Fréttablaðið - 09.12.2021, Síða 44
Í annað sinn í sögu Formúlu
1 er allt jafnt fyrir lokakapp-
aksturinn, sem fer fram um
helgina. Lewis Hamilton er
kominn með örlögin í eigin
hendur á ný og getur orðið
sigursælasti ökuþór allra tíma,
en í vegi hans stendur hinn
óttalausi Max Verstappen.
kristinnpall@frettabladid.is
FORMÚLA 1 Um helgina fer fram
lokakeppnin í Formúlu 1 þetta árið
og í annað sinn í 72 ára sögu keppn-
innar er allt jafnt fyrir lokakapp-
aksturinn. Max Verstappen hefur
verið með pálmann í höndunum
undanfarnar vikur, en nú er breski
ökuþórinn Lewis Hamilton kominn
upp að hlið hans með því að vinna
síðustu þrjár keppnir. Sá þeirra sem
kemur fyrr í mark á brautinni í Abú
Dabí um helgina innsiglar um leið
meistaratitilinn. Ef svo ólíklega
fer að þeir endi jafnir um helgina
verður Verstappen meistari á grund-
velli þess að hann hefur unnið fleiri
keppnir á þessu tímabili.
Undanfarin ár hafa Hamilton og
Mercedes verið í sérflokki. Hamilton
hefur unnið sex heimsmeistaratitla
ökuþóra á síðustu sjö árum, en eina
árið sem hann missti af titlinum var
það liðsfélagi hans, Nico Rosberg,
sem rétt hafði sigur. Fyrir rúmu ári
síðan virtist ekkert fá Hamilton
stöðvað, hann jafnaði met Mic-
haels Schumacher yfir flesta heims-
meistaratitla ökuþóra með sjöunda
meistaratitli sínum og bætti um leið
metið yfir flesta sigra í Formúlu 1.
Úrslitin ráðast á síðustu metrunum
66%
Nat iur antem faccus
si verum eos re pere,
omnis derror sum el
incimendelit dolupti
um reicamagnis derror
a sit derror de
Edda Dungal
66%
Nat iur antem faccus
si verum eos re pere,
omnis derror sum el
incimendelit dolupti
um reicamagnis derror
a sit derror de
Edda Dungal
Á þessu ári hefur Hamilton hins
vegar þurft að berjast fyrir hverju
stigi og virtist vera að missa titilinn
úr greipum sér, þegar Verstappen
náði 21 stigs forskoti á Hamil-
ton með sigri í kappakstrinum í
Mexíkó. Hamilton hefur hins vegar
sýnt það að hann gefst ekki upp og
er kominn aftur með örlögin í eigin
hendur.
Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes,
gaf það til kynna að svo gæti farið
að úrslitin réðust í árekstri milli
efstu manna líkt og hefur áður
gerst, en Wolff sakaði Verstappen
um að valda vísvitandi árekstri
þeirra á milli í ítalska kappakstr-
inum í ár. Það verður því raf-
mögnuð spenna frá fyrsta hring að
þeim síðasta í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum um helgina. n
369,5
Lewis Hamilton og
Max Verstappen
leiða keppnina um
heimsmeistaratitil
ökuþóra með 369,5
stig hvor. Næsti maður,
Valtteri Bottas, er með
218 stig.
17
Verstappen hefur
sautján sinnum endað
á verðlaunapalli en
Hamilton sextán
sinnum.
5
Hamilton er sigursæl
asti ökuþór allra tíma
á brautinni í Abú Dabí.
Ökuþórinn hefur
fimm sinnum unnið í
tólf ára sögu keppninn
ar en Verstappen vann
keppnina á síðasta ári.
7
Hamilton hefur unnið
sjö heimsmeistaratitla
ökuþóra. Með sigri
um helgina yrði hann
sigursælasti ökuþór
allra tíma og tæki fram
úr Michael Schumac
her.
47
Alls eru 47 ár liðin
síðan tveir ökuþórar
voru síðast jafnir fyrir
lokakappaksturinn. Þá
voru Emerson Fitt i p
aldi og Gianclaudio
Regazzoni jafnir með
52 stig fyrir loka
keppnina.
24 Íþróttir 9. desember 2021 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 9. desember 2021 FIMMTUDAGUR
Eigum Jóla peysur & kjóla,
jakka & skyrtur
vertu vel hirtur, fyrir jólin
Þó að Hamilton
og Verstappen
hafi deilt hafa
þeir sýnt hvor
öðrum mikla
virðingu þegar í
mark er komið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Öryggisbúnaðurinn bjargaði lífi Hamilton þegar bílarnir lentu saman á Ítalíu.