Fréttablaðið - 09.12.2021, Page 38
Zendaya mætti í
fötum frá Alexander
McQueen sem voru
greinilega með vísun í
vefi Köngulóarmannsins.
Silli kokkur er verðlaun-
aður villibráðarkokkur. Frá
fimmtudegi til laugardags
frá 12-20 verður opið hús í
jólabúð hans á Kársnesbraut
112. Þá geta gestir og gang-
andi smakkað villibráðar-
kræsingar af bestu gerð.
Fyrir tveimur árum hlaut Sigvaldi
Jóhannesson, betur þekktur sem
Silli kokkur, gullverðlaun Asksins
fyrir gæsakæfuna sína, gæsaborg-
arinn hans var valinn besti götubiti
ársins 2020 og hreindýraborgarinn
vann götubita ársins 2021. Silli er
mikill veiðimaður og framleiðir
fjölbreyttar vörur úr villibráð.
Það er orðin hefð hjá Silla og
eiginkonu hans, Elsu Blöndal Sig-
fúsdóttur, að opna eldhúsið sitt
upp á gátt á aðventunni og bjóða
gestum að smakka dýrindis villi-
bráð auk fjölbreytts meðlætis.
„Við kaldreykjum bráðina og
erum með sjö tegundir af reyktum
og gröfnum gæsabringum. Við
erum líka með andabringur og
sjófugl. Svo framleiðum við með-
læti eins og sultaðan rauðlauk og
sultaðan jólalauk með eplum og
trönuberjum til að nefna eitthvað,
einnig erum við með hindberja-
súkkulaði vinai grette, bláberja
vinaigrette og fleiri bragðtegund-
ir,“ segir Elsa og bætir við að margir
komi í heimsókn til þeirra ár eftir
ár til að smakka góðgætið sem Silli
töfrar fram.
Opið hús um helgina
Í ár hafa hjónin ásamt börnum
þeirra, Grétari Jóhannesi og Petrósu
Maríu, opnað verslun á Kársnes-
braut 112 þar sem hægt er að skoða
úrvalið af þeim rúmlega 30 vörum
sem Silli hefur búið til, sem og úrval
frá öðrum smáframleiðendum eins
og Lindarbrekku, Holti og heiðum,
Rjómabúinu Erpsstöðum og síðan
fallegt handverk frá Uglu hand-
verki.
„Við verðum með opið hús í
búðinni á fimmtudag, föstudag og
laugardag frá klukkan 12-20. Þar
verður hægt að smakka vörurnar
okkar og fólk getur svo valið hvað
það vill í jólamatinn,“ segir Silli.
Silli býr til hefðbundna rétti úr
villibráðinni, en hann hefur líka
gaman af að prófa sig áfram með
nýjar útfærslur. Hann hefur meðal
annars búið til anísgæs, sem er
reykt gæsabringa með eftirkeim
af lakkrís og nýtt með henni í ár
er peru-lakkrís vinaigrette og
jólagæsabringu sem er marineruð
í hvítvíni eplum og kanil og er
þurrkuð og kaldreykt. Elsa, konan
hans, segir að stundum haldi hún
að hann sé ekki með öllum mjalla
þegar hann stingur upp á nýjum
útfærslum.
„Eins og kaldreyktri barbeque-
gæsabringu. Hún reyndist svo
algjört lostæti, skorin í þunnar
sneiðar og borðuð eins og snakk,
eða því nýjasta: ,,bauninni“ en það
er grafin og kaldreykt gæsabringa
sem hefur verið grafin meðal ann-
ars með kakóbaunum frá Madaga-
skar sem við fáum hjá Omnom,“
segir hún hlæjandi.
Girnilegar jólakörfur
Í búðinni á Kársnesbrautinni er
einnig hægt að skoða úrval af villi-
bráðarjólakörfum sem innihalda
bland af því besta af villibráðar-
réttum Silla auk spennandi með-
lætis.
„Jólakörfurnar hafa verið mjög
vinsælar hjá fyrirtækjum sem
jólagjafir til starfsfólksins, en við
seljum þær líka til einstaklinga.
Gjafakörfurnar eru spennandi val-
kostur sem hittir í mark,“ segir Silli.
Hjónin Silli og Elsa reka einnig
veisluþjónustu, en þar sem lítið
hefur verið um veislur undanfarið
hafa þau einnig rekið matarvagn
til að f leiri eigi möguleika á að
smakka góðgæti úr villibráð.
Vagninn verður á ferðinni fyrir
jólin og hægt verður að fylgjast
með ferðum hans á Facebook-síð-
unni sillikokkur.is matarvagn. n
Nánari upplýsingar um gjafakörf-
urnar og vörurnar má finna á silli-
kokkur.is. Opnunartími jólabúðar-
innar er auglýstur á Facebook
síðunni sillikokkur.is.
Villibráðargjafakörfur og spennandi jólabúð
Silli kokkur býr til gjafakörfur með girnilegum réttum úr villibráð.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þau hjónin reka líka matarvagn sem er á ferðinni á aðventunni. MYND/AÐSEND
Stjörnuparið Zendaya og
Tom Holland heilluðu
fjölmiðla upp úr skónum
í myndatöku til að kynna
Spider-Man: No Way Home
um helgina. Þau töluðu um
samband sitt og voru sér-
lega glæsileg, en föt Zendaya
voru greinileg skírskotun í
vefi Köngulóarmannsins.
oddurfreyr@frettabladid.is
Leikararnir Tom Holland og
Zendaya eru á fullu að kynna
nýju Spider-Man myndina, sem
verður frumsýnd 17. desember. Um
síðustu helgi mættu þau saman í
myndatöku í London sem var hluti
af kynningu myndarinnar og gáfu
fjölmiðlum um leið smá innsýn í
samband sitt, sem þau héldu lengi
leyndu.
Zendaya mætti í fötum frá Alex-
ander McQueen, sem voru greini-
lega með vísun í vefi Köngulóar-
mannsins, en hún er vön að vera
í klæðnaði sem hefur skírskotun
til kvikmyndanna sem hún er að
kynna. Tom Holland var sjálfur
í leðurjakka, hnepptri skyrtu og
svörtum buxum frá Celine, en Law
Roach er stílisti þeirra beggja.
Parið geislaði af gleði og þau áttu
erfitt með að slíta augun hvort af
öðru. Þau röbbuðu við fjölmiðla
um alla athyglina sem samband
þeirra fær og voru sammála um að
vera ekki sérlega hrifin af henni.
Í nóvember sögðu þau við tísku-
tímaritið GQ að það hefði ekki
verið ætlunin að greina frá sam-
bandi þeirra opinberlega, en upp
komst um það í júlí þegar myndir
náðust af þeim að kyssast. Zendaya
sagði að áhugi fólks á sambandinu
væri „frekar skrítinn og furðulegur
og ruglandi og óþægilegur“ og
Holland sagði um kossaflensið sem
náðist á mynd að einn af ókostum
frægðarinnar væri að geta ekki
haft stjórn á því hvað þau gera
opinbert. Þeim fannst eins og þau
hefðu verið rænd einkalífinu.
Hjálpaði Holland að höndla
frægðina
Þau töluðu líka um stuðninginn
sem þau hafa veitt hvort öðru við
gerð þríleiksins um Köngulóar-
manninn. Holland byrjaði á því
að slá Zendayu gullhamra og tala
um hvað hún liti fallega út, eins og
alltaf, og að hún væri vitur eins og
ugla. Zendaya sagði sjálf að hún
væri gömul sál og fólk kallaði hana
oft ömmu, sem henni þætti ekkert
slæmt.
Holland sagði líka að stuðningur
og félagsskapur Zendayu í gegnum
gerð kvikmyndanna um Spider-
Man hefði skipt hann miklu máli,
ekki síst þar sem þau voru að
miklu leyti að ganga í gegnum
það sama. Hann sagði líka að það
hefði gjörsamlega breytt lífi hans
að verða Köngulóarmaðurinn, því
persónan er svo vel þekkt um allan
heim og það hefði verið ótrúlega
gagnlegt að geta fengið ráð og
aðstoð frá Zendayu, sem hefur sjálf
langa reynslu af því að vera fræg,
en hún sló fyrst í gegn á Disney-
sjónvarpsstöðinni.
Zendaya tók undir mikilvægi
þess að veita hvort öðru stuðning
og vera til staðar fyrir hvort annað
þegar eitthvað bjátar á. Hún
sagðist líka hafa haft samkennd
með Holland, sem varð ofurfrægur
á mjög skömmum tíma, á meðan
hún bjó að því að verða fræg hægt
og rólega. Hún hjálpaði honum því
að fóta sig á frægðarbrautinni. n
Ástfangin og glæsileg á rauða dreglinum
Stjörnuparið Zendaya og Tom Holland gat varla litið hvort af öðru í mynda-
tökunni um síðustu helgi. Þau töluðu við blaðamenn um hve mikilvægt það
hefði verið að styðja hvort annað við gerð Spider-Man þríleiksins.
Föt Zendayu, sem eru eftir hönnuðinn Alexander McQueen, voru greinileg
vísun í vefi Köngulóarmannsins, en Tom Holland var í fatnaði frá Celine.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
8 kynningarblað A L LT 9. desember 2021 FIMMTUDAGUR