Fréttablaðið - 09.12.2021, Page 40
Síðasta þriðjudag fór
People‘s Choice Awards-
hátíðin fram í Santa Monica
í Bandaríkjunum. Fjöldi
stjarna og gesta mætti í vel
völdum flíkum við hæfi.
starri@frettabladid.is
People‘s Choice Awards var haldin
síðasta þriðjudag í Santa Monica
í Bandaríkjunum. Ólíkt flestum
stærri hátíðum í tónlistar- og kvik-
myndabransanum er það almenn-
ingur sem velur verðlaunahafana
og er hátíðin fyrir vikið frjálslegri
og skemmtilegri, að margra mati.
Hátíðin fór fyrst fram árið 1975
og breytast verðlaunaflokkar oft
á milli ára. Meðal verðlaunahafa
í ár má nefna Dwayne „The Rock“
Johnson, Scarlett Johansson,
Christina Aguilera, Simu Liu, Kim
Kardashian, Halle Berry og Tom
Hiddleston.
Stjörnurnar og aðrir gestir mættu
að sjálfsögðu í sínu fínasta pússi.
Skoðum nokkra vel valda gesti. n
Skrautlega klæddir
verðlaunagestir
Leikarinn Dwayne
Johnson mætti í
þægilegum fatn-
aði meðan söng-
konan Christina
Aguilera mætti
öllu litfegurri.
Halle Berry var glæsileg að vanda.
Samfélags-
miðlastjarnan
Dorothy Wang.
Leikarinn Jack
Quaid mætti
vel röndóttur
til leiks.
Laverne Cox mætti í þessum fallega
fjólubláa kjól. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Leikarinn og
grínistinn Echo
Kellum var
léttklæddur.
HLÝJAR JÓLAGJAFIR
HANDA ALLRI FJÖLSKYLDUNNI
Verslun | Snorrabraut 56, 105 Reykjavík | 588 0488 | Vefverslun á Feldur.is
10 kynningarblað A L LT 9. desember 2021 FIMMTUDAGUR