstangir, hör, hráar greinar og
silkifura eru efniviður sem falla
undir þemað,“ segir Stella, sem
nýtur hverrar stundar þegar hún
setur upp aðventuna.
Þegar Stella er spurð hvar hún
hafi fengið innblásturinn að upp-
stillingunum segist hún hafa verið
heilluð af ákveðnum litum sem
hafi komið hugarfluginu af stað.
„Leirbrúnir litir og hráleikinn
heilla mikið og voru kveikjan að
uppstillingunum,“ segir Stella, sem
hefur næmt auga fyrir fallegum
og frumlegum uppstillingum sem
fanga augað.
„Hlutir sem koma úr ólíkum
áttum mynda eina heild þegar
þeim er raðað rétt saman. En ég
nota vasa, luktir og potta sem ég
hef átt til margra ára sem hluta
af þemanu,“ segir Stella og finnst
skipta máli að geta nýtt þá hluti
sem þegar eru til staðar og það
þurfi alls ekki að kaupa allt nýtt.
Stella leggur mikla áherslu á sam-
veruna um jólin. „Jólin eru fyrst og
síðast kærkominn tími til að styrkja
fjölskylduböndin og létta okkur
lífið í svartasta skammdeginu.
Kertaljós, greniilmur og nærvera
vina og fjölskyldu er það sem nærir
sálina. Jólahátíðin minnir okkur á
sigur ljóssins yfir myrkrinu.“ n
Leirbrúnir litir
og hráleikinn
heilluðu
Bryndís Stella Birgisdóttir innanhússhönnuður, sem ávallt er kölluð Stella, er mikill fagurkeri og nýtur þess að hafa
fallegt í kringum sig þar sem einfaldleikinn er í fyrirrúmi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Leirbrúnir litir og hráleiki leika stórt hlutverk í jólaþemanu í ár hjá Stellu.
Voffi lætur fara vel um sig á gólfinu þar sem horft er úr eldhúsinu.
Sófi og mismunandi hægindastólar. Skemmtilegt að brjóta upp stílinn.
Glæsilegt baðherbergi hjá Stellu.
Stofan er mjög
rúmgóð og
nýtist vel.
Jólaskrautið er lágstemmt en hlý-
legt og nýtur sín vel hjá Stellu.
Leirbrúnu tauservíetturnar koma vel
út á hátíðarborðinu þar sem svart,
grænt og kanill koma við sögu, á
móti ljósum litum.
Á efri hæðinni, sem er að hluta undir súð, er gott rými.
Eldhúsið er
glæsilegt, en
hægt er að loka
því alveg.
4 kynningarblað 9. desember 2021 FIMMTUDAGURHÆGINDASTÓLAR