Fréttablaðið - 09.12.2021, Side 48
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu okkar,
Jónu Guðrúnar Kortsdóttur
Fróðengi 7, Reykjavík.
Starfsmönnum á Landakoti, deild L5, eru færðar sérstakar
þakkir fyrir ljúfmennsku og góða umönnun.
Guðmundur A. Guðmundsson
Ingibjörg H. Guðmundsdóttir Jón Ólafur Halldórsson
Guðbjörg G. Guðmundsdóttir Sigurður J. Elíasson
Ágústa Katrín Guðmundsdóttir Lárus S. Guðmundsson
Guðrún Guðmundsdóttir
og fjölskylda.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og systir,
Svanhildur Svansdóttir
Jörfalind 10, Kópavogi,
lést á hjartadeild Landspítalans
þann 2. desember. Útförin fer fram frá
Lindakirkju þann 14. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Góðvild, stuðningsfélag
langveikra barna.
Fjölskyldan færir starfsfólki Landspítalans innilegar þakkir
fyrir hlýja og góða umönnun.
Vegna aðstæðna í samfélaginu verða einungis nánustu
aðstandendur og þeir, sem er boðið, viðstaddir útförina.
Streymt verður frá útför á: lindakirkja.is/utfarir
Svanur Þorsteinsson
Hulda Björk Svansdóttir Sævar Rafn Guðmundsson
Gísli Svanur Svansson Sigríður Björk Halldórsdóttir
Erla Svansdóttir Gunnar Már Jóhannesson
Þórir Svansson Matthildur Þórarinsdóttir
barnabörn.
Ástkær móðir, amma, langamma
og langalangamma,
Steinunn Loftsdóttir
lést á Landspítalanum 25. nóvember
2021. Útför hennar hefur farið fram í
kyrrþey, samkvæmt ósk hinnar látnu.
Guðrún G. Matthíasdóttir Baldur Jónsson
Reynir Pétur Steinunnarson
Kristinn L. Matthíasson Droplaug G. Stefánsdóttir
Ása Þ. Matthíasdóttir Örn Ingólfsson
Erla G. Matthíasdóttir Kristinn Valdemarsson
Matthildur Sonja Matthíasd. Hörður Sigurgeirsson
Ásdís Matthíasdóttir Árni Georgsson
Sigga Dóra Matthíasdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Frænka okkar,
Guðrún Margeirsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir
1. desember, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju mánudaginn
13. desember kl. 13.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur
vera viðstaddir. Athöfninni verður streymt á Youtube-síðu
Grafarvogskirkju.
Aðstandendur hinnar látnu.
Við aðstoðum þig við gerð viljayfirlýsingar
um útför þína af nærgætni og virðingu
– hefjum samtalið.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
Hinsta óskin
Fornleifastofnun Íslands heldur
úti jóladagatali þar sem starf-
semi stofnunarinnar á árinu er
tekin saman.
arnartomas@frettabladid.is
Á undanförnum árum hefur sú hefð
myndast hjá Fornleifastofnun Íslands að
gefa út jóladagatal í gegnum Facebook-
síðu stofnunarinnar. Þar má finna
myndskreyttar færslur í aðdraganda
jólanna sem gefa innsýn í fjölbreytileg
verkefni stofnunarinnar.
„Við byrjuðum á þessu fyrir nokkr-
um árum og fengum góð viðbrögð,“
segir Elín Ósk Hreiðarsdóttir hjá Forn-
leifastofnun. „Þetta er góð leið til að
sýna hvað við höfum verið að gera, því
þótt við séum ansi virk á sumrin við að
deila myndum af vettvangi þá dettur
botninn aðeins úr því á veturna. Þess
vegna er þetta kjörinn tími til að líta
um öxl.“
Víðfeðmt viðfangsefni
Elín segir vetrarmánuðina, sér í lagi þá
myrkustu og köldustu, mestmegnis
nýtta í úrvinnslu. Í gær voru þau þó að
klára fornleifaeftirlit með framkvæmd-
um við Vesturgötu þar sem verið er að
skipta um lagnir.
„Í miðbæ Reykjavíkur er mikið um
minjar, allt frá landnámi og síðari tíma,
og því er gerð krafa um að framkvæmdir
séu vaktaðar af fornleifafræðingum og
minjar rannsakaðar ef þær skyldu koma
í ljós,“ segir Elín. „Það eru þannig ýmis
verkefni, sérstaklega framkvæmda-
tengd, sem teygja sig inn í veturinn.“
Verkefni stofnunarinnar sem gert er
grein fyrir í dagatalinu eru af fjölbreytt-
um toga, en þar má meðal annars finna
rannsóknir á sundlaugum landsins,
skráningu á fornleifum í Hrunamanna-
hreppi og greiningu haugfjár úr kumla-
teig á Ingiríðarstöðum.
„Við höfum auðvitað áhuga á allri
Íslandssögunni og það yngsta sem við
erum að skrá og grafa upp eru minjar
frá 19. og 20. öld,“ segir Elín. „Í laganna
skilningi er miðað við að fornleifar séu
hundrað ára eða eldri en við höfum líka
verið að skoða eitt og annað sem nær
fram á miðja 20. öld eins og sundlauga-
verkefnið er dæmi um!“ n
Jóladagatal fullt af fornleifum
Stefnt er að því að hefja formlega vettvangsúttekt á sundlaugum sumarið 2023, en nú þegar er stofnunin byrjuð að kanna ein-
staka laugar á borð við Gljúfralaug í Grýtubakkahreppi. MYND/AÐSEND
Sylgja úr kumli
frá Ingiríðar-
stöðum.
MYND/AÐSEND
Í laganna skilningi er
miðað við að fornleifar
séu hundrað ára eða eldri
en við höfum líka verið
að skoða eitt og annað
sem nær fram á miðja
tuttugustu öld.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kolbrún Valdimarsdóttir
lést á dvalarheimilinu Lundi á Hellu
laugardaginn 27. nóvember.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
föstudaginn 10. desember kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á að styrkja dvalarheimilið Lund
á Hellu: 0308-13-300709, kt. 440375-0149.
Í ljósi aðstæðna verða einungis ættingjar og nánir vinir
viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni:
https://fb.me/e/13XNulTgF
Katrín Leifsdóttir Jón Pálmi Pálsson
Valdís Leifsdóttir Oddur Helgi Jónsson
Grétar Steinn Leifsson Guðfinna Guðmundsdóttir
Kristín Erna Leifsdóttir Baldur Ólafsson
Sigrún Björk Leifsdóttir Óskar Kristinsson
Sigurlaug Hanna Leifsdóttir Guðmundur Örn Ólafsson
og fjölskyldur.
Bestu þakkir til allra þeirra sem
vottuðu samúð og hlýhug sinn við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Kristínar Þorsteinsdóttur
Strikinu 12, Garðabæ.
Fjölskyldan þakkar starfsfólki krabbameinsdeildar
Landspítalans fyrir hlýja og góða umönnun.
Þórður Jónsson og fjölskylda.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 9. desember 2021 FIMMTUDAGUR